Harmonikublaðið - 01.05.2016, Side 9
Þau dönsuðu öllparna ‘ í dynjandi galsa, pau dönsuðu polka og
um bassann að venju og Sveinn Ingi Sigur-
jónsson lék á trommur. Síðasti dansleikur
vetrarins fór svo fram 16. apríl. Nú voru
kallaðir til þrír sem ekki höfðu getað leikið
fyrr í vetur. Einn þeirra, gjaldkeri SIHU
Sigurður Eymundsson hóf leikinn og honum
til fulltingis, með aðra harmoniku, var kom-
inn formaðurinn Gunnar Kvaran. Þeir léku
þar til Vindbelgirnir tóku við og léku næsta
klukkutímann. Þá var komið að Erlingi
Helgasyni, sem tókst léttilega að halda gólf-
inu fullu, með dyggri aðstoð kennara síns
Gunnars Kvaran, þar til Ingvar Hólmgeirs-
son tók við með sínu fólki og lauk ballinu.
Kristrún Sigurðardóttir söngkona og Þor-
valdur Skaftason gítarleikari og söngvari léku
með Ingvari. Það var hrein tilviljun að sami
harmonikuleikari lauk vetrinum í vetur eins
og á síðasta ári. Guðmundur Steingrímsson
var á trommum, Edwin Kaaber á gítar og
Hreinn Vilhjálmsson á bassa. Aðsókn á
dansleikina í vetur hefur verið minni en
síðustu ár og er það orðið verulega alvarlegt
áhyggjuefni. Má kalla það öfugþróun að eftir
því sem danskunnáttu þjóðarinnar fleygir
fram, skulu dansleikir vera að leggjast af.
Allir dansleikir félagsins hafa farið fram í
Breiðfirðingabúð. Harmonikudagurinn er
næstur á dagskrá 7. maí, en þá munu félagar
í FHUR leika víðsvegar um höfuðborgar-
svæðið í verslunarmiðstöðvum. Að því loknu
er smáhlé fram að „Nú er lag á Varm-
anlandi“, um verslunarmannahelgina.
Friðjón Hallgrímsson formaður skemmti-
nefndar FHUR
Ljósmyndir: Siggi Harðar
M
Yngvi Jóhannsson
f. 7. september 1935 - d. 30. mars 2016
Góður vinur okkar hjóna Yngvi Jóhanns-
son hefur nú kvatt og minnumst við hans
með mikilli hlýju. Ég kynntist honum fyrst
þegar Jón Sævar bróðir minn fór að gera
hosur sínar grænar fyrir systur hans Lilju
og enn betur eftir að Jakob, sonur hans og
Eliane, hóf að nema hjá mér harmon-
ikuleik 1978. Átti ég óteljandi margar
ánægjustundir heima við eldhúsborðið hjá
þeim hjónum að loknum hljómsveitaræf-
ingum með Jakobi hjá Félagi harmoniku-
unnenda í Reykjavík á fyrstu starfsárum
þess, en hann byrjaði mjög ungur að spila
með okkur. Yngvi og Eliane störfuðu af
miklum krafti í FHUR á þeim tíma, hún
við kaffisölu á skemmtifundum og fljótlega
tók Yngvi að sér formennsku félagsins um
nokkurra ára skeið. Sinnti hann því starfi
af einstökum dugnaði og sannaðist þar að
ekki þarf endilega tónlistarmenntun til
þess að láta gott af sér leiða á þeim vett-
vangi. Einnig gegndi Yngvi formennsku
fyrir Samband íslenskra harmonikuunn-
enda SIHU um tíma.
Við Vigdís eigum ógleymanlegar minn-
ingar með þeim hjónum í útilegum,
skemmtifundum og landsmótum félags-
manna í árdaga FHUR. Ekki má heldur
gleyma hversu góður fagmaður hann var
sem málari og enn búum við að verkum
hans þegar við fluttum inn í íbúðina okkar
1980.
Síðast hittum við Yngva nú í haust þegar
þau hjónin höfðu boðið okkur að tína hjá
sér rifsber. Þótti Yngva við vera heldur
smátæk í tínslunni og kom með risavaxna
málningarfötu, því greinar trjánna svign-
uðu undan vænum klösunum í fallegum
garðinum.
Við kveðjum Yngva með söknuði og
vottum Eliane og öllu hans fólki samúð
okkar.
Sigurður Alfonsson og Vigdís M. Bjarna-
dóttir
9