Feykir - 12.06.2019, Page 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is
Inkasso-deild kvenna : Tindastóll – Fjölnir 6–2
Stórsigur Stólastúlkna á Fjölni
Frjálsíþróttir
Ísak Óli brattur eftir
Smáþjóðaleikana
Það er nóg um að vera
hjá íþróttagarpinum Ísak
Óla Traustasyni en hann
náði góðum árangri á
Smáþjóðaleikunum sem
haldnir voru fyrir skömmu.
Hann segist vera brattur
eftir leikana enda nóg fyrir
stafni, áframhaldandi keppnir
meðfram þjálfarastörfum hjá
frjálsíþróttadeild Tindastóls.
Í samtali við Feyki sagði
hann að leikarnir hefðu farið
vel í sig. „Og gaman að fá
tækifæri til þess að keppa með
landsliðInu. Ég er mjög sáttur
með árangurinn en hefði
kannski verið til í að stökkva
aðeins lengra en í langstökkinu
en samt mjög gott að stökkva
yfir sjö metra og vera orðinn
nokkuð stabíll yfir þá. Grindin
var góð og gaman að krækja í
silfur því að ég kom inn í mótið
með fimmta besta árangurinn.“
Þegar Feykir náði tali af Ísak
var hann staddur í Svíþjóð að
keppa sem gestur á landskeppni
Finna, Svía og Eista í tugþraut.
„Eftir það er bara að halda
áfram að æfa og keppa aðeins
heima og svo vonandi fær
maður tækifæri til þess að
keppa með þrautarlandsliðinu
á Evrópubikar í þraut sem fer
fram í Portúgal í byrjun júlí.“ /PF
Ísak Óli Traustason. MYND AF FB-SÍÐU FRÍ
2. deild karla : Tindastóll-Leiknir F 1–2
Leiknismenn höfðu betur í sólinni á Króknum
Tindastólsmenn tóku á móti liði Leiknis frá
Fáskrúðsfirði í 2. deild karla í knattspyrnu á
mánudaginn eða um leið og sumarið fann sig á
ný í Skagafirði. Lið Tindastóls hafði tapað öllum
fimm leikjum sínum í deildinni fyrir þennan leik
og gestirnir höfðu enn ekki tapað leik. Úrslitin
reyndust því miður eftir bókinni, en Leiknir náði
snemma tveggja marka forystu og Stólarnir
náðu ekki að kreista fram jafntefli þrátt fyrir
nokkur góð færi í síðari hálfleik. Lokatölur 1-2.
Það má eiginlega segja að leikmenn Tindastóls
hafi mætt til leiks líkt og rennblautir lopavettl-
ingar. Strákarnir komust varla fram yfir miðju
fyrstu 20 mínútur leiksins og stundum virtust
gestirnir hreinlega helmingi fleiri á vellinum.
Fyrsta markið kom eftir að Leiknismenn komust
inn í langa sendingu frá Tanner fram vinstri
kantinn. Þeir snéru strax vörn í sókn, kom
boltanum inn fyrir vörn Tindastóls, skot Sæþórs
Viðarssonar var blokkað en boltinn barst fyrir
opið markið og Izaro Abella Sanchez skoraði af
öryggi. Þarna voru sjö mínútur liðnar af leiknum
og næstu mínútur var ítrekað hætta upp við mark
Tindastóls. Hvað eftir annað áttu heimamenn
ónákvæmar sendingar og gestirnir geystust í
sókn. Annað markið kom einmitt eftir slíkar
aðstæður. Sæþór fékk boltann inn fyrir vörn
Stólanna og skoraði af öryggi. Staðan 0-2 en eftir
þetta fóru Stólarnir loksins að láta á sér kræla upp
við mark Leiknis staðan 0-2 í hálfleik.
Nú unnu Stólarnir boltann ítrekað og hófu að
pressa að marki Fáskrúðsfirðinga. Nokkur hálf-
færi sköpuðust en eftir rúmlega fimm mínútna
leik slapp Benni inn fyrir vörn Leiknis, mark-
vörður Leiknis hálfvarði skot hans en Benni hefði
auðveldlega getað fylgt boltanum í markið ef
markvörðurinn hefði ekki brotið á honum.
Dómarinn taldi ekki um brot að ræða og Benni
ósáttur. Ekki batnaði skap kappans þegar einn
leikmanna Leiknis gaf honum gott spark eftir að
dómarinn hafði dæmt brot. Því miður ákvað
Benni að henda leikmanninum í völlinn og
uppskáru báðir rautt spjald, Benni og Hlynur
Birgisson, eftir talsvert fjaðrafok milli leikmanna.
