Harmonikublaðið - 01.12.2015, Qupperneq 19

Harmonikublaðið - 01.12.2015, Qupperneq 19
 ÞAGOMLUGOÐU... í þá gömlu góðu daga að þessu sinni er úr þriðja tölublaði Harmonikunnar, fyrsta árgangs í maí 1987. Þar segir frá dansleik í Hótel Ljósbrá í Hveragerði á vegum Harmonikuféiags Hveragerðis. Harmonikufélag Hveragerðis var stofnað 27. nóvember 1983 og starfaði, þar til veturinn 1995. Birt með egu leyfi fyrrverandi ritstjóra Harmonikunnar. wm~~: \ / / / M \ V \ jr Dansleikur Hveragerði Það var í janúar síðastliðinn að harmonikufélag Hveragerðis hélt dansleik í hinu aldna hóteli „Hótel Ljósbrá“, undirritaður renndi austur af þessu tilefni ásamt nokkrum félögum úr F.H.U., í Reykjavík, sumir tóku með sér nikk- urnar og léttu undir með Hvergerð- ingum á dansleiknum. Hótel Ljósbrá er ágætis hús fyrir slíka samkomu, hvorki of strórt né of lítið og hefur eitthvað það við sig sem hefur góð áhrif á mann í viðbót við góðar mót- tökur heimamanna. Verið getur að niður fortiðarinnar nái til manns, því hús þetta var heimkynni hinns kunna harmoníkuIeikaraEiríks Bjarnasonar frá Bóli í Biskupstungum sem látinn er fyrir nokkrum árum, hann var ávallt kenndur við þann stað og nefndur Eiríkur frá Bóli. Um Eirík mætti síðar skrifa ef einhver vildi vera svo góður að safna saman helstu heimildum og myndum, hann var harmoníkuleikari og lagahöfundur og á sínum tíma hélt hann tónleika víða um land þrátt fyrir að hann væri alblindur. J á viðir hússins ættu að vera kunnir tónum harmoníkunnar, og er líða tók á kvöldið var margt manna saman komið þarna og góð stemning, ekki síst á dansgólfinu sem er stórt og gott, það var ekki annað að heyra en Hver- gerðingar eigi efnilega harmoníku- leikara. Það vakti athygli mína hvað margt ungt fólk var á dansleiknum, það dansaði gömludansana af kunn- áttu, ég er þess fullviss að ungt fólk mundi finna sig mjög í gömludönsun- um ef það léti það eftir sér að lita inn á slíkar samkomur, en vera kann að jákvæðan áróður þyrfti til svo slíkt mætti verða. Harmoníkufélag Hvera- í Hótel Ljósbrá Frá vinstri: Heigi Þorsteinsson, Andrés Magnússon, Eirikur Htöðversson, Kristinn Kristjánsson, Árni Jónsson og aftast til hœgri sést iKristján Ólafsson. Takið eftir bak- sviði senunnar í Hótel Ljósbrá. Frá vinstri: Stefán A. Þórðarson, Kristján Ólafsson og Gísli Brynjólfsson. gerðis starfar af krafti, æfingar Anna Halldórsdóttir, eina konan í fara fram undir stjórn Kristjáns landinu sem er formaður slíks félags- Ólafssonar, formaður félagsins er skapar. LOKAÐ Rakarastofan frá 1. júlí til 16. júlí. ffO n . A vegna sumarleyfis Laugavegi 128, sími 23930 17

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.