Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.10.2020, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 07.10.2020, Blaðsíða 18
Þá þessar línur eru ritaðar er hinn fegursti haustdagur með einstakri litarskrúð. Ég horfi út í garðinn minn, lotningarfullur fyrir þeim atburðum sem eiga sér stað. Hneggið í svartþrestinum gefur til kynna, að hann sé á varðbergi yfir utanaðkomandi vá. Kettir ná- grennisins ögra honum og aðrir meðbræður hans í hópi fugla eru ekki allir honum þóknanlegir. Þess á milli tínir hann aldin af greinum ilmreynisins, oft í félagsskap við aðra þresti sem fá tímabundin leyfi þá stundina. Hin ástarþrungna söngrödd sem við fáum að njóta á vormorgnum er nú lágstemmd, en bregður þó fyrir öðru hverju. Hvarvetna má líta aldin á trjám og runnum. Rósagarðurinn skartar einstöku blómum en þó aðallega aldinum, afrakstur þess að að baki er yndilegt sumar með mikilli blómgun, hefði kófið ekki lagt stein í götu okkar, hefði sumarið talist fullkomið hér sunnanlands. Nú er sá tími þá plöntur búa sig undir vetrardvala. Þær skynja haustið löngu áður en við sjáum litarbreytingar á þeim, líklega um leið og dag tekur að stytta. Fjöl- ærar plöntur sem vaxa í tempraða beltinu á jörðinni þurfa að kunna undirbúa sig fyrir veturinn, annars lifa þær ekki af. Þær þurfa að mynda blóm nógu snemma svo fræin nái að þroskast og tré og runnar þurfa að flytja afurðir ljóstillífunnar í öruggari geymslu, í stofninn eða ræturnar. Þær fella laufblöðin, þó ekki fyrr en þær hafa lokað sárinu sem myndast, svo greinar og stofnar haldist ekki opnir fyrir vatnstapi. Plöntur búa yfir líffræðilegri klukku sem sólar- ljósið stillir af. Kerfið allt er flókið og eilífur vettvangur mannanna til að hafa áhrif á með tilbúinni birtu, hita og næringu. Haustlitadýrðin er þar ekki undanskilin. Hún er til- komin vegna efnahópa í grænu- kornum blaðgrænunnar, og safa- bólum plöntufrumna. Á haustin skynjum við mest rauða og gula liti á blöðunum. Styrkleiki litanna er fer eftir sólaljósinu og hitasveiflum. Ef dagshiti á haustin er hár og nætur- hiti miklu lægri verða rauðir litir áberandi. Plantan sjálf býr yfir einnig yfir erfðaeiginleikum sem einkenna hennar haustliti. Sumarveðráttan hefur lykiláhrif Sumarveðráttan hefur lykiláhrif á afkomu plantna næsta árs. Á þeim tíma safnar hún orku og vexti til framhaldslífs. Köld sumur, sólarlítil og rigningasöm draga úr viðgangi plantna, þær eru ver undirbúnar undir vetrahvíld og upprisu aftur að vori. Mörg slík sumur geta því riðið þeim að fullu. Eftir einstakt sumar með mikilli blómgun megum við eiga von á enn meiri fegurð í ríki náttúr- unnar að sumri komanda, svo fremi náttúruöflin snúi ekki af leið. Á vormánuðum 2019 var fengin til afnota garðspilda í skrúðgarðinum og eyrnamerkt æskunni. Hugmyndin var að kynna hana fyrir gildi rækt- unar til nytsemda og upplifunnar. Málið var auðsótt enda grunnurinn hér góður, leikskólar metnaðarfullir og bæjarfélagið jákvætt. Í forsvari var Suðurnesjadeild Garðyrkju- félags Íslands í náinni samvinnu við leikskólann Tjarnarsel. Þessi spilda, kölluð Aldingarður æskunnar, hefur á tímabilinu tekið miklum breytinum. Aðkoman var slík, að mikið hreinsunarstarf lá fyrir til að fá notið þess sem þegar var í lagt. Fallegur setgrágrýtissteinn verður kennileiti garðsins til frambúðar, nú merktur skjöldum í bak og fyrir. Það er töluverð vinna sem liggur í að halda slíkri spildu við. Það þarf að hreinsa burt illgresið, og verja plöntur gegn áhlaupi bæði vetur og vor. Höfundur fékk því til fulltingis Rótarýklúbb Keflavíkur til að leggja hönd á plóg, enda þar fyrir mann- auður til að takast á við verkefni sem krefst líkamskrafta og hugvits. Snarrótarkögglum, arfa og öðrum ill- gresisplöntum hefur nú verðið þeytt í sífellt atorkusamari jeppakerru höf- undar, jarðvegur bættur og plantað í garðinn haustlaukum, sumarblómum og nú í sumar 20 nýjum rósayrkjum sem öll hafa blómgast og fengið meðbyr í upphafi. Rósirnar hafa verið merktar á einfaldan hátt, en gefandi til upplýsinga fyrir áhuga- sama. Þau