Harmonikublaðið - 01.05.2016, Qupperneq 4
Fannarhlíðarhátíðir
og unga fólkið
Á Fannahlíðarhátið HUV árið 2001 tók
ellefu ára stúlka upp þverflautuna sína,
ásamt samnemenda sínum og hófu þær
að leika dúett fyrir hátíðargesti. Þessi
unga stúlka var Sigríður Hjördís Ind-
riðadóttir (Sirrí) frá Kjaransstöðum og
félagi hennar Rut Berg Guðmunds-
dóttir. Sirrí hafði þá hafið nám í þver-
flautuleik hjá Helgu Kvam í Tónlistar-
skóla Akraness. Árið eftir lék Sirrí einleik
á sama sviðinu, en var þá með undirleik
af hljómdiski. Helgi E. Kristjánsson var
á þessari hátíð og lét þess getið að hann
vildi gjarnan annast undirleikinn fyrir
Sirrí, sem hann hefur gert allar götur
síðan, utan einu sinni að hann komst
ekki vegna anna, en þá hljóp Hreinn
Vilhjálmsson í skarðið. Sirrí hefur nú
leikið á öllum hátíðunum, eða alls í
fjórtán skipti og ekki er ólíklegt að
fimmtánda skiptið bætist við nú í sumar.
Sirrí hefir, auk flautuleiksins, leikið af
snilld á trommur frá 13 ára aldri með
danshljómsveit HUV og var fengin til
liðveislu við danshljómsveit Þingeyinga
sumarið 2015 og lék með þeim á
trommur. Á þeirri skemmtun lék hún
einnig einleik á þverflautuna. Sirrí var
við framhaldsnám í flautuleik í Belgíu
veturinn 2014-2015, en stundar nú nám
við Listaháskóla Islands. Hún hefir
sömuleiðis leikið einleik með Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
Gestur Friðjónsson ritari HUV
Meistari Bragi með unga fólkinu. Ljósm. Geir Guðlaugsson
Vetrarstarf á Héraði
Eins og undanfarin ár hafa félagar í Harmo-
nikufélagi Héraðsbúa leikið á miðvikudags-
kvöldum fyrir dansi í félagsaðstöðu eldri
borgara í Hlymsdölum á Egilsstöðum. Þátt-
taka hefur verið ásættanleg. Þeir sem hafa séð
um þetta af hálfu HFH eru þeir Jón Sigfús-
son, Sveinn Vilhjálmsson, Sigurður Gylfi
Björnsson, Hjalti Friðriksson og Kristinn
Jónsson. Á bóndadaginn fóru þeir Jón og
Sveinn og léku fyrir börnin í leikskólunum
Tjarnarlöndum og Skógarlöndum á Egils-
stöðum en þar voru haldin þorrablót fyrir
börnin. Á sömu skemmtun sýndu þau Jökull
Hlöðversson og Erla Salómonsdóttir gömlu
dansana íklædd þjóðbúningum. Ræddu þau
um búningana og dansana við börnin, sem
sýndu hvoru tveggja
mikinn áhuga og
spurðu margs eins og
barna er siður. Var
þetta hin ágætasta
stund og öllum þátt-
takendum til mikls
sóma. Á harmoniku-
daginn 7. maí verður
spilað í verslunum á
Egilsstöðum, sem og í Dyngju, sem er nýtt
hjúkrunarheimili aldraðra á Fljótsdalshéraði.
Hinn árlegi harmonikudansleikur HFH
verður haldinn í Valaskjálf 27. ágúst. Von-
andi tekst jafn vel til og í fyrra, þá breyttist
tíðarfarið úr köldu og blautu sumri í sól og
sumaryl, sem stóð fram að veturnóttum. I
fyrra mættu um 200 manns á dansleikinn.
Harmonikufélag Þingeyinga er búið að boða
komu sína eins og oft áður.
Jón Sigfusson formaður HFH
Harmonikufélag Reykjavíkur í fullu fjöri
Harmonikufélag Reykjavíkur verður 30 ára
næsta sumar og er undirbúningur í fullum
gangi. Dagurinn verður haldinn hátíðlegur
laugardaginn 28. maí nk. með tónleikum í
Ráðhúsinu og balli um kvöldið. Dagskráin
verður auglýst betur þegar nær dregur. Reynt
verðut að draga sem flesta að sviðinu sem
starfað hafa innan vébanda HR og víst má
telja að andi stofnandans, Karls Jónatanssonar,
muni svífa yfir vötnunum því nokkuð af því
efni sem flutt verður kemur úr hans ranni.
Auk undirbúnings þessarar afmælishátíðar
hefur ýmislegt á dagana drifið á árinu.
Nokkrir félagar lögðu í púkk á tónleikum
4
landsambandsins í Salnum í mars að
ógleymdum tónleikum á Græna hattinum í
febrúar. Þá spiluðu félagsmenn fyrir vistmenn
á Hrafnistu í Laugarási í febrúar á svoköll-
uðum „Geymslutón-
leikum“ og svo fyrir
dansi á Hrafnistu í
Hafnarfirði nú í apríl
á svokölluðu Kráar-
kvöldi. Og svo er
ýmislegt í bígerð sem
telst til fastra liða.
Gert er ráð fyrir að
félagar bretti upp
ermar úti á Granda á Hátíð hafsins og á Sjó-
mannadaginn, þá er gert ráð fyrir dansleik á
17. júní í Ráðhúsinu og harmonikuleik í
Árbæjarsafni 17. júlí í sumar. Olafur Briem