Harmonikublaðið - 01.12.2015, Qupperneq 11

Harmonikublaðið - 01.12.2015, Qupperneq 11
manna í rútu í vettvangsskoðun um Hellu- þorp undir styrkri fararstjórn þeirra hjóna Unnar Þórðardóttur og Braga Gunnarssonar. Eftir að fundi lauk var boðið upp á léttan hádegisverð og síðan stormuðu allir upp í rútuna og ekið var sem leið lá í austur frá Hellu og beygt svo af þjóðvegi eitt niður í Austur-Landeyjar. Undirritaður hafði tekið að sér að gerast leiðsögumaður á þessu svæði þar sem hann þekkir vel til enda fæddur, upp- alinn og búsettur í Landeyjum. Ekið var í gegnum sveitina og niður að Landeyjahöfn þar sem hið glæsilega hafnarmannvirki var skoðað. Reyndar var veðrið ekki upp á sitt besta en rigning og rok var þennan dag en það er ekki alveg óþekkt í Landeyjum. Eftir stutt stopp við höfnina var ekið áleiðis upp í Fljótshlíð og þá tók við fararstjórn Sigurdís Baldursdóttir sem þekkir vel til Hlíðar, enda fædd og uppalin þar. Að var við Kaffi Lang- brók þar sem staðarhaldarar þau Ingibjörg Elva Sigurðardóttir og hjónin Auður Frið- gerður Halldórsdóttir og Jens Sigurðsson tóku á móti hópnum og gengið var til Meyjarhofs þar sem beið okkar gítarspil og söngur og þau fræddu okkur um tilurð hofsins sem Jón heit- inn Olafsson frá Kirkjulæk eiginmaður Ingi- bjargar byggði til heiðurs hinni íslensku konu. Eftir að hafa þegið kaffisopa með nýbökuðum kleinum að hætti Brókverja var haldið aftur til rútu og ekið áleiðis á Hótel Stracta þar sem gestum gafst tími til hvíldar og undirbúnings íyrir afmæliskvöldið sjálft. Klukkan 19.00 fóru hátíðargestir að safnast saman á hótelinu og í boði var fordrykkur áður en gengið var til hátíðarsals. Undirritaður hafði tekið að sér sem formaður Harmoniku- félags Rangæinga að stjórna samkomunni. í boði okkar heimamanna var fordrykkurinn, hátíðarkvöldverðurinn ásamt dagskrá að hætti heimamanna. Var þetta hin ágætasta samkoma þó ég segi sjálfur frá þar sem fléttað var saman söng, harmonikuspili, afmælisávarpi og ræðu- höldum. Voru félaginu færðar veglegar afmæl- isgjafir í tilefni tímamótanna og viljum við hér með þakka fyrir þær ásamt fallegum orðum okkur til handa. Eftir að formlegri dagskrá lauk voru dragspilin þanin og dans stiginn fram eftir nóttu. Undirritaður vill fyrir hönd okkar heima- manna þakka öllum sem að komu fyrir frá- bærar stundir sem við áttum saman þessa helgi á Hótel Stracta. Þær fara í minningabankann og verða vel varðveittar þar. Fyrir hönd Harmonikufélags Rangœinga, Haraldur Konráðsson formaður Myndir: Reynir Elíesersson Ein af hljómsveitum helgarinnar. Doddi rafvirki, Grétar bóndi, Stefán Armann og Tryggvi Sveinbjöms á gítar frá samningi við Hótel Stracta á Hellu og dagsetningar og öll verð á hreinu. Þann 19. september skyldi fundurinn og hátíðin fara fram og þegar nálgaðist sú dagsetning fórum við að setja okkur í startholurnar og ákveða endanlega dagskrá og senda út bréf og annað sem þurfti að gera. Við ákváðum að vera á Seinnipart föstudags 18. september fóru fundarmenn að mæta á Stracta og myndaðist strax notaleg og heimilisleg stemning á hót- elinu eins og jafnan er reyndar hjá harmon- ikufólki. Reyndar hafði undirritaður ætlað að eyða þessum degi öðruvísi en örlögin tóku í taumana og ég sé ekki eftir því að hafa verið Tveir HéraSsspilarar. Jón Sigfiísson og SigurSur Eymundsson liðka nikkurnar á fóstudagskvöldinu okkar heimasvæði með lagaval og við erum stolt af því að eiga og hafa átt laga- og texta- höfunda í okkar röðum frá fyrstu tíð. Eins hafði Jói lagt mikla áherslu á að nýta söng- hæfileika félagsmanna okkar og bjóða upp á söngatriði til jafns við harmonikuleik. þarna í þessum góða hópi harmonikufólks. Laugardaginn 19. var fúndur settur kl. 9.30 og stóðust allar tímasetningar sem settar höfðu verið og var þetta hinn ágætasti fundur og öllum fundarmönnum til sóma. Mættir voru fulltrúar frá 13 aðildarfélögum af 14. A meðan fundur stóð yfir var farið með maka fundar- 11

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.