Harmonikublaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 12

Harmonikublaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 12
Sumarhátíðin í Fannahlíð 3. - 5. júlí 2015 Sumarmót Harmonikuunnenda Vesturlands var haldið í Fannahlíð eins og áætlað var, dagana 3. til 5. júlí. Borða-, stóla- og eldhúsliðið, þau Geir, Gestur, Guðjón, Grétar og Jóhanna mættu til undirbúnings í húsinu laust eftir kl. tvö föstudag. Valdimar kom nokkru síðar og sinnti skyiduheimsóknum til þeirra sem komnir voru, við innheimtu dvalargjalda. Helgi Jensson hafði útbúið merkimiða að venju. Þá voru komnir á tjaldsvæðið fjöldi húsvagna og tjalda og var áætlað að um fimmtíu gestir væru komnir. Astæða er til að nefna að meðal gesta var Friðrik öryrki Steingrímsson, kominn alla leið frá Mývatni. Orðið öryrki þýðir í hans tilviki maður sem er fljótur að yrkja. Eitthvað var húsbíllinn að stríða Friðriki, en Siggi Harðar ljósmyndari Harmon- ikublaðsins var staddur á staðnum og tókst að bjarga málum, enda úrræðagóður með afbrigðum. Friðrik orðaði þetta á eftirfarandi hátt Það stefndiflest í eina átt, hvað árans túrinn varðar. En fyrir rest þá fínan drátt, égfékk hjá Sigga Harðar. Þetta var þó ekki eina afrek Sigurðar, því á laugardags eftirmiðdaginn klifraði hann upp á þak á fellihýsi ritstjórans og festi og tengdi sólar- rafhlöðu. Þá sagði Friðrik: Þó rekinn sé í hann rafhlaða ein og rassi hans í þaðfórnað. Þá fráleitt ég tel að fjarstýring nein, Friðjóni geti stjórnað. Veðrið var afar gott, mjög hlýtt en ekki mikil sól. Örlítilla rigningar- dropa varð vart, sem var þó varla teljandi. Tókum við til að stilla upp borðum og stólum. Bera inn hljóðfæri og annan hljómsveitarbúnað sem Geir kom með úr geymslu. Gekk það fljótt og vel fyrir sig, en Jóhanna undirbjó eldhúsið fyrir kvöldið. Allan tímann bættist við á tjaldsvæðið og ljóst að fjölmennt yrði á staðnum. Settar voru upp tilkynningar um hvenær dagskrár hæfust föstudag og laugardag. Einnig auglýst hverjir tækju þátt í dagskráratriðum. Klukkan níu á föstudags- kvöldið hófum við HUV menn að spila fyrir dansi og lékum í tæpan klukkutíma, en síðan tóku aðrir við til miðnættis. Voru það m.a.Vind- belgirnir, þ.e. Hilmar Hjartarson og Friðjón Hallgrímsson, Sveinn Sigurjónsson og Birgir Hartmannsson og Doddi, þ.e. Þórður Þor- steinsson. Nutum við allir frábærrar aðstoðar Sirríar, þ.e. Sigríðar Indriðadóttur trommara og Helga E. Kristjánssonar að venju. Mjög góð þátttaka var í dansinum og skemmti fólk sér hið besta. Eftir miðnætti tóku sum okkar til í salnum áður en gengið var til náða. Eftir hádegi á laugardaginn mætti borða- og stólaliðið og stillti upp fyrir tónleikana. En Jóhanna á Kjaransstöðum og Hulda Helgadóttir undirbjuggu kaffisölu sem hófst kl. hálf þrjú. Valdimar Sólbergsson sá sem fyrr um alla innheimtu aðgangs og kaffisölu. Geir og Jóhanna höfðu útvegað ungar stúlkur til að annast ölsölu. Þegar fólk hafði komið sér fyrir í salnum um kl. þrjú hófust tónleikarnir. Fyrstir voru HUV félagar og spiluðu fimm lög, sem tókust nokkuð misjafnlega. Eða eins og haft var eftir Guðmundi Samúelssyni; að þeir vœru nú nokkuð góðir miðað viðþað að þetta vœru nú orðnir aldraðir menn. Næstur var hinn fjórtán ára gamli Davíð Harðarson, sem lék fjögur lög. Síðan léku Sirrí, nú flautuleikari og Helgi E. Kristjánsson nokkur lög saman. Sirrí lék síðan án undirleiks nokkur lög. Eftir það var 12 Veðrið lék viðgesti Fannahlíðar blönduð músik þeirra Sirríar, Helga og Guðmundar Samúelssonar sem léku saman með tilþrifum. Var þetta hin besta skemmtun. Eftir að dagskránni lauk tók borða-, stóla- og eldhúsliðið til starfa á ný. Hreinsaði af borðum og stillti upp í salnum fýrir kvöldskemmtunina. Eftir það var hlé fram til kl. níu um kvöldið en þá hófst dansleikur að Hér eru máttarstólpar HUV undanfarin ár aS leikajafnvel i síSasta sinn í FannahlíS Frá vinstri Jón HeiSar, Geir GuSlaugsson og Gestur FriSjónsson nýju. Margir spiluðu fyrir dansinum og fékk hver hópur fjörutíu og fimm mínútur. Til aðstoðar harmonikuleikurum voru sem fyrr Sigríður Hjördís Indriðadóttir og Helgi E. Kristjánsson. Fyrstur á svið var Garðar Olgeirsson ásamt Fróða Oddssyni gítarleikara. Þá tóku búfræðingarnir við, en þeir eru Grétar Geirsson og Guðmundur Samúelsson. Síðan kom Sveinn Sigurjónsson með Fróða sér til full- tingis. Á eftir þeim komu HUV menn Geir, Gestur, Jón Heiðar og Lárus Skúlason. Lokahljómana áttu síðan B.D.dúettinn, þ.e. Birgir Hartmannsson og Þórður Þorsteinsson (Doddi). Loka fjöldasöngur kvöldsins með undirleik þeirra var „Hvað er svo glatt.“ Þröngt var á þingi bæði kvöldin og mjög heitt inni þó reynt væri að opna hurðir og glugga og hafa loftræstiviftu með köldum blæstri stanslaust í gangi. Fólk lét það samt ekki aftra sér og var dansgólfið ávallt fullt nema þegar skipt var um hljómsveitir. Þetta mót var afar vel heppnað og frábært að forsvarsmönnum HUV tækist að ljúka starfi sínu á þessum vettvangi á svo glæsilegan máta.

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.