Harmonikublaðið - 01.12.2015, Page 8

Harmonikublaðið - 01.12.2015, Page 8
Harmonikuball á Egilsstöðum Þingeyskir ferSafélagar d Egilsstöíum. Mynd: SigurSur Ólafison Fjörið komst ífína lag furðu er Davíð keikur afturgenginn í sitt fag ekki mikið veikur. - Fía Þegar hér var komið sögu sáum við ekki betur en Grímur á Rauðá væri sofnaður. Þetta fannst sumum fast skotið en Davíð svaraði. Osköp var það illa gert þó engan gerði skaða. Sumt er ekki svara vert sem er látið vaða. - Davíð Þann 29. ágúst hélt hópur kátra félaga úr Harmonikufélagi Þingeyinga ball í Valaskjálf, í samvinnu við Harmonikufélag Héraðsbúa. Þar mættu á þriðja hundrað manns og döns- uðu við frábæra tónlist heimamanna og Þing- eyinga. Flytjendur voru margir, því heima- menn skörtuðu m.a. söngtríói og í okkar hópi voru tvær ungar söngkonur, sem nýlega gengu til liðs við félagið. Samkvæmt venju ferðuðu- mst við með í rútu austur. A Egilsstöðum bættist Arndís Þorvaldsdóttur leiðsögumaður í hópinn og fylgdi hún okkur Fljótsdals- hringinn. Arndís fræddi okkur um sögu svæð- isins, bændur og búalið og fór með kveðskap. Á Skriðuklaustri beið hádegisverður. Þar skoðuðum við húsið og uppgröft á fornu klaustri. Eftir mat ókum við gegn um Hall- ormsstaðaskóg og fengum okkur göngutúr um trjásafnið. Á Gistihúsinu Egilsstöðum snæddum við kvöldverð áður en við fórum á ballið. Allar ferðir okkar eru skemmtiferðir frá upp- hafi, hvernig sem viðrar. Fylgja hér nokkrar stökur sem segja ferðasöguna. Fljótlega fóru konurnar að syngja meðal annars Litlu fluguna, en karlar vildu heldur í staupinu, en „kyrja sálma“. Okkar sálmur ei mun duga er í honum lítiðgrín. Efég vœri orðin fluga ekki þyrfti ég mikið vín. - Fía Fía vœrifluga góð ogfidl í anda sönnum, efhún sýgur aðeins blóð úr útúrfullum mönnum. - Friðrik Frækinn hópurfer um storð ftörgast vísnaleikur. Davíð segir ekki orð œtli hann sé veikur. - Fía Afóvarkárni oft ég hegg og óvild kannski sœki, en vtzri Fía fluga á vegg égflugnaspaðann tœki. - Friðrík Flugnaspaðinn fengi kast í Friðriki er kraftur. Efþú lemur Fíufast hún fer að ganga aftur. - Davíð Grími leiðist gálaust flím góðra Ijóða að saknar. Við attum bara aðyrkja um Grím þá eflaust karlinn vaknar. - Fía Árla morguns lögðum við af stað heim og voru menn misjafnlega upplagðir. Kjartan dræver orðinn er er það gott að heyra, því Pálmi ífriði Siggu sér svo hún yrki meira. - Friðrik Osköp slappir eru þeir eftir ball og geim. Bestþeir stýri bara tveir og bjargi okkur heim. - Fía Minn er andinn ekkifrjór amorsgetan þrotin. Að krönkumfeti kreppir skór kiðfiettur og lotinn. - Þorgrímur Misjöfri fésin maður sér myndastríð er hafið, þessi gráa gufa er greinilega Davíð. - Friðrik Ýmsir setja allt í rím oftþví margan hryggja. Spara hvorki spott néflím og sparka íþá sem liggja. - Þorgrímur Davíð sjaldan flaturfer fram það vil ég taka, þaðgóða viðþann gamla er hann gefur spark til baka. - Friðrik Á heimleiðinni áðum við í Möðrudal í svo fögru veðri að ekki var hnoðri á Herðubreið. Lifnaði þá yfir mönnum sem fóru jafnvel að daðra. Lauslæti er sjálfsagt synd samtþað margir kanna. I eigin sök er ástin blind eins og dcemin sanna. - Þorgrímur Fleira var ort og skrafað og þakka ég öllum fyrir skemmtunina. Hólmfríður Bjartmarsdóttir

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.