Harmonikublaðið - 01.12.2015, Page 19
ÞAGOMLUGOÐU...
í þá gömlu góðu daga að þessu sinni er úr þriðja tölublaði Harmonikunnar,
fyrsta árgangs í maí 1987. Þar segir frá dansleik í Hótel Ljósbrá í Hveragerði
á vegum Harmonikuféiags Hveragerðis. Harmonikufélag Hveragerðis var
stofnað 27. nóvember 1983 og starfaði, þar til veturinn 1995. Birt með
egu leyfi fyrrverandi ritstjóra Harmonikunnar.
wm~~:
\ / / / M \ V \ jr
Dansleikur
Hveragerði
Það var í janúar síðastliðinn að
harmonikufélag Hveragerðis
hélt dansleik í hinu aldna hóteli
„Hótel Ljósbrá“, undirritaður
renndi austur af þessu tilefni ásamt
nokkrum félögum úr F.H.U., í
Reykjavík, sumir tóku með sér nikk-
urnar og léttu undir með Hvergerð-
ingum á dansleiknum. Hótel Ljósbrá
er ágætis hús fyrir slíka samkomu,
hvorki of strórt né of lítið og hefur
eitthvað það við sig sem hefur góð
áhrif á mann í viðbót við góðar mót-
tökur heimamanna. Verið getur að
niður fortiðarinnar nái til manns, því
hús þetta var heimkynni hinns kunna
harmoníkuIeikaraEiríks Bjarnasonar
frá Bóli í Biskupstungum sem látinn
er fyrir nokkrum árum, hann var
ávallt kenndur við þann stað og
nefndur Eiríkur frá Bóli. Um Eirík
mætti síðar skrifa ef einhver vildi vera
svo góður að safna saman helstu
heimildum og myndum, hann var
harmoníkuleikari og lagahöfundur
og á sínum tíma hélt hann tónleika
víða um land þrátt fyrir að hann væri
alblindur.
J á viðir hússins ættu að vera kunnir
tónum harmoníkunnar, og er líða tók
á kvöldið var margt manna saman
komið þarna og góð stemning, ekki
síst á dansgólfinu sem er stórt og gott,
það var ekki annað að heyra en Hver-
gerðingar eigi efnilega harmoníku-
leikara. Það vakti athygli mína hvað
margt ungt fólk var á dansleiknum,
það dansaði gömludansana af kunn-
áttu, ég er þess fullviss að ungt fólk
mundi finna sig mjög í gömludönsun-
um ef það léti það eftir sér að lita inn
á slíkar samkomur, en vera kann að
jákvæðan áróður þyrfti til svo slíkt
mætti verða. Harmoníkufélag Hvera-
í Hótel Ljósbrá
Frá vinstri: Heigi Þorsteinsson, Andrés Magnússon, Eirikur Htöðversson, Kristinn
Kristjánsson, Árni Jónsson og aftast til hœgri sést iKristján Ólafsson. Takið eftir bak-
sviði senunnar í Hótel Ljósbrá.
Frá vinstri: Stefán A. Þórðarson, Kristján Ólafsson og Gísli Brynjólfsson.
gerðis starfar af krafti, æfingar Anna Halldórsdóttir, eina konan í
fara fram undir stjórn Kristjáns landinu sem er formaður slíks félags-
Ólafssonar, formaður félagsins er skapar.
LOKAÐ Rakarastofan
frá 1. júlí til 16. júlí. ffO n . A
vegna sumarleyfis
Laugavegi 128, sími 23930
17