Harmonikublaðið - 01.12.2015, Page 15

Harmonikublaðið - 01.12.2015, Page 15
Valdimar á Mýrum ogÁsgeir Sig íþungum þönkum Hólmgeir trommari og Samúel Einarsson hár- skeri og hljómborðsleikari. Að lokum gekk Margrét Geirsdóttir söngkona í salinn og hóf þá hljómsveitin að spila með hvelii miklum og tilþrifum. B.G. hamaðist á nikkunni og aðrir hljómsveitarmeðlimir iétu ekki sitt eftir liggja. Má segja að varla hafi feilnóta verið slegin. Þarna komu líka fram með hljóm- sveitinni gestaspilarar og söngvarar sem stóðu vel fyrir sínu. Var haldið uppi fullum dampi fjölmennt á ballinu var þar góðmennt og mikið fjör. Hygg ég að einhverjum hafi farið þarna líkt og Hirti í Fagrahvammi þegar hann kom á böll, að henda staf og hækju og dansa sleitulaust. Eftir ballið gengu flestir fijótlega til náða, en einhverjir kunna að hafa haldið eitthvað áfram að gá í glös. Morguninn 13. september heiisaði með skúraveðri en fljótlega stytti þó upp. Eftir góðan morgunverð og uppgjör skulda kvöddu Ein afhljómsveitum kvöldsins. Margrét Geirsdóttir, Baldur Geirmunds ogMagnús Reynie, sem skyggja á Samúelhljóm- borðsleikara og Hólmgeir trommara í þrjá tíma, eða til kl. 1. Þá var ballinu slúttað í samræmi við fyrirmæli fararstjóra. Þegar leið á kvöldið hafði ballgestum fjölgað nokkuð. Fátt var þó af Snæfellingum. Flestir aðkomnir baligestir komu frá Reykjavík, fólk sem hafði einhver tengsl við félaga í harmon- ikufélaginu. Einn skógarhöggsmaður kom norðan úr Tálknafirði og var við annan mann (konur eru líka menn). En þó ekki væri mjög menn vini og kunningja, sem héldu í aðra átt og stigu síðan inn í rútuna góðu sem að venju hélt af stað á ákveðinni mínútu, nú kl. 11. Var ekin sama leið norður og við höfðum ekið suður og var stansað á sömu stöðum. Nú hafði þó orðið sú breyting á að við ókum nýheflaðan veg fyrir Áiftafjörð. Sú venja hefur skapast í ferðum harmoniku- féiagsins að framhleypnir menn hafa farið í míkrófóna rútanna og þreytt samferðafólk með masi sínu. Svo var og í þessari ferð. Þar var fararstjórinn framarlega í flokki og fleiri voru slæmir með þetta, undirritaður þó lang verstur og teygði iopann með ýmsu. Hann sagði t.d. frá kumpánum sem fengu viður- nefnin Mangi sprútt og Valdi peli. Hann sagði líka frá Þorbirni sauðfjárbónda á Osi í Arnar- firði sem gaf ám sínum nöfn þekktra dándi- kvenna og hrútana nefndi hann Ómar Ragn- arsson, Megas og Egil Öiafsson. Ekki hafði þetta mikla lukku í för með sér, því hrútarnir lembdu ærnar um mitt sumar og sauðburður stóð því sem hæst um jól og áramót. Sjón- varpið brást við og sendi tökulið að Ósi til að mynda þessi kynstur. Fór Þorbjörn með liði þessu í fjárhúsin og benti á hvar Sigga Bein- teins, Rósa Ingólfs og Guðrún Gunnars voru í stíum með lömb sín, en Ómar og félagar horfðu roggnir á úr hrútastíunni. Magnús Reynir er sagnamaður góður. Hann sagði frá körlum, sem líkt og Þormóður Kol- brúnarskáld, krjúpa að konum, bæði sínum eigin og annarra. Hann sagði líka frá mönnum sem rekast illa í flokkum, líkt og hann sjálfur. Einnig sagði hann frá orðheppnum presti sem hafði yndi af að kasta rekum á framsóknar- menn og öðrum prestum sem slógust á Gemlufallsheiði. Guðmundur Ingvarsson gerir ekkert óhugsað. Hann fjaliaði um spakmæii Þórarins bónda á Höfða í Dýrafirði. Hér skulu aðeins fjögur nefnd: Ekki labbar dótið. - Það er kappnógað Ijúga um belming. - Þœr eru jjörugar þessar litlu. - Það er ekki nóg að geta hlaupið ef vitið vantar. Guðmundur kvaðst hyggja að hér væri í öllum tilfellum um sannmæli að ræða og færði gild rök fyrir að svo væri. Engilbert Ingvarsson, áður bóndi á Tyrðil- mýri, kann margt að segja af fólki því sem bleytti smörið í Inndjúpi á iiðnum öldum. Hann flutti prýðilega greinargott erindi um fólk og býii þar á þeim tíma er mannlíf stóð í blóma. Ymsir fleiri fóru í míkrófóninn í þessari ferð en hér hafa verið nefndir, en undirritaðan brestur minni til að gera grein fyrir því öllu. Þá biður hann viðkomendur forláts ef eitthvað kann að vera rangt haft eftir mönnum. Meðan flytjendur iétu móðann mása rann flestum í brjóst er á hlýddu, fengu því sögumenn gott hljóð. Tíminn leið hratt og fyrr en varði var komið til Isafjarðar. Þar yfirgáfu Isfirðingar rútuna. Skildust menn með kærleikum og glöddust yfir vel heppnaðri för. Rútan hélt svo til Þingeyrar og skilaði Dýrfirðingum til síns heima. Valdimar H. Gíslason Myndir Karítas Pálsdóttir 15

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.