Harmonikublaðið - 01.05.2016, Qupperneq 13
Afi og Sirrý trommari ogflautuleikari í Fannahlíð 2014
Geir með nikkuna sem hann eignaðist eftir 40 ára afmœlið
Viðmœlandinn með fyrstu nikkuna. Davíð Guðmundsson frá Fagraskógi lék á heimasmíðaða trommu. Þetta varð að
duga 1951
Eru fleiri í fjölskyldunni í tónlist?
Allar fimm dætur okkar lærðu á píanó. Laufey
lærði meira og er söngkennari. Þuríður Elín
syngur í kirkukór Akraness. Anna Jóna sem
býr hér á Kjaransstöðum á dótturina Sigríði
Hjördísi Indriðadóttur. Hún er í Listaháskól-
anum í flautunámi. Sirrý hefur alla tíð tengst
Harmonikufélaginu sterkum böndum. Hún
hefur komið fram í Fannahlíð frá því hún var
ellefu ára. Það var rómuð samvinna hennar
og snillingsins Helga Kristjánssonar gítarleik-
ara á tónleikunum þar. Einnig hefur hún
leikið á trommur á böllunum þar.
Hvenær hóf Geir að starfa með HUV?
Eg man það nú ekki svo gjörla, en hins vegar
man ég að í ágúst 1985 fór ég á samkomu á
Varmalandi í Borgarfirði. Hún hófst með
tónleikum Lars Ek. Dansleikur var á dagskrá
að þeim loknum. Ingimar Einarsson bað mig
þá að starta ballinu. Eg var taugaóstyrkur að
spila með þeim Þorsteini R. Þorsteinssyni og
Þórði Högnasyni, sem höfðu verið undirleik-
arar með Lars á tónleikunum. Allt slapp þetta
þó til. Þetta var trúlega með því fyrsta sem ég
gerði á vegum HUV. Mest var ég að spila með
þeim Skagamönnunum Snorra Jóns, Jóni
Heiðari, Bjarna Aðalsteins, Katli Bjarna og
Guðmundi Samúelssyni. Hann reyndar fór
fljótlega til Reykjavíkur. Það var mikið spilað
á vegum dansklúbbsins Duna, sem hér var
gríðar vinsæll á tímabili. Það fóru jafnvel tvær
rútur inn að Hlöðum á böll. Það var hægt að
greiða niður danskennslu með ágóðanum af
þessu.
Hvenær byrjuðu útileguhátíðir HUV?
Fyrsta harmonikuhátíðin okkar var í Þverár-
rétt 1992. Við vorum þar öll fýrstu árin, en
þar var lítið um tjaldsvæði og öll loforð um
úrbætur voru svikin. Við reyndum fýrir okkur
í Brautartungu í Lundarreykjadal og við Faxa-
borg, en fluttum okkur í Fannahlíð 2001 og
erum búnir að vera hér síðan með einni
undantekningu. Það hefur gengið ágætlega í
Fannahlíð.
Eitthvað sem stendur upp úr þegar litið er
til baka?
Það sem stendur upp úr í hugum okkar hjón-
anna er hve marga góða vini við höfum eign-
ast í gegnum harmonikufólkið. Hve mörgu
yndislegu fólki við höfum kynnst um allt land.
13