Harmonikublaðið - 01.12.2015, Síða 4

Harmonikublaðið - 01.12.2015, Síða 4
Muna og minjasafn harmonikufélaga Þegar ég undanfarið hef verið að fara yfir safn af gömlum fundargerðum, bréfum, félaga- skrám, starfsáætlunum, munum og skráðum viðburðum, sem til eru, allt frá því að félagið okkar H.U.V. var stofnað 1979, þá hefir sú hugsun orðið nokkuð áleitin hjá mér nú, þegar starfsemi okkar er orðin svo lítil sem hún er og endurnýjun félaga engin. Hvað verður um sögu, muni og minningar, sem það starf skilur eftir sig þegar upp verður staðið og félög hverfa af vettvangi? Þessar spurningar hljóta að vakna þegar svo illa árar, eins og er hjá okkur að minnsta kosti. Allir sem til þekkja vita um hið stórmerka átak Asgeirs Sigurðssonar, sem fellst í söfnun og varðveislu aldinna hljóðfæra af ýmsum gerðum harmonikuflórunnar og veita þeim framhaldslíf. Hugsið þið ykkur ef þetta fram- tak hefði ekki verið. Eg efast ekki um að þá væri margur gimsteinn glataður sem nú er í tryggri vörslu. Þökk sé Ásgeiri fyrir þetta björgunar stórvirki. Hjá harmonikufélögunum hverju fýrir sig er löng saga skráð og hefst gjarnan á stofn- fundargerð og undirbúningi hans. Þar koma efalaust fram ástæður þess að af stað var farið, hverjir voru upphafsmennirnir á hverjum stað. Lágu þar að baki einhverjir tónmenntaðir aðilar, eða var þetta aðeins áhugasamt fólk með litla sem enga tónlistarlega kunnáttu, en fékk á þeim tíma brennandi áhuga á þessu litla, létta og hljómfagra hljóðfæri, er síðan má líta á sem einn stærsta þáttinn í fábreyttu skemmtanalífi fyrri daga. Þegar menn í sveitum (meira að segja ég á yngri árum), lögðu upp með hljóðfærið á bakinu gangandi misjafnar leiðir eftir að gegningum lauk, leika síðan á hljóðfærið lengi nætur, en vera komnir heim til gegninga næsta morgun. Eða barst þessi áhugi til okkar með sjómönnum frá öðrum löndum. Og þá kannske hljóðfærin líka. Eða kannske er harmonikan e.t.v. eins- konar arftaki orgela sem víða voru til. Meira að segja ferðaorgel sem menn báru á milli bæja. Afi minn átti slíkt orgel sem hann bar á milli bæja, hvað varð um það veit ég ekki, en ég sá það eitt sinn í geymslu hjá föðursystur minni þegar ég var unglingur. Það er einnig athugunarvert að þar sem ekki voru sam- komuhús fýrir hendi, var leitað til þeirra sem mest höfðu húsa- og hjartarými. Færð voru til húsgögn og skapað rými til að fólk gæti dansað og glaðst af hjartans lyst. Þá má ekki heldur gleyma að minnast gömlu litlu fund- arhúsanna sem urðu til í mörgum hreppum á landsbyggðinni og hvernig þau stuðluðu að auknu félagslífi á hverjum stað. Þessi litlu hús eru flest horfin, en nöfn þeirra og skemmtanagildi muna margir enn. Lítil hús, flest án bekkja og stóla. Kassi úti í horni til að sitja á með harmonikuna, timburgólf sem dúaði er gengið var um það, en var gott til að stappa hælnum í til að festa taktinn. Og alltaf var það harmonikan sem skapaði gleðina og þótt húsrýmið væri knappt var vel við unað. I nokkrum var kaffirými í kjallara undir dans- gólfinu. Allri þessari sögu má ekki gleyma og færi vel á því að S.H.I.U. tæki sér forystu- hlutverk og beindi því til aðildarfélaga að huga vel að söguskráningu og minjavörslu hvert á sínu svæði, ásamt því að leita upplýsinga hjá hverjum þeim sem kunna að búa yfir vitneskju um störf félaga og einstaklinga. Hvort unnt verður síðan að koma upp sameiginlegum stað til varðveislu slíkra gagna er seinni tíma mál. Aðalatriðið nú er að ekki glatist neitt af því sem verðugt er að minnast. Nú þegar eru til skráðar margar og góðar upplýsingar og er þar m.a. átt við hina merku útgáfu þeirra Hilmars Hjartarsonar og Þorsteins Þorsteins- sonar á blaðinu Harmonikan. Seinna kom svo að útgáfu Harmonikubiaðsins á vegum S.I.H.U. En á heimaslóðum félaganna er eflaust margt enn að finna sem bjarga má frá glötun ef brugðist er við í tíma. A sýningu hjá Safnahúsinu í Borgarnesi nú í sumar 2015 sá ég mjög gamla harmoniku sem hafði verið í eigu merkrar konu, Þórunnar R. Sívertsen, húsfreyju í Höfn í Melasveit. Ekki hef ég séð slíka áður. Hvort hljóðfærinu fýlgir einhver saga veit ég ekki. Fyrir tæplega sjötíu árum var ég við störf í Dalasýslu. Þá var þar kona sem menn sóttust eftir að fá til að spila á dansleikjum. Hún var kölluð Inga, að mig minnir og var frá Skarði á Skarðsströnd. Til er saga frá þeim tíma, er hún eitt sinn á heim- leið eftir dansleik, var farþegi í bíl sem festist í vatnavöxtum í á, en hún bjargaðist við illan Gestur Friðjónsson leik úr þeim háska. Þannig sögum og við- burðum er rétt að halda til haga. Gömul skopvísa úr Strandasýslu má gjarnan fýlgja, en harmonikan sú mun hafa slitnað í með- förum hraustmennis: A ballinu skeði skoplegt undur. Skellti uppúr margurþundur. Er harmoniku svifti í sundur. Sver og digur Ingimundur. Ekki má heldur gleyma því að harmonikan var og er tryggur förunautur á útihátíðum og fýlgir mönnum gjarnan í skemmtiferðalögum. Minnist ég margra ánægjulegra ferða þar sem hún var með í för. Þessvegna varð mér eitt sinn að orði eftir fjölmennt og ánægjulegt harmonikumót í Þrastaskógi: 77/ að Ijúfir tónar svelli, tendri yl oggleði nóg. Harmonikan haldi velli, hljómi títt um Þrastaskóg. Ég hef þessi orð ekki fleiri að sinni, en hvet hvern og einn til þess að skrá þá vitneskju sem hann kann að búa yfir svo hún sé tiltæk verði farið að tillögu minni sem hér birt Akranesi í september 2015, Gestur Friðjónsson félagi í H. U. V 4 Munið myndasíðuna á netinu: www.harmoniku-unnendur.com

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.