Harmonikublaðið - 01.12.2015, Page 17
jónatan Ölafsson
Tónskáldið sem á lagið í blaðinu að þessu
sinni var Jónatan Olafsson.
Hann var fæddur í Reykjavík þann 17. febr-
úar 1914. Hann hóf að leika á hljóðfæri níu
ára gamall og íjórtán ára ára var hann farinn
að leika á dansleikjum í Reykjavík og fljótlega
fór tónlistin að skipa stærri sess í lífi þessa
unga tónlistarmanns. Hann var reyndar ekki
eini tónlistarmaðurinn í fjölskyldunni, því
báðir bræður hans urðu kunnir söngvarar,
þeir Erling, sem lést fyrir aldur fram og Sig-
urður, sem heillaði landsmenn í áratugi með
hressilegum söng. Arið 1933 fór Jónatan, sem
undirleikari með Erling, í söngferðalag um
landið og á Siglufirði bauðst honum starf sem
píanóleikari. Þar urðu þáttaskil því á Siglu-
firði starfaði hann sem hljóðfæraleikari og
tónlistarkennari næstu árin. A þessum árum
var Siglufjörður sannkallaður síldarbær og
„þá voru indælar andvökunæturnar upp í
Hvanneyrarskál“, eins og segir í ljóði Núma
Þorbergssonar við lag Jónatans, Landleguvals-
inn. Hann varð því atvinnumaður í faginu
19 ára gamall og var það næstu fjörutíu árin.
Þegar Jónatan kom suður aftur var komið
stríð, íbúafjöldi höfuðborgarinnar hafði tvö-
faldast og atvinnutækifærum tónlistarmanna
fjölgað jafnvel ennþá meira. Jónatan hóf
snemma að að setja saman lög og tvisvar vann
hann fyrstu verðlaun í danslagakeppni S.K.T.
Þetta voru lögin I landhelginni og Laus og
liðugur. Þá voru lög eins og Bldr varstu sœr,
sem Þuríður bróðurdóttir hans söng inn á
plötu, Kœnupolkinn og mörg fleiri, ekki þeirra
gerðar að gleymast svo auðveldlega. Fljótlega
var farið að gefa lög Jónatans út á plötum, en
fjölmörg lög hans hafa verið gefin út með
hinum ýmsu flytjendum. Hann var ekki
heldur í vandræðum með textahöfunda, enda
kölluðu lögin beinlínis á texta. Þar má
fremstan telja Núma Þorbergsson, en margir
textar hans við iög Jónatans nálgast það að
vera orðnir þjóðvísur. Jónatan hætti að mestu
opinberum hljóðfæraleik um sextugsaldurinn,
enda búinn að vera í eldlínunni lengi. Hann
hafði unnið lengst af sínum starfsaldri hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur og því búinn að
vera í tvöfaldri vinnu mestan part ævinnar.
Jónatan Olafsson lést 11. apríl 1997.
Gleðileg jól og farsæli komandi ár.
Verið velkomin í viðskipti.
HERAÐSPRENT
Miðvangi 1, 700 Egilsstaðir
Sími 471 1449 I www.heradsprent.is
print@heradsprent.is
17