Harmonikublaðið - 01.12.2015, Page 9
Einu sinni á ágústkvöldi
Frd vinstri: Jón Sigfusson, Ragnar Eymunds, Sveinn Vilhjdlms, Andrés Einarsson og Pdlmi Stefánsson
Hinn árlegi harmonikudansleikur Harmon-
ikufélags Héraðsbúa var haldinn í Valaskjálf
laugardagskvöldið 29. ágúst. Góðir gestir
gerðu sér ferð austur yfir fjöllin, þar sem voru
vinir okkar Þingeyingar. Spilarar voru bæði
margir og flottir. Fyrstir stigu á svið þeir
Sveinn Vilhjálmsson og Jón Sigfusson harm-
onikuleikarar. Fengu þeir fínar undirtektir,
en ásamt þeim léku Andrés Einarsson gítar-
leikari, Pálmi Stefánsson bassaleikari og
Ragnar Eymundsson trommuleikari. Þessir
sömu skipuðu rythmasveitina nánast allt
kvöldið með örfáum undantekningum, enda
valinn maður í hverju rúmi. Næst var komið
að harmonikuprinsessunum Hildi Petru Frið-
riksdóttur og Vigdís Jónsdóttur. Ekki dró það
úr fjörinu, en þær stöllur rífa upp stemningu
hvar sem þær koma. Sömu hjálparkokkar
studdu við þær. Þriðja sveit á svið var Stráka-
bandið, skipað Jóel Friðbjörnssyni og Kristjáni
Kárasyni að þessu sinni. Þeir hafa áður haldið
fólki á dansgólfi og gerðu það vandræðalaust.
Þá var komið að Aðalsteini Isfjörð, en með
honum lék Grímur Vilhjálmsson bassaleik-
arinn góðkunni, sem ekki telur eftir sér að
skjótast á milli landshluta sé þörf á aðstoð við
dansspil.
Þá var röðin komin að Sigurði Gylfa og hans
mönnum. Gylfi og Jón léku á harmonikur
Guðlaugur Sæbjörnsson sá um bassa og söng,
Andrés Einarsson lék á gítar og söng og Pálmi
Stefánsson lék á trommurnar. Lokasyrpuna
tóku saman AIli fsfjörð, Hildur Petra og Vig-
Þau dttu lokahnykkinn, Vigdís Jónsdóttir, Alli Isjjörð og
Hildur Petra
dís. Fjörið var mikið og ósvikið og gólfið fullt
til síðasta lags klukkan hálf þrjú. Mæting var
mjög góð, yfir 200 manns. Fullt dansgólf frá
fyrsta til síðasta lags. Eg vil fyrir hönd HFH
þakka öllum hljóðfæraleikurum og gestum
fyrir frábært kvöld. Eg vil þakka Harmo-
nikufélagi Þingeyinga fyrir að mæta með fulla
rútu af gleðigjöfum. Sérstakar þakkir fær
Aðalsteinn ísfjörð, en hann hefur spilað á
flestöllum harmonikuböllum HFH síðan
félagið var stofnað 1984. Takk Alli fyrir frá-
bært samstarf. Nú er vetrarstarf HFH komið
í fullan gang. Spilað í Hlymsdölum öll mið-
vikudagskvöld frá átta til tíu. Jón Sigfússon
Á DÖFINNI
Fjáröflunartónleikar í Salnum
Eins og annarsstaðar hefur komið fram verða
fjáröflunartónleikar á vegum SÍHU í Salnum
í Kópavogi laugardaginn 5. mars nk. Tillaga
þess efnis var samþykkt á aðalfundinum á
Hellu og er Gunnar Kvaran formaður lands-
sambandsins í forsvari fyrir nefndinni, en auk
hans eru þau Guðrún Guðjónsdóttir og Sig-
urður Eymundsson. Astæða er til að ætla að
þarna verði einvala lið harmonikuleikara, en
allir bestu harmonikuleikarar landsins munu
hafa þegið boð um að taka þátt í tónleikunum,
en þetta er í fyrsta skipti sem SÍHU stendur
fyrir slíkum atburði. Það er áríðandi að til
tónleikanna verði vandað, svo áheyrendur
verði ekki fyrir vonbrigðum.
Harmonikumeistarinn 2016
Vorið 2013 fór fram á vegum SIHU keppnin
Harmonikumeistarinn í sal Tónlistarskóla
Garðabæjar. Nú er komið að næstu keppni.
Salurinn hefur verið leigður þann 9. apríl og
þarf að vinna rösklega við undirbúning
keppninnar. Það er mikilvægt að ná sambandi
við alla þá tónlistarkennara, sem stunda
kennslu og senda þeim þátttökugögn. Nú
reynir á sambandið milli harmonikufélaganna
og tónlistarskólanna. I síðustu keppni tóku
níu ungir harmonikuleikarar þátt, fimm í
yngsta flokki og fjórir í 13- 16 ára flokknum.
Engir þátttakendur voru í elsta flokknum, en
vonandi breytist það núna.
9