Harmonikublaðið - 01.05.2016, Síða 15
beinunum, út í hinn stóra heim. Þannig
tóku nemendur hans fljótt út þroska í
tónlistinni, með því að spila fyrir aðra.
Og ekki mátti taka sig of hátíðlega, feil-
nótur máttu fljóta með í fyrstu og
úrskurðaði hann lagið „Vigdísarfært" (í
höfuðið á Vigdísi forseta) þegar það var
hæft til opinbers flutnings. Honum var
nefnilega mikið í mun að nemendur
hlytu manndómsvígslu á sviðinu sem
fyrst. Það var mesta furða hvað honum
gekk vel að unga út frambærilegum
harmonikuleikurum á öllum aldri og
hópum, enda átti hann gott safn af
skemmtilegum lögum.
Harmonikukvartettinn Smárinn var
dæmigert afkvæmi Kalla. Fjórir áhuga-
samir tónlistarunnendur með mismun-
andi bakgrunn en sameiginlegan áhuga
á hljóðfærinu, sóttu tíma og var raðað
saman í hóp. Til að kóróna allt saman
lagði hann til nafnið líka. Nafnið Smár-
inn var ekki tilviljun, tvö okkar bjuggu
í Kópavogi og Smáralind og Smáratorg
voru í byggingu. Hann taldi líklegt að
við gætum betur markaðssett okkur og
nikkurnar með þessu nafni í ört vaxandi
bæjarfélagi. Undir handleiðslu meistar-
ans í notalegu herbergi sem áður hýsti
borgarbókasafnið í Hólmgarði náði
Smárinn tökum á þó nokkrum lögum.
I hvert skipti sem flutningurinn þótti
takast nokkuð vel litum við til meistarans
sem gjarnan kvað upp sinn dóm með því
að segja: „Vigdísarfært, svei mér þá“.
Svo var það í byrjun árs 2014 sem okkur
tókst að koma út diski með þessu nafni,
en diskurinn hefur að geyma flest þeirra
laga sem hlutu þennan dóm í Hólmgarði.
Utgáfudaginn bar upp á 90 ára afmæli
Karls Jónatanssonar og tók hann við
fyrsta eintakinu og Vigdís Finnbogadóttir
því næsta. Við þökkum læriföður okkar
og vini fyrir að opna fyrir okkur heim
harmonikunnar.
Ólafur, Eyrún, Guðný og Jón Þór.
Yngvi Jóhannsson
f. 7. september 1935 - d. 30. mars 2016
Yngvi Jóhannsson málarameistari fæddist
7. september 1935 að Hólakoti í Gríms-
nesi. Hann varð aldrei frægur harmon-
ikuleikari, en harmonikuunnandi varð
hann. Hann lagði hins vegar mikið af
mörkum í þessum geira menningarinnar
á árunum milli 1983 til 1993. Það var í
tengslum við son hans Jakob, sem nam
harmonikuleik hjá Sigurði Alfonssyni.
Yngvi og kona hans Elíane Þorláksdóttir
sýndu þessu áhugamáli sonarins mikinn
og einlægan áhuga. Þetta leiddi til þess
að Yngvi var kjörinn í stjórn Félags
harmonikuunnenda í Reykjavík og síðar
formaður félagsins. Yngvi var ákaflega
faglegur í öllu sem snerti félagsstarfið,
tillögugóður og heill í sínum störfum fyrir
félagið. Sem formaður félagsins var hann
fljótlega farinn að láta til sín taka á vegum
landssambandsins. Hann var kjörinn
formaður þess á landsmótinu á Laugum
í Reykjadal 1990 og gegndi því þar til á
landsmótinu á Egilsstöðum 1993. Sem
formaður átti hann stóran þátt í að fá
hingað til lands af tilefni 10 ára afmæli
SIHU 1991, fjóra harmonikuleikara frá
Svíþjóð. I þeim hópi voru m.a. Anders
Larsson og Annika Andersson, sem bæði
voru þá á hraðri leið upp frægðarstigann
í heimalandinu. Bæði eru þau í dag skín-
andi stjörnur í Svíþjóð. Þetta var fjáröfl-
unarverkefni á vegum SIHU. Þá var leitað
til Yngva og Elíane varðandi aðstoð við
Tatu Kantomaa, þegar hann var að koma
sér fyrir í Reykjavík á tíunda áratugnum.
Það mátti segja um Yngva hvort sem átt
var við málningarvinnuna eða annað, sem
hann tók að sér, það þurfti ekki að ganga
í verkin hans. Fyrir allt þetta standa
harmonikuunnendur í mikilli þakk-
arskuld við Yngva Jóhannsson. Hann lést
í Reykjavík 30. mars. Fjölskyldu hans eru
hér með færðar innilegar samúðarkveðjur
frá Sambandi íslenskra harmonikuunn-
enda.
F.h. Sambands íslenskra harmonikuunn-
enda, Gunnar Kvaran
Harmonikusafn
Ásgeirs S. Sigurðssonar
býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á
Byggðasafni Vestfjarða.
Sími: 456 3485 og 844 0172.
Netfang: assigu@intcrnet.is Veffang: www.ncdsti.is
Byggðaiítfin
15