Harmonikublaðið - 01.05.2016, Síða 21
ursson
Höfundur lagsins í blaðinu heitir Ágúst
Pétursson og fæddist 29. júní 1921 að Hall-
gilsstöðum í Þistilfirði. Hann ólst þar upp til
átján ára aldurs er hann flutti til Vestmanna-
eyja. Þá var hann farinn að leika fyrir dansi á
harmoniku. I Vestmannaeyjum lærði Ágúst
húsgagnasmíði, en við þá iðn starfaði hann
ætíð síðan. Með Gústa í Eyjum lék m.a. Jenni
Jóns, sem síðar átti einnig eftir að verða þjóð-
kunnur lagasmiður. Ágúst flutti til Reykja-
víkur 1945 og fljótlega hóf hann að leika á
dansleikjum og nú í samvinnu við Jenna, sem
lék á trommur og Jóhann Eymundsson
harmonikuleikara, en þeir félagar léku árum
saman á dansleikjum í Skátaheimilinu við
Snorrabraut. Ágúst hóf snemma að setja
saman lög, en þegar danslagakepppni SKT
hófst upp úr 1950, varð hann þjóðkunnur.
Brillinatíngreiddir töffarar styttu tangósporin
og rauluðu Æskuminningu í eyrað á kærust-
unni og það var að minnsta kosti einn Þórður
sjóari um borð í hverjum síldarbát og þeir
voru á þriðja hundraðið. Ljóðið fallega við
Pólstjörnuna orti Kristján frá Djúpalæk, en
þeir Ágúst voru sveitungar. Ágúst var fyrsti
ritari SIHU, en hann var einn af stofnendum
Félags harmonikuunnenda í Reykjavík og
góður og vinsæll félagi alla tíð. Ágúst fékk
margar viðurkenningar fyrir lög sín, meðal
annars var Æskuminning valið næst besta
íslenska danslagið 1953. Ágúst bjó í Kópavogi
frá 1951. Þar átti hann sitt heimili alla tíð
ásamt eiginkonu sinni Guðrúnu Kristjáns-
dóttur og þremur börnum, Hörpu, Omari
ogÁgústu Sigrúnu. Ágúst lést 28. júlí 1986.
Friðjón Hallgrímsson
Verið velkomin á
Harmonikuhátíð Qölskyldunnar
í félagsheimilinu Asbyrgi, Laugabakka Miðfirði
sem haldin verður 17. -19. jtíní 2f)16
.. ~ ■.~ > -
Harmonikufélagið Nikkólína
og Harmonikuunnendur í Húnavatnssýslum WLjmgm
Laugardagskvöld: Hljómsveit Sveins Sigurjónssonar.
Skemmtidagskrá, happdrætti og kaffihlaðborð
á laugardeginum frá kl. 14:00.
Aðgangseyrir yfir helgina kr. 6.000.-
Nánari upplýsingar gefa
Melkorka s. 434-1223 / 869-9265
og Sólveig s. 452-7107 / 856-1187.
21