Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.10.2020, Síða 8

Víkurfréttir - 07.10.2020, Síða 8
AGNAR GUÐMUNDSSON vildi bæta eigin heilsu og þann 6. febrúar 2016 var Einar Skúlason (Gönguklúbburinn Vesen og Vergangur) með ferð um Prestastíg sem er forn þjóðleið milli Hafna og Grindavíkur. „Við hjónin ákváðum að skrá okkur í þá ferð og satt best að segja þá ætlaði ég alls ekki að fara enda veður vont og vetrarríki mikið. Ég hélt ég myndi ekki lifa af þessa ferð en áhuginn var kviknaður og ég fór í fjórtán aðrar ferðir vítt um breitt um Reykjanesið það sem eftir lifði febrúarmánaðar 2016,“ segir Agnar þegar hann er spurður um hvað hafi vakið áhuga hans á fjallgöngum og útivist. – Hvernig skipuleggur þú þínar gönguferðir? Almennt tek ég þátt í skipulögðum ferðum, helst þar sem einhver djörfung eða fíflaskapur ræður för. Ef ég skipulegg ferðir á eigin vegum þá er eitthvað sem hefur kveikt áhuga minn, t.d. sögulegir atburðir fyrri tíma, lítt þekktar og ókannaðar þjóðleiðir eða ég hef séð eitthvað í fyrri ferðum sem þarfnast nánari skoðunar. Þá er byrjað að skipuleggja ferðina á korti, hnit sett í staðsetn- ingartækið, veður og birtuskilyrði metin fyrir ferðina og svo bara lagt í‘ann. – Hvernig er best að búa sig fyrir gönguferð? Það fer alfarið eftir aðstæðum, veð- urspá og lengd göngu. Almennt huga ég að klæðnaði, öryggisþáttum, raf- hlöðum fyrir tæki og mat sem dugar þó eitthvað komi upp á. – Hvernig klæðir þú þig fyrir göngur? Góðir skór, ull og skel eru lykilatriði – dúnúlpa er líka með ef veður er þurrt og kalt. – Hvað skiptir mestu máli í búnaði? Skór, skór sem passa manni og halda manni þurrum. Í raun það eina sem maður þarf að hafa í lagi áður en maður byrjar að ganga, svo bætir maður við búnað eftir því sem þarfirnar kvikna. Gott að vera með skel úr öndunarefni ef von er á votviðrum, brodda í snjó/klaka og góðan ullarfatnað. – Hvað er í bakpokanum? Það er höfuðljós, húfa, vettlingar, Íbúfen, hælisplástrar, nokkrir pokar og pappír, sokkapar til skiptanna, auka rafhlöður fyrir höfuðljósið. Ekki langt undan er skelin og annar búnaður. – Hvernig nesti ertu með á gönguferðum? Gott brauð með smjöri, kæfu, ham- borgarhrygg, eggjum og sultu, hálfur lítri af vökva fyrir hverjar tvær klukkustundir nema nóg af vatni sé á leiðinni, þá þarf minna. Stundum kjötsúpa eða hakk og spaghetti í hitaboxi. Fyrir fjallgöngur er betra að vera með orkuríkara nesti sem er léttara. skipta öllu máli í gönguferðum – segir Agnar Guðmundsson sem fékk mikinn áhuga á gönguferðum og fjallgöngum árið 2016. Frá göngu um Skógfellsstíg með Gönguhópi Suðurnesja í vor. Mynd: Styrmir Jónsson Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Mynd ofan af Kirkjufelli og sést niður til Grundarfjarðar. 8 // vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.