Feykir


Feykir - 12.06.2019, Side 7

Feykir - 12.06.2019, Side 7
farið að huga að byggingu þessa húss. Sýslusjóður er framkvæmdaraðili fyrir bygg- ingunni sem fjármögnuð er af framkvæmdasjóði aldraðra, húsnæðisstofnun, sýslusjóði og einnig hafa borist fjár- framlög frá fyrirtækjum og einstaklingum. Samkvæmt lögunum átti framkvæmdasjóður að greiða helming byggingarkostnaðar, en reyndin hefur orðið 35- 40%. Framkvæmdir hófust haustið '82 þegar grafið var fyrir grunninum. Árið eftir voru síðan steyptir sökklarnir og kjallarinn og var samið við mig um það verk. Þá var húsið boðið út uppsteypt frá gólfplötu og frágengið að utan með gleri og hurðum. Þeim verkáfanga var lokið á árinu '85 og síðan voru múrverk, raflagnir og pípulagnir boðnar út. Þannig stóð húsið um síðustu áramót þegar lokaáfanginn var boðinn út, þ.e.a.s. húsið var tilbúið undir tréverk og málningu, hreinlætistæki og flísalögn vantaði. Á hæðinni eru auk íbúð- anna, sameiginleg stofa, mötuneytiseldhús ásamt borðstofu, skrifstofa rekstrar- stjóra, aðstaða fyrir næturvakt, sameiginlegt þvottahús og stofa fyrir sjúkraþjálfun. Þá er sameiginleg föndurstofa og að sunnanverðu sólstofa, ásamt setlaugum og sturtuböðum. Í kjallara eru geymslur fyrir hverja íