Feykir - 12.06.2019, Qupperneq 2
Nú er biðin langa á enda
með opnun sýndarveruleika
á Sauðárkróki um baráttu
Sturlunga um völdin á Íslandi
á 13 öld. Opnunarhátíð
verður nk. föstudag þar sem
allir eru velkomnir að skoða
húsakynnin og sjá hvernig
sýning um Sturlungaöldina
er upp sett.
„Við ætlum að halda
opnunarhóf á föstudaginn og
bjóðum fólki að koma í
heimsókn til okkar og skoða
fyrst og fremst hvað búið er að
gera hér inni, framkvæmdir og
hvernig þetta allt saman lítur
út. Fólk getur komið á tíma-
bilinu 3-6 á föstudaginn og allir
velkomnir,“ segir Áskell Heiðar
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri
1238 í samtali við Feyki í gær.
Boðið verður upp á kaffi-
veitingar og geta gestir rölt um
og spjallað en klukkan fimm
verður slegið í glas þar sem
stutt og einföld opnunarathöfn
fer fram þar sem Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra, opnar sýninguna
formlega. Strax næsta dag
verður opnað klukkan 8 og
hefðbundinn rekstur hefst.
Áskell Heiðar segir að búið
sé að kynna þessa veruleika-
sýningu fyrir öllum ferðaskrif-
stofum á Íslandi og fengið
margt fólk í heimsókn. „Margir
hafa sýnt þessu áhuga þannig
að við erum alveg handviss um
að það kemur fólk. En auðvitað
eru menn búnir að gera stóru
plönin varðandi áætlunarferðir,
með hópa og annað í sumar.
Það tekur tíma að koma þessu í
allar áætlanir og þessháttar.
Þetta verður áhugavert og
skemmtilegt og nú viljum við
bara umfram allt að fólk hérna
heima komi og kíki á hvað búið
er að gerast í húsinu.“ /PF
Allir hlutir, að minnsta kosti flestir, hafa sínar tvær hliðar
og sumir hafa örugglega mikið fleiri ef að er gáð. Þannig
er það nú með blessaða úrkomuna sem við viljum líklega
flest hafa sem minnst af að segja en engu að síður er hún
okkur lífsnauðsynleg.
Andstæðurnar í íslenskri
veðráttu geta átt það til að vera
miklar og sjá um að halda
okkur Íslendingum við efnið
svo hið sívinsæla umræðuefni
okkar lendir aldrei í þroti. Ég
verð að játa að ég man varla
hvernig viðraði á okkur hér í
þessum landshluta síðasta
sumar. Hins vegar man ég
mæta vel eftir umtali um
einmuna veðurblíðu fyrir
austan okkur og endalausri rigningu fyrir sunnan, alla
vega ef marka mátti umtalið í fjölmiðlum. Nú heyrast slíkir
kveinstafir ekki af suðvesturhorninu enda verið mikil
veðurblíða þar upp á síðkastið meðan við hér nyrðra
höfum verið frekar loppin síðasta mánuðinn þó ekki
höfum við reyndar þurft að kvarta undan rigningu.
En þá ber svo við að við þurfum að kvarta undan skorti
á rigningu. Jörðin er að verða svo þurr að víða um land
óttast bændur að tún fari að sölna í þurrkinum og á sumum
svæðum, m.a. þar sem rigndi upp á hvern einasta dag í
fyrra, er svo komið að fólk er beðið um að fara sparlega
með vatn. Sama á við á Sauðárkróki, þar hafa fyrirtæki í
vatnsfrekri matvælaframleiðslu þurft að leita leiða til að
minnka vatnsnotkun.
Já, það er ljóst að ekkert er alvont, já og ekki heldur
algott, ef að er gáð. Þetta á við um flesta hluti og það er
ágætt að hafa það bak við eyrað þegar við setjum okkur í
dómarasæti yfir mönnum og málefnum.
