Feykir


Feykir - 12.06.2019, Qupperneq 1

Feykir - 12.06.2019, Qupperneq 1
Við þjónustum bílinn þinn! Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570 Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða- menn með áralanga reynslu. Nýttu þér netverslun Skoðaðu vöruúrvalið á lya.is 23 TBL 12. júní 2019 39. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BLS. 6–8 BLS. 8 Golfklúbburinn Ós á Blönduósi Margmenni á golfdegi í blíðskaparveðri BLS. 10 Dvalarheimilið Sæborg á Skagaströnd heimsótt „Þið getið tekið af mér æruna, en húsið stendur“ BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227 Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta BORGARFLÖT 19 550 SA ÐÁRKRÓKUR & 8 9 5 27 Meirapróf - Vinnuvélanámskeið Ökunám - Endurmenntun Birgir Örn Hreinsson Ökukennari S: 892-1790 bigh@simnet.isHÁEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 4400 HEIMILISMATUR Í HÁDEGINU Heitur matur kr. 1.490 | Súpa og brauð kr. 1.100 www.ommukaffi.is Kristín Árnadóttir á Borðeyri hleypir lesendum í Bók-haldið Híbýli vindanna og Lífsins tré í miklum metum Norðurstrandarleið, eða Arctic Coast Way, var opnuð með formlegum hætti sl. laugardag, í báða enda, annars vegar á mótum Þjóðvegar 1 og Hvammstangavegar þar sem Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra og Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norður- lands, klipptu á borða og hins vegar við afleggjarann inn á Bakkafjörð þar sem þeir Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis og Árni Bragi Njálsson, fulltrúi sveitarstjórnar Langanesbyggðar, munduðu skærin. Á heimasíðu Markaðs- stofu Norðurlands kemur fram að leiðin hafi verið í þróun í meira en þrjú ár og því afar ánægjulegt að þessum áfanga hafi verið náð. Eins og Feykir hefur greint frá hefur leiðin þegar vakið mikla athygli erlendis en ferðavefurinn Lonely Planet valdi leiðina sem þriðja besta áfangastað í Evrópu á þessu ári. Eftir borðaklippingu var haldið í safnaðarheimili Hvammstangakirkju þar sem haldnar voru tölur áður en gestum var boðið kaffi og dýrindis terta. Í máli Sigurðar Inga Jóhannssonar kom fram ánægja hans með þetta verkefni sem hann hefur mikla trú á framtíðinni og þá miklu möguleika sem í henni felast. Sló hann jafn-framt á þær vonir heima-manna að þar með væri barátta þeirra fyrir bættum vegi um Vatnsnesið á enda. „Leiðin er einstök og leiðir ferðamann- inn í gegnum ólík svæði, sjávarþorp og blómlegar sveitir, ósnortin kynngimögn- uð náttúra, á köflum afskekkt. Það er þessi hluti af markaðssetningunni, fjarri alfaraleið með vegum sem eru þar af leiðandi þannig og það er verið að markaðssetja þá. Það er staðreynd sem getur verið tvíbent. Ég veit vel að margir sveitarstjórnar- menn og íbúar telja að nú sé komin veruleg pressa á að forgangsraða með allt öðrum hætti og setja alla peninga í þessa 900 kílómetra. Ég skil það vel en það þarf líka að hugsa hvað er verið að mark- aðssetja,“ sagði samgöngu- ráðherrann. „Opnun Norðurstrandar- leiðar er merkur áfangi og gaman að því að hún skuli byrja hér við Hvammstanga en það sem gerir þetta verkefni einstakt er að það byrjaði sem grasrótarverk- efni og hugmyndin er komin frá ferðaþjónustufyrirtækj- unum sjálfum. Það er oft góð formúla fyrir því sem á að heppnast vel að hugmyndin komi frá grasrótinni,“ sagði Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Ólíkt Sigurði Inga hafði hún verulegar áhyggjur af vegakerfinu og nefndi Vatnsnesveginn sérstaklega. „Það er mjög mikilvægt að stjórnvöld beiti sér fyrir því að efla innviði og standi við fögur fyrirheit í innviðaupp- byggingu með því að lagfæra og helst endurbyggja Vatns- nesveginn. Það þarf að gera útskot og útsýnisstaði og mér fannst þú tala svolítið léttvægt um áhyggjur okkar Sigurður. En það þarf sannarlega að laga þetta.“ Ný heimasíða, arctic- coastway.is, hefur verið sett í loftið þar sem finna má allt það helsta sem hægt er að sjá og gera á Norðurstrandar- leiðinni. /PF Norðurstrandarleið formlega opnuð Mögnuð leið með mikla möguleika í ferðamannabransanum Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra og Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands klippa á borða við upphaf Norðurstrandarleiðar við Hvammstanga. Björn H. Reynisson, verkefnastjóri áfangastaðaáætlunar og rannsókna hjá MN og Christiane Stadler, verkefnisstjóri Norðurstrandarleiðar, strekkja á borðanum. MYND: PF

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.