Harmonikublaðið - 01.12.2015, Side 2

Harmonikublaðið - 01.12.2015, Side 2
Ávarp formanns Ágæti harmonikuunnandi Nú líður að jólum og stutt í að árið 2015 kveðji. Með hækkandi sól og nýju ári er það von mín að starf harmonikufélaganna innan sam- bandsins verði enn öflugra og að okkur tak- ist að sækja fram og gera enn betri hluti en síðustu ár. Starfsár sambandsins hefur verið með hefð- bundnum hætti og má segja að stjórn sam- bandsins hafi reynt eftir megni að hrinda þeim verkefnum sem henni hefur verið falið í framkvæmd. Þó verður að viðurkennast að ekki tókst að halda æfingabúðir fyrir ung- mennin okkar síðastliðið vor, vegna ónógrar þátttöku. Er það mín skoðun að þarna þurfi að verða breyting á og held ég að þetta verk- efni þurfi að leggja í hendur harmoniku- kennaranna í landinu. Fá þá til samstarfs við sambandið og að þeir skipuleggi þetta verk- efni í framtíðinni. Harmonikan í leikskólum landsins er verkefni sem enn er í fullum gangi, en með þeim breytingum að nú eru allir forstöðumenn leikskólanna meðvitaðir um verkefnið og það er þeirra að leita til okkar ef þeir óska eftir að fá harmonikuleikara í sinn leikskóla. Þetta hefur tekist með ágætum og er töluvert um að óskað sé eftir að fá spilara í heimsókn í leikskólana. Geisladiskurinn Harmonikan í leikskólanum, sem sambandið gaf út er enn að seljast og eru einhverjir diskar óseldir ennþá. RÁðalfundur sam- bandsins var að þessu sinni haldinn 19. sept- ember á Hótel Stracta á Hellu á Rangár- völlum. Það var Harm- onikufélag Rang- æinga sem bauð til þessa fundar í tengslum við 30 ára afmæli félagsins. Það er ánægjulegt að segja frá því að allur undirbúningur og framkvæmd hjá félögum í HFR hafi verið þeim til mikils sóma. Fyrir hönd S.I.H.U. vil ég þakka öllum félögum í HFR og sérstaklega formanni þeirra Haraldi Konráðssyni fyrir frábærar móttökur og fyrir skemmtilega nýbreytni, þar sem öllum þátttakendum á aðalfundinum og mökum var boðið í skoðunarferð um Rangár- þing. Aðalfundurinn var með hefðbundnu sniði og verð ég að segja að þetta er einn sá besti aðalfundur sem ég hef tekið þátt í. I upphafi fundarins var Jóhanns Bjarnasonar minnst, en Jói Bjarna var árum saman ómis- sandi sem fundarstjóri á aðalfundum sam- bandsins. Hans er sárt saknað. Fundurinn var málefnalegur og ýmis mál rædd sem lágu fyrir fundinum. Ákveðið var að setja á lagg- irnar nefnd til að endurskoða lög sambands- ins, en það má segja að þau séu barn síns tíma og þurfi að færa nær nútímanum. I þessa nefnd voru kjörnir, Björn Olafur Hallgríms- son formaður og með honum munu starfa Sigurður Eymundsson og Pétur Bjarnason. Á fundinum var ákveðið að falla frá fjáröfl- unardansleik, en þess í stað að efna til harm- onikutónleika. Varaformaður sam- bandsins, Elísabet H. Einarsdóttir gaf ekki kost á sér til endur- kjörs og var Jónas Þór Jóhannsson kjörinn í hennar stað. Að öðru leyti er stjórn sambandsins óbreytt. Fund- inum lauk með kvöldverði, þar sem fundar- gestir fögnuðu þrjátíu ára afmæli með félögum í Harmonikufélagi Rangæinga. Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar var ákveðið að efna til harmonikutónleika í Salnum í Kópa- vogi, 5. mars 2016 og var formanni, Guðrúnu Guðjónsdóttur og Sigurði Eymundssyni falið að sjá um framkvæmdina. Þarna munu koma fram flestir af bestu harmonikuleikurum landsins. Það er von okkar í stjórn sambands- ins að tónleikarnir verði vel sóttir og að aðildarfélögin komi skilaboðum til sinna félagsmanna um að gera sitt besta til að mæta á tónleikana. Miðasala er þegar hafin á salur- inn.is. Senn gengur jólahátíðin í garð og af því tilefni vil ég senda öllum harmonikuunnendum mínar innilegustu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári. Stjórn sambandsins og formönnum aðildarfélaganna þakka ég gott samstarf á liðnu ári. Gleðilega jólahátíð, Gunnar Kvaran, formaður. Sagnabelgurinn Árið 1998 stóð SÍHU fyrir fjáröflun með því að fá hingað spilara frá Svíþjóð. Fyrir valinu urðu þrír harmonikuleikarar frá Kristianstad á Skáni. Þetta voru þeir Arne Fárm, bróðir hans Börje og sonur Börje, Frederik Fárm. Þetta voru Nya Brödrana Fárm. Hugmyndin var að þremenningarnir færu í ferð um landið. Undirritaður tók að sér að skipuleggja ferðina með þáverandi formanni SÍHU, Sigrúnu Bjarnadóttur, í samvinnu við aðildarfélögin á landinu. Haldnir voru tónleikar í Reykjavík, Þingborg fyrir austan Selfoss, Isafirði, Búðar- dal, Varmahlíð í Skagafirði, Akureyri og 2 Breiðumýri í Reykjadal. I Þingborg og Reykja- vík, á Breiðumýri og Akureyri voru einnig haldnir dansleikir. Ferðin var hin skemmti- legasta, en auk Svíanna, undiritaðs og Guð- nýjar konu hans voru með í ferðinni Sigrún formaður, Valur eiginmaður hennar auk bíl- stjórans Stefáns Leifssonar. Heimamenn víðs- vegar um landið útveguðu gistingu hjá félags- mönnum og allt var gert til að ferðin yrði sem ódýrust. Gamall, kraftlaus skólabíll var leigður hjá bónda vestur á Mýrum. Stefán Leifsson vildi nú meina að bíllinn hafi verið notaður í gripaflutninga, miðað við útganginn á honum. Allt var gert til að auglýsa þetta sem best og meðal annars var farið með þremenningana í útvarpið. Á þessum tíma var Lísa Páls með þátt eftir hádegi á föstudögum og tók vel í það að kynna Svíana. Að sjálfsögðu var þetta í beinni útsendingu. Þegar kom að kynningunni sagði Lísa, að hingað væru komnir til að leika fyrir útvarpshlustendur þrír Svíar, bræðurnir Arne og Börje Fárm og sonur þeirra Frederik. Þá urðu margir langleitir. Friðjón Hallgrímsson

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.