Harmonikublaðið - 01.05.2016, Blaðsíða 8
Veturinn hjá Félagi
harmonikuunnenda í Reykjavík
Árið 2016 hófst á dansleik þann 9. janúar.
Þórleifur Finnsson hóf leikinn og dró ekki af
sér, en var leystur af hálfum öðrum tíma síðar
af þeim félögum Reynir Jónassyni og Gunnari
Kvaran. Ekki varð þeim skotaskuld úr að halda
gestum við efnið þangað til Vindbelgirnir,
Hilmar og Friðjón tóku við og luku ballinu
um eitt leytið. Var þá af mörgum dregið.
Ómissandi voru þeir Hreinn Vilhjálmsson á
bassa og Helgi Eiríkur Kristjánsson á gítar,
auk þess sem Guðmundur Steingrímsson sló
taktinn. Þá má ekki gleyma Láru Björg Jóns-
dóttur sem söng með Þórleifi, en með þeim
trommaði trommari númer eitt hjá FHUR
og heiðursfélagi, Þórir Magnússon. Þá fékk
Helgi gítarleikari frí á meðan Ragnar Páll sá
um gítarleikinn með Þórleifl.
Undanfarin ár hafa Félag harmonikuunnenda
og Þjóðdansafélag Reykjavíkur haldið sam-
eiginlega árshátíð. Á því varð engin breyting
í ár. Eftir að 140 manns höfðu gætt sér á
ósviknum þorramat frá Magnúsi Margeirssyni
undir gamansögum Emils R. Hjartarsonar
fyrrum skólastjóra á Flateyri og Péturs Bjarna-
sonar fyrrum fræðslustjóra á Vestfjörðum,
byrjaði dansinn, sem Sigurður Alfonsson hóf,
en hann hefur verið í fríi frá dansspilamennsku
undanfarin á. Gólfið fylltist á svipstundu.
Formaður landssambandsins Gunnar Kvaran
var næstur á svið ásamt Reyni Jónassyni og
ekki veittist þeim erfitt að halda gestunum
við efnið. Eftir happadrættisdrátt var komið
að Þórleifi og Páli Elíassyni formanni. Þeir
léku og sungu ásamt Láru Björg, þar til Vind-
belgirnir spiluðu út blótið. Var mesta furða
hve margir voru í húsinu klukkan að ganga
tvö, eftir það sem á undan var gengið, en fólk
hafði ekki slegið slöku við í dansinum. Það
var skemmtileg tilbreyting að nokkrir valin-
kunnir Þingeyingar lögðu land undir fót og
lífguðu upp á blótið með nærveru sinni. Þá
má ekki gleyma Dalamönnum og Breið-
firðingum, sem brugðu sér af bæ í tilefni
dagsins. Það er ætíð til ánægju þegar félagar
úr öðrum félögum sjá ástæðu til heimsækja
bókstafstrúar harmonikuunnendur í höfuð-
staðnum. Eins og oft áður fengu gestir
þorrablótsins fyrri parta til að botna og voru
vegleg verðlaun í boði. Fyrripartarnir voru
fengnir hjá þeim „öryrkjum“ Kristjáni Run-
ólfssyni, Skagfirðingi í Hveragerði og Ragnari
Inga Aðalsteinssyni, Jökuldælingi í Reykjavík.
Nokkrir góðir hagyrðingar voru meðal gesta
og fjölmargir botnar bárust dómnefndinni.
Verðlaun fyrir besta botninn fékk Þing-
eyingurinn Reynir Jónasson. Fyrriparturinn
kom frá Kristjáni og hæfði vel meðalaldri
blótsgesta. Svona hljómaði verðlaunavísan
eftir að Reynir hafði botnað.
Kvennaband FHUR í ISnó. Halldóra, Eha, ÁsgerSur, GySa og Elísabet. 1 baksýn glittir íþá Helga Kristjáns, Eggert
Kristins, og Pétur Bjarna
Þegar lokast lífsins hlið
og lýkur dœgurþrasi.
A því verður einhver bið,
að ég lyfti glasi.
Þann 7. febrúar var blásið til skemmtifundar
í Iðnó, með bollukaffi, enda sjálfur bollu-
dagurinn daginn eftir. Þar kom hljómsveit
félagsins fram undir stjórn Reynis Jónassonar,
en hann hefur með aðstoð Sigurðar Alfons-
sonar séð um stjórnina í vetur. Hljómsveitin
lék létt og skemmtilega, sem áheyrendur
kunnu að meta. Ungur harmonikunemandi
Freyja Þórsdóttir heillaði fólk með frjálslegri
framkomu og góðri spilamennsku og sama
gerði Runólfur Bjarki Arnarson. Framtíðar-
fólk! Þá léku af eldri gerðinni Hilmar Hjart-
arson, Þórleifur Finnsson og Páll Elíasson.
Næsti dansleikur fór svo fram 19. mars. Þar
kom fram Hellishólabóndinn Garðar Olgeirs-
son og fipaðist ekki frekar en fyrri daginn.
Næst stigu á svið Dragaspilsdrauma
drottingarnar Vigdís Jónsdóttir og Hildur
Petra. Þeirra hafði verið beðið með eftir-
væntingu, eftir skemmtilega takta í október
og þær ullu ekki vonbrigðum. Sveinn Sigur-
jónsson leysti þær af um hálftólf og vafðist
ekki fyrir honum að halda dansgólfinu fullu
til loka. Þessi dansleikur var haldinn í skugga
sviplegs fráfalls Helga E. Kristjánssonar, sem
látist hafði tæpum hálfum mánuði áður. I
hans stað lék á gítar Edvin Kaaber. Hreinn sá
Dansinn stiginn i BreiSfirSingabúS