ávaxtatré sem gróðursett voru, hafa fengið sérstaka umönnun og fá hlífðarföt yfir veturinn. Sígrænir runnar augnayndi Við höfum fengið styrki til að sinna þessu verkefni, þar með talið veg- legan styrk úr verkefnasjóði Rótarý- umdæmisins á Íslandi auk þess um- hverfistyrk frá Krónunni. Á döfinni er að taka neðsta hluta garðsins til endurskipulags með því að moka þar út jarðvegshroða og setja betri í staðinn, planta síðan sígrænum runnum af ýmsum gerðum sem getur orðið mikið augnayndi, ef vel heppnast. Rótarýfélagar minntust þess á dögunum í orði og verki, að þeir eru verndarar þessa verk- efnis með því að hreinsa illgresi úr garðinum, planta haustlaukum og hengja síðan á bakhlið steinsins ofannefnda skilti, hannað af einum félaga klúbbsins þessu til áréttingar. Ætíð eru leikskólabörnin á Tjarna- seli tilbúin að leggja okkur lið við verkefnið með sínum glaðværa opna hug. Þau ljúka nú undirbúningi vetr- arhvíldarinnar með gróðursetningu haustlauka, sem birta munu litskrúð sína að vori okkur öllum til dýrðar. Konráð Lúðvíksson, læknir. „Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga lýsir þungum áhyggjum vegna stöðu atvinnumála í Sveitar- félaginu Vogum og á Suðurnesjum. Samkvæmt spá Vinnumálastofn- unar fyrir ágúst 2020 er gert ráð fyrir að atvinnuleysi, almennt og minnkandi starfshlutfall, telji um 17% á Suðurnesjum og 13% í Sveitarfélaginu Vogum. Útlit er fyrir að staðan versni enn frekar á komandi vikum og mán- uðum en frá því þessar tölur voru birtar hafa borist upplýsingar um fjöldauppsagnir á svæðinu. Fjöldi einstaklinga á atvinnuleysisskrá er hvergi meiri á einu landsvæði en á Suðurnesjum,“ segir í bókun bæjar- ráðs Sveitarfélagsins Voga frá því á dögunum í tengslum við yfirlit Vinnumálastofnunar um atvinnu- leysistölur í ágústmánuði. Í ljósi þróunar á heimsfaraldri Covid-19 og þeirra sóttvarnaað- gerða sem stjórnvöld hafa gripið til, þá er ástand og horfur í atvinnu- málum nú enn meira áhyggjuefni en var fyrir nokkrum vikum síðan. Eftir að heldur birti til á sumar- mánuðum þá standa nú fjölmörg atvinnufyrirtæki frammi fyrir samdrætti í starfsemi þeirra, sem veldur tekjufalli og hefur í för með sér fækkun starfsfólks. Framundan er erfiður tími fyrir fjölmarga ein- staklinga og heimila vegna atvinnu- missis og óvissu í atvinnu- og fjár- málum, segir jafnframt í bókuninni. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga beinir ákalli til ríkisstjórnar og al- þingismanna um að vinna með sveitarfélögum á Suðurnesjum og aðilum vinnumarkaðarins að því að leita allra mögulegra leiða til þess að mæta þeim miklu áskorunum sem samfélagið stendur frammi fyrir og leita leiða til að koma hjólum flug- tengdrar starfsemi í gang að nýju. Bæjarráð skorar jafnframt á ríkis- valdið að styðja við sveitarfélagið vegna mikils samdráttar í tekjum þeirra, þannig að hægt verði að halda uppi eðlilegri þjónustu við íbúa. Neyðarstig almannavarna hefur áhrif á heilsugæsluna Flestir læknatímar á dagtíma á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suður- nesja verða hringdir út. Þetta er gert vegna neyðarstigs almannavarna sem tók gildi á miðnætti á sunnudagskvöld. Fyrirkomulagið verður þar til annað verður ákveðið. Slysa- og bráðamóttaka verður áfram opin allan sólarhringinn og lækna- vaktin síðdegis og um helgar verður áfram opin en skjólstæðingar eru beðnir um að hringja á undan sér í síma 422-0500 og bóka tíma. Þjónustan gæti tekið breytingum eftir því sem á líður, þannig að rétt er að fylgjast vel með tilkynningum á Facebook-síðu HSS og á www.hss.is næstu daga, segir í tilkynningu sem Heilbrigðisstofnun Suðurnesja birti á heima- síðu sinni. Aldingarður æskunnar undirbúinn fyrir vetrarhvíld Framundan er erfiður tími fyrir fjölmarga einstaklinga og heimili Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga lýsir þungum áhyggjum vegna stöðu atvinnumála í Sveitarfélaginu Vogum og á Suðurnesjum FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS 18 // vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.