Feykir - 12.06.2019, Side 4
Golfklúbburinn Ós á Blönduósi
Margmenni á golfdegi í blíðskaparveðri
Um 60 manns heimsóttu
Vatnahverfisvöll við Blönduós
á golfdegi PGA, mánudaginn
10. júní, og nutu leiðsagnar
fjögurra kennara í PGA golf-
kennaranámi. Golfdagur PGA
var haldinn á fjórum stöðum á
landinu að þessu sinni.
,,PGA á Íslandi auglýsti
lokaverkefni golfkennaranema
en það snerist um að koma til
golfklúbba og kenna golf. Ég
sótti um til PGA, sótti um
styrki til fyrirtækja í bænum og
dagurinn í dag var afrakstur
þessa,“ segir Jóhanna G. Jónas-
dóttir, formaður Golfklúbbsins
Óss á Blönduósi í samtali við
Feyki.
Golfklúbburinn Ós hefur
verið starfræktur frá árinu
1985. Félagar í klúbbnum eru
35 og lítil endurnýjun hefur átt
sér stað á síðustu árum. Illa
hefur gengið að fá golfkennara
út á landsbyggðina en þeir eru
bráðnauðsynlegir ef halda á
úti barna- og unglingastarfi.
Golfklúbburinn hefur farið
ýmsar leiðir síðustu ár en engin
varanleg lausn hefur fundist.
,,Ég fór á fund fram-
kvæmdastjóra golfklúbba í
mars 2017 og var erindi mitt að
beina augunum að kennaraleysi
á landsbyggðinni. Ég var búin
að hafa samband við litla
golfklúbba um allt land og alls
staðar var sama sagan. Agnar
Már Jónsson, sem sat fundinn
með mér, tók málin í sínar
hendur en hann sat í stjórn
PGA en PGA á Íslandi rekur
Golfkennaraskólann, sem
stendur fyrir faglegu og krefj-
andi golfkennaranámi,“ segir
Jóhanna.
Í framhaldinu var haldið
málþing um stöðu golfkennara-
mála á landsbyggðinni.
Jóhanna sótti leiðbeinenda-
námskeið og hefur því leyfi til
Fjölmargir tóku þátt í golfdeginum. MYNDIR: LEE ANN MAGINNIS
eyri. John Garner heimsækir
golfklúbbinn enn, þrisvar til
fjórum sinnum yfir sumarið og
kennir 10 – 15 ára krökkum.
,,Golfdagurinn heppnaðist
mjög vel og voru fjórir nemar á
staðnum og við áttum frábæran
dag saman.“ Golfkennara-
nemarnir fóru yfir grunnatriðin
í golfi og skiptu svo þátt-
takendum í nokkra hópa þar
sem mismunandi æfingar voru
gerðar. Fyrirhugað er að golf-
kennaranemarnir komi a.m.k.
tvisvar sinnum til viðbótar í
sumar til að halda þátttak-
endum við efnið.
,,Vonandi er þetta byrjunin
á enn frekari uppbyggingu hjá
GÓS og að íbúar í sveitar-
félaginu átti sig á hvað þetta er
skemmtileg fjölskylduíþrótt, að
ég tali nú ekki um hvað við
erum heppin að hafa golfvöll í
fallegu umhverfi þar sem er
aldrei biðröð í rástíma,“ segir
Jóhanna að lokum. /LAM
að leiðbeina börnum og ungl-
ingum. Síðasta sumar hélt hún
svo úti golfleikjanámskeiði
fyrir krakka á aldrinum 6 – 10
ára. Sumarið 2017 fékk
Golfklúbburinn John Garner
golfkennara, sem þjálfaði ísl-
enska landsliðið á árum áður, í
gegnum golfklúbbinn á Akur-
Mikið af efnilegum kylfingum að taka sín fyrstu skref í golfinu. Gott að fá góðar leiðbeiningar.
Verið að yfirfara gripið. Kennarinn fer yfir pútttæknina.
Veðurklúbburinn á Dalbæ
Rofar ekki til fyrr en eftir 17. júní
Þriðjudaginn 4. júní 2019 komu
ellefu klúbbmeðlimir saman
til fundar kl. 14 til að fara yfir
spágildi síðasta mánaðar og voru
fundarmenn nokkuð sáttir með
spágildi maímánaðar.
Tunglið sem verður ríkjandi fyrir
júní kviknaði í suðaustri kl 10:02
mánudaginn 3. júní. Það leggst
þannig í fundarmenn að það fari
ekki að rofa til fyrr en eftir 17. júní,
en þann dag er fullt tungl. „Það
gæti þó gert glennur hér og þar þó
veðrið sé í kaldara lagi. Vindáttir
verða mest norðlægar,“ segja
spámenn sem luku fundi kl 14:25.
Lesendur gætu nú samt rekið upp
stór augu þegar spáin er lesin þar
sem þessa dagana er brakandi
blíða sem nær langt út fyrir
túngarðinn.
En veðurklúbburinn sendir
öllum sumarkveðju með veður-
vísu þessa mánaðar og þess næsta.
Í júní sest ei sólin,
þá brosir blómafjöld.
Í júlí baggi er bundinn
og borðuð töðugjöld.
/PF
Beðið eftir sumrinu. MYND: ÓAB
4 22/2019