Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.10.2020, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 07.10.2020, Blaðsíða 22
Það voru þýðir tónar sem ómuðu um Bókasafn Sand- gerðis þegar bassaleikarinn Sigmar Þór Matthías- son, ásamt þeim Ásgeiri Ásgeirssyni (oud og önnur strengjahljóðfæri), Hauki Gröndal (klarinett), Matthíasi Hemstock (trommur) og píanóleikaranum Inga Bjarna Skúlasyni, léku við hvern sinn fingur á tónleikum Jazzfj- elags Suðurnesjabæjar sem haldnir voru í Bókasafni Sandgerðis í síðustu viku. Á tónleikunum var frumflutt frumsamið efni þar sem áhrifa austrænnar þjóðlagatónlistar og annarrar heimstónlistar gætti í bland við nútímadjass en Sigmar Þór hefur hafið undirbúning hljómplötu sem ber vinnuheitið Metaphor og er áætlað að gefa út í byrjun næst árs. Sigmar gaf út sína fyrstu sólóplötu, Áróra, árið 2018 og hlaut sú plata tvennar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokki djass- og blústónlistar. Jazzfjelag Suðurnesjabæjar stendur reglulega fyrir ýmiss konar og ekki var annað að sjá en gestir tónleikanna kynnu vel að meta tónlistina og stemmninguna sem Sigmar og félagar göldruðu fram enda afburða færir tónlistarmenn þar á ferð. Nútímadjass í Bókasafni Sandgerðis Halldór Lárusson, skólastjóri Tónlistarskóla Sandgerðis, er helsta driffjöður Jazzfjelags Suðurnesjabæjar. Bassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson vinnur að gerð nýrrar hljómplötu og lék frumsamið efni af henni. Tónleikagestir nutu þess sem ómaði um sali bókasafnsins. Te xt i o g m yn di r: J óh an n Pá ll Kr is tb jö rn ss on | jo ha nn @ vf .is 22 // vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.