Harmonikublaðið - 01.12.2015, Page 10

Harmonikublaðið - 01.12.2015, Page 10
Harmonikufélag Rangæinga 30 ára 2015 Haraldur formaður setur hátíðina. Hljómsveit Rangœinga bíður átekta Harmonikufélag Rangæinga var stofnað 14. apríl 1985 og var stofnfundurinn haldinn í samkomuhúsinu Gunnarshólma í Austur- -Landeyjum. Stofnfélagar voru 80. Helsti hvatamaður að stofnun félagsins var Valdimar J. Auðunsson frá Dalseli landsþekktur harm- onikuleikari einn Dalselsbræðra og var hann jafnframt kjörinn fyrsti formaður félagsins. Fyrstu árin sem félagið starfaði var starfsemin aðallega fólgin í dansleikjahaldi og æfingum í kringum slíkar uppákomur. Þegar Valdimar lét af formennsku 1988 tókvið Sigrún Bjarna- dóttir frá Arbakka í Landsveit og var hún formaður félagsins til 1997. Sigrún gegndi einnig formennsku í S.I.H.U. árin 1996 -1999. Er Sigrún lét af formennsku tók bróðir hennar Jóhann Bjarnason við formennsku í félaginu og var hann formaður félagsins allt þar til hann féll frá í febrúar síðastliðnum. Blessuð sé minning þessara föllnu félaga okkar. Hamonikufélag Rangæinga hefur alla tíð verið öflugt og reglulegar æfingar haldnar undir styrkri stjórn Grétars Geirssonar bónda og harmonikuleikara í Ashóli í Asahreppi . Harmonikufélag Rangæinga tók fyrst þátt í landsmóti harmonikufélaga árið 1987. Félagið stóð fyrir landsmóti harmonikufélaga á Lauga- landi í Holtum árið 1996 og á Hellu 2011. Þar átti Jóhann Bjarnason eða Jói Bjarna eins og hann var oftast kallaður mikinn heiður skilið fyrir það hvernig hann hélt utanum það mót og var afar ánægjulegt að vinna með honum og öðrum félögum í Harmonikufélagi Rangæinga að því ásamt þeim stjórnar- mönnum í S.I.H.U. sem að því komu. Jói Bjarna átti frumkvæði að því að farið var með harmonikurnar í reglulegar heimsóknir í leik- skóla og hefur sá háttur verið tekinn upp í öðrum harmonikufélögum vítt um landið en hugmyndin mun vera komin frá Elsu Þor- björgu Arnadóttur eftirlifandi eiginkonu Jóa. Harmonikufélag Rangæinga hefur staðið fyrir reglulegum skemmtiferðum á vegum félags- ins og á árum áður var m.a. farið í heimsóknir til annarra félaga vítt um landið og miðin. Farið var í mikla frægðarför til frænda okkar í Færeyjum árið 2000 ásamt Harmonikufé- laginu Nikkólínu úr Dölum vestur og Þorra- kór þeirra Dalamanna, alls um 80 manna hópur. A þessum tíma var Suðurlandsskjálft- inn nýgenginn yfir og Grétar í Ashól sagði mér að fólk hefði einfaldlega hætt að sópa upp glerbrotin eftir skjálftann og stokkið af stað. Einnig var flogið til Billund í Danmörku í júní 2006 og ferðast um á þeim slóðum. 10 Munu báðar þessar ferðir hafa heppnast með miklum ágætum. Eg velti því sjálfur fyrir mér hvort það hafl verið svo gaman í þessum ferðum að enginn muni neitt eftir þeim því að ég hef ekki heyrt mikið talað um þær. Jói heitinn var með í kollinum hugmyndir um að heimsækja Norsk trekkspilklub í Noregi en eftir er svo að sjá hvort við vinnum úr þeirri hugmynd. Einnig er vert að minnast þess þegar Jói fór með félagsmenn harmonikufé- lagsins í rútu sem hann ók sjálfur upp á Snjó- öldu (fjall í Veiðivötnum 930 m hátt) í prýð- isgóðu veðri og þar voru nikkurnar þandar. Ekki má gleyma harmonikumessunum. Jói Bjarna átti og hrinti þeirri hugmynd sinni í framkvæmd að félagið stæði fyrir svokölluðum harmonikumessum þ.e. að í staðinn fyrir org- elleik í messunni þá skyldu dragspilin þanin. Fimm slíkar messur hafa verið haldnar í Árbæjarkirkju í Landsveit auk einnar í Þor- lákskirkju í Þorlákshöfn. Gjarnan hafa verið frumflutt ný harmonikulög við þessar athafnir m.a. eftir Jóa Bjarna og Hannes Birgir Hann- esson organista og eins félaga okkar. I Þor- lákskirkju voru fermingarbörnin mætt, vænt- anlega í skyldumessu og þarna voru nokkrir fermingardrengir sem voru ekki par hrifnir á svip þegar við drógum upp nikkurnar og þeir sá hvað í vændum var, en gaman var að sjá undrunarsvipinn á þeim þegar „O þá náð að eiga Jesú“ var poppað upp að hætti þeirra Grétars Geirsonar og Tryggva Sveinbjörns- sonar og ekki varð annað séð en að þeir skemmtu sér konunglega í messunni. Þarna tengdust saman tvær kynslóðir, eða þrjár, eftir því hvernig á það er litið. Harmonikufélag Rangæinga hefur gefið út tvo geisladiska. Fyrri diskurinn heitir „Harm- onikufélag Rangæinga“ og kom út árið 1999 og seinni diskurinn „I morgunsól minning- anna“ kom út árið 2010. I dag eru 56 skráðir félagar í Harmonikufélagi Rangæinga. Eftirtaldir aðilar hafa æft með Harmonikufé- lagi Rangæinga á síðasta misseri: Á bassa Bragi Gunnarsson, á rythmagítar Tryggvi Svein- björnsson, á harmonikur Hannes Birgir Hannesson, Grétar Geirsson, Þorgerður Jóna Guðmundsdóttir, Haraldur Konráðsson og Auður Friðgerður Halldórsdóttir. Þegar þess var farið á leit við Harmonikufélag Rangæinga að halda haustfund S.I.H.U. þá kom upp þessi hugmynd hjá Jóa Bjarna að slá saman haustfundinum og afmæli félagsins. Eftir að þetta hafði verið rætt í stjórn félagsins og samþykkt þar fór Jói fram á það við stjórn sambandsins að fresta haustfundi hjá okkur Rangæingum um eitt ár og var það auðsótt mál. Þegar Jói svo féll frá þá kom það í minn hlut að taka við keflinu og halda utanum áframhaldandi störf félagsins og þar með væntanlega afmælishátíð og haustfund. Eg vissi svo sem að Jói var kominn vel á veg með undirbúninginn en það verður að segjast eins og er að af hálfu Jóa var undirbúningi haustfundar nánast lokið. Gengið hafði verið

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.