Harmonikublaðið - 01.05.2016, Qupperneq 16

Harmonikublaðið - 01.05.2016, Qupperneq 16
Að vestan Héðan af Vestfjörðum er allt gott að frétta. Veturinn hefur verið okkur hagsæll, snjólétt og miklar stillur og sumarið er á næsta leiti. Starfsemi Harmonikufélags Vestfjarða hefur verið með hefðbundnum hætti í vetur. Félagar hafa spilað við ýmis tækifæri á félagssvæðinu eins og gert hefur verið í gegn um tíðina. Félagar hafa komið saman hálfsmánaðarlega til æfinga og að spila ný og gömul lög, eins og til að liðka sig fyrir landsmótið á næsta ári og harmonikudaginn 7. maí n.k. Harmon- ikufélag Vestfjarða hefur samþykkt að halda næsta landsmót á Isafirði 29. júní- 2. júlí 2017, undirbúningur fer hægt af stað en þegar líður á haustið munum við hefja starfið að fullu, fáum þá til liðs við okkur ýmsa dugn- aðar menn og konur á svæðinu því að mörgu er að hyggja. I ár verður Harmonikufélag Vestfjarða 30 ára en það var stofnað 16. nóvember 1986. Frum- kvöðull að stofnun félagsins var Asgeir Sig- urðsson sem var formaður í 22 ár, fyrirhugað er að halda hljómleika í tilefni þessara merku tímamóta síðar á árinu. Aðalfundur félagsins vegna 2015 var haldinn sunnudaginn 13. mars s.l. í húsi Kiwanis- klúbbsins Bása á Isafirði (Þeir hafa lánað H.V. húsið til fundarhalda og til margvíslegra viðburða sem félagið hefur staðið fyrir, það hefur verið félaginu ómetanlegt.) Fundurinn var vel sóttur, auk hefðbundinna aðal- fundarstarfa spiluðu nokkrir félagar skemmtileg lög sem þeir hafa verið að æfa í vetur og að síðustu var boðið upp á kaffi- veitingar. Stjórn félagsins er þannig skipuð Karitas M. Pálsdóttir formaður, Magnús Reynir Guðmundsson varaformaður, Sig- ríður Gunnarsdóttir ritari, Hólmgeir Pálmason gjaldkeri, Messíana Marsellí- usardóttir meðstjórnandi, í varastjórn eru Elínbjörg Snorradóttir og Sigrún Sig- urðardóttir. Bestu sumarkveðjur, Karitas M Pálsdóttir Ljósm. Karitas Pálsdóttir Villi Valli ogBaldur. Tveir góðir að vestan Tíðindi úr Skagafirði Nú er ný lokið sýningum á skemmtidagskrá félagsins sem nefnist Manstu gamla daga. Þessi skemmtun er haldin á hverju vori og er þetta í 6. sinn sem hún er haldin. Að þessu sinni voru tekin fyrir árin kringum 1970. Vinsæl- ustu dægurlögin, fréttir og gamansögur þess tíma úr héraðinu. Æfingar hófust í byrjun febrúar og voru sýningar um miðjan apríl, tvær á Mælifelli á Sauðárkróki og ein í Höfða- borg á Hofsósi. Var sýningunum vel tekið og mættu á þriðja hundrað manns. Hljóðfæraleikarar voru Jón St. Gíslason harm- onika, Guðmundur Ragnarsson og Sigfús Benediktsson gítar, Jóhann Friðriksson trommur og Margeir Friðriksson bassi. Söngv- arar voru Guðrún Helga Jónsdóttir og Róbert Ottarsson, sögumaður Björn Björnsson. Þessi skemmtidagskrá, eins og þær fyrri, var tekin upp og verður til á mynddisk, sem verður m.a. til sölu yfir Jónsmessuhelgina á Steins- stöðum í júní. Aðalsteinn Isfjörð og Jón St. Gíslason spiluðu fyrir heldri borgara á Þorrablóti í Ljósheimum. Þá var Aðalsteinn dltækur á nokkrum jólahlað- borðum og ýmsum uppákomum í vetur. Fjölskylduhátíð harmonikuunnenda í Skaga- 16 firði verður nú haldin í annað sinn að Steins- stöðum 24.-26. júní í sumar. Sérstakir gestir helgarinnar verða félagar úr Harmonikufé- lögum Rangæinga og Selfýssinga. A Steinsstöðum er frábær aðstaða, ferðaþjón- usta sem býður upp á gistingu, rúmgott svæði fyrir húsbíla, sundlaug og fleira. Þeir sem hafa hug á gistingu á gistiheimilinu um Jónsmessu þurfa að panta í tíma hjá Rúnari í síma 899- 8762. Svo vonumst við eftir góðu veðri og hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Með sumar kveðjufb. FHS Gunnar R Agústsson

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.