Þegar ég byrjaði að skrifa þennan pistil, að áliðnu
kvöldi, eða upphafi nætur, horfði ég út um gluggann og sá
fjallatoppana í fallegu sveitinni minni á Ströndunum
gægjast upp úr þokuslæðunum sem höfðu sveimað hér um
af og til í allan dag og orðið þéttari með kvöldinu. En þoka
er ekki bara þoka, hún getur verið ísköld og blaut og
hryssingsleg og skemmt möguleika bænda á að ná saman
heyjum sínum og útivistarfólks á að njóta náttúrunnar, svo
dæmi séu tekin. Hún getur líka verið dulúðug og hálf
draumkennd eins og hún var í logninu í kvöld svo
ímyndunaraflið fær byr undir báða vængi. Nú er hún
horfin, hvert hún fór veit ég ekki, en hún skilur eftir sig
hreint loft og raka jörð sem tekur þakklát á móti
hressingunni.
Fríða Eyjólfsdóttir
blaðamaður
LEIÐARI
Ekkert er alvont
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Eysteinn Ívar Guðbrandsson, bladamadur@feykir.is
Áskriftarverð: 555 kr. hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 685 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
1238 tekur til starfa
Opið hús í Gránu um helgina
Kaldavatnsskortur á Sauðárkróki
Fólk beðið um að spara vatn
Svo mikill er skortur á
köldu vatni á Sauðárkróki
að farið hefur verið fram á
það við fyrirtæki sem nota
mikið vatn, að þau dragi
úr framleiðslu eða minnki
vatnsnotkun á annan hátt.
Lítil úrkoma í vetur og vor er
orsakavaldurinn.
„Það er mikil vatnsnotkun á
Sauðárkróki, sérstaklega hjá
fyrirtækjum í matvælafram-
leiðslu í bænum og höfum við
þurft að óska eftir því við
fyrirtæki að þau stöðvi
framleiðslu fyrr á daginn eða
minnki framleiðsluna til að
bregðast við þessu ástandi.
Vatnsbúskapurinn í lindunum
sem við erum að nýta við
Sauðárkrók er ekki góður sökum
lítillar úrkomu í vetur og vor,
segir Indriði Þór Einarsson,
sviðsstjóri veitu- og fram-
kvæmdasviðs Svf. Skagafjarðar.
„Þetta er grafalvarlegt mál og
mjög slæmt fyrir okkur,“ segir
Hilmar Baldursson, verksmiðju-
stjóri mjólkursamlags KS. Hann
segir erfitt fyrir samlagið að
draga úr framleiðslu þar sem
ekki sé heppilegt að geyma
mjólkina. Farið var í ýmsar
aðgerðir til að reyna að draga úr
vatnsnotkun en Hilmar segir
ástandið slæmt og ekki bjóðandi
fyrirtækjum á svæðinu.
Í sama streng tók Ásmundur
Baldvinsson, yfirmaður land-
vinnslu hjá Fisk Seafood. „Við
getum ekkert dregið úr vinnslu
eins og er, þar sem við erum með
mikið hráefni sem við þurfum
að klára. En við gripum til
ákveðinna ráðstafana til að spara
vatn,“ sagði Ásmundur er Feykir
ræddi við hann í síðustu viku.
„Við erum að leita leiða við
frekari vatnsöflun og mun það
skýrast á næstu dögum hvað gert
verður til að bregðast við þessu
ástandi,“ segir Indriði Þór sem
einnig vill beina því til hins
almenna notanda að fara spar-
lega með vatnið. „Þó það sé lítið í
stóra samhenginu, telur þetta
allt,“ segir hann. /PF
Ökumaður undir áhrifum fíkniefna
Með barn á leikskólaaldri í bílnum
Talsverður erill hefur verið hjá Lögreglunni
á Norðurlandi vestra undanfarna viku, en
á Facebook síðu hennar kemur fram að í
vikunni hefði verið farið í eina húsleit þar
sem lögregla lagði hald á kannabisefni og
stera. Tveir aðilar handteknir vegna málsins.
Fimm ökumenn voru handteknir í vikunni
vegna gruns um að aka undir áhrifum ávana-
og fíkniefna. Í einu af þeim málum var barn á
leikskólaaldri farþegi í bifreið þar sem öku-
maður reyndist undir áhrifum fíkniefna og var
því Barnavernd kölluð til.
Um hvítasunnuhelgina sjálfa var mikil
umferð í umdæminu og voru alls 86 ökumenn
kærðir fyrir of hraðan akstur, sá sem hraðast ók
var á 146 km hraða á klukkustund. /EÍG
Stund milli stríða hjá fornkappanum hugdjarfa og Grána.
MYND af heimasíðu 1238
Til að spara vatnið var þessi mynd
tekin af netinu.
2 22/2019