Harmonikublaðið - 01.12.2015, Qupperneq 20

Harmonikublaðið - 01.12.2015, Qupperneq 20
Haustverkin hjá FHUR Ennþá einu sinni líður að jólum og áramótum. Af einhverjum óút- skýrðum ástæðum, þá verða þessi blessuðu ár sífellt styttri og styttri. Kannske ekki að furða, þar sem mér finnast vikurnar aðeins saman- standa af föstudögum og sunnudögum. Reyndar vil ég meina, að þessi mikli hraði tímans bendi til þess að lífið sé einfaldlega svona skemmti- legt. Og ekkert nema gott um það að segja. Hefðbundið vetrarstarf FHUR hófst með dansleik í Breiðfirðingabúð, laugardaginn 10. október. Var hann það vel sóttur, að ekki var laust við að gjaldkeri FHUR brosti út í annað, ef ekki bæði, þegar talið var upp úr kassanum í lokin. Að venju var dansinn stiginn frá því kl. 08:30 - kl. 01:00. Var það samdóma álit dansgesta að þetta hefði verið hið ágætasta ball. Sigurður Alfonsson tók fyrstu törnina. Ekki var að heyra að þar færi maður, sem ekki hefði leikið fyrir dansi árum saman. Sigurði til full- tingis voru þeir Sveinn Ingi á trommur, Helgi E. Kristjánsson á gítar og Hreinn Vilhjálmsson á bassa. Palli formaður og Þórleifur Finnsson tóku við af Sigurði og áttu ekki í erfiðleikum að halda uppi fjörinu. Þórir trommari og Ragnar Páll leystu þá Svein Inga og Helga af en Lára Björg söng. Stórdúettinn Hildur Petra og Vigdís luku síðan dansleiknum og héldur gólfinu vandræðalaust fullu til loka, ásamt þeim Sveini Inga, Helga og Hreini. Það er sveifla. Stefanía tekur Svenna til kostanna. Tjúttað og djœvað í Breiðfirðingabúð Víst er það svo, að allt orkar tvímælis þá gert er. Það verður alltaf svo að það sem einum þykir gott líkar öðrum miður. A það jafnt við um harmonikutónlist sem annað. Við því er ekkert að gera, annað en að reyna að hafa sem fjölbreyttast danslagaval á dansleikjunum, þannig Það vantaði eitthvað annað en plásið á nóvemberballinu. Næst var síðan dansleikur 21. nóvember. Var hann ekki eins vel sóttur, en engu að síður hin ágætasta skemmtun og var mikið dansað. Enda gott pláss á dansgólfinu og alveg tilvalið fyrir mikla dansara að láta gamminn geisa. Enn sem fyrr voru það félagar úr FHUR sem sáu um tónlistarflutninginn og fóru þeir á kostum. Þar hóf leik Garðar Olgeirs- son, sem stóð upp fyrir Gunnari Kvaran eftir hálfan annan tíma. Formaður SIHU gaf ekki síður vel á garðann að vanda og fékk einnig góðar undirtektir. Sveinn Sigurjóns lauk síðan ballinu á hefðbundinn hátt og þurfti ekki að ganga í verkin hans frekar en fyrri daginn. Helgi, Hreinn og Sveinn Ingi sáu um undirleik. Fleira er nú ekki á döfinni þetta árið, en níunda janúar á nýju ári verður aftur sett á fulla ferð og síðan er þorrablót 13. febrúar. Verður það auglýst enn frekar þegar þar að kemur. Eg vil þó góðfúslega árétta það, að öll okkar starfsemi byggist á því að áhugafólk um harmonik- una, tónlistina sem henni tengist, dansinn og allt annað sem henni fylgir mæti vel á þá viðburði sem haldnir eru. I starfsemi okkar í harmonikufélögunum gilda sömu lögmál og í annarri félagsstarfsemi, sama hvað stjórnirnar eru kröftugar og áhuga- samar, þá eru það hinir almennu félagar sem bera uppi starfið. 20 að sem flestir fái eitthvað við sitt hæfi. Nú í upphafi aðventu, vil ég senda öllum harmo- nikuunnendum sem og öllum öðrum er þetta ber fyrir augu, bestu óskir um notalega og góða aðventu og fyrir hönd FHUR óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla, og farsældar og gleði á nýju ári. Með kærri kveðju, Páll S. Elíasson form. FHUR Myndir: Lára Björg Jónsdóttir Ship o 'hoj, ship o 'hoj

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.