Stólarnir minnkuðu muninn í 1-2 á 65.
mínútu eftir að Konni fyrirliði skoraði úr víti eftir
að brotið var á Ísaki eftir aukaspyrnu. Stólarnir
fengu nokkra ágæta sénsa til að jafna næstu
mínúturnar en síðan opnaðist leikurinn síðasta
stundarfjórðunginn og hefðu bæði lið geta bætt
við mörkum. Það varð ekki og lokatölur sem fyrr
segir 1-2.
Tindastóll tók á móti
Fjölni á föstudagskvöldið
síðastliðinn í lokaleik fjórðu
umferðar í Inkasso-deild
kvenna á Sauðárkróksvelli.
Leikurinn endaði með
stórsigri Tindastóls 6-2, en
fyrir leikinn var Tindastóll í
áttunda sæti með þrjú stig
og Fjölnir í því níunda með
eitt stig.
Tindastólsstúlkur byrjuðu leikinn
af miklum krafti og þurftu þær
ekki að bíða lengi eftir fyrsta
markinu, því markaskorarinn
Murrielle Tiernan var komin á blað
strax á áttundu mínútu með
glæsilegu skoti rétt fyrir utan
vítateig. Tólf mínútum síðar
skoraði Hrafnhildur Björnsdóttir
með skalla úr föstu leikatriði og
staðan þar með 2-0, sannkölluð
draumabyrjun hjá Tindastóli. Á
fertugustu mínútu minnkuðu
Fjölnisstúlkur muninn með marki
frá Írisi Ósk Valmundardóttur
þegar hún skallaði boltann í netið
eftir góða aukaspyrnu, staðan 2-1
í hálfleik fyrir Tindastól.
Seinni hálfleikur byrjaði á
svipuðum nótum og fyrri hálfleikur,
því eftir fjórar mínútur skoraði
Jacqueline Altschuld með góðu
skoti fyrir utan teig. Á 77. mínútu
var Jacqueline Altschuld aftur á
ferðinni þegar hún komst inn fyrir
vörn Fjölnisstúlkna og lék á
markmanninn og renndi boltan-
um í markið. Fjórum mínútum
síðar kom fimmta mark Tindastóls
og var það Murrielle Tiernan sem
skoraði með skalla eftir fyrirgjöf
Jacqueline Altschuld. Murielle
Tiernan var ekki hætt og bætti hún
þriðja marki sínu og sjötta marki
Tindastóls með þrumu skoti.
Fjölnisstúlkur náðu svo að minnka
muninn á 88. mínútu með marki
frá Söru Montoro og þar við sat,
6-2 sigur Tindastóls í höfn. /EÍG
Murr þrumar boltanum efst í markhornið. MYND: EÍG
Tveir leikmenn fengu að líta rauða spjaldið hjá dómaranum eftir
smá pirring. MYND: ÓAB
4. deild karla : Kormákur/Hvöt-Snæfell 2-2
Dýrmætt stig hjá Kormáki/
Hvöt í 4. deildinni
Á hvítasunnudag fór fram
einn leikur í 4. deild karla,
þegar Snæfell fékk Kormák/
Hvöt (K/H) í heimsókn á
Stykkishólmsvelli. Fyrir leik-
inn var Snæfell með níu stig
í öðru sæti og ekki tapað
leik, en Kormákur/Hvöt í því
þriðja með sex stig eftir tvo
góða sigra í seinustu tveimur
leikjum.
Leikurinn fór vel af stað
fyrir K/H þegar sóknarmað-
urinn Diego Moreno Minguez
náði að krækja í vítaspyrnu á
tólftu mínútu leiksins. Það var
Ingvi Rafn Ingvarsson sem fór
á punktinn og skoraði úr
vítaspyrnunni. Á 28. mínútu
fékk Snæfell hornspyrnu og var
það Julio C. Fernandez De La
Rosa sem náði að skora úr
henni og staðan 1-1 í hálfleik.
Á 63. mínútu urðu K/H
menn fyrir því óláni að tapa
boltanum klaufalega á miðj-
unni, ein sending í gegnum
vörnina þýddi að Matteo Tuta
var kominn einn á móti mark-
manni og náði hann að skora
og koma Snæfelli yfir í leiknum
2-1. Í uppbótartíma fékk K/H
hornspyrnu, boltinn kom inn í
teig og var það Bjarki Már sem
náði að flikka boltanum á Ingva
Rafn Ingvarsson sem náði að
jafna leikinn undir blálokin.
Lokatölur 2-2. /EÍG
22/2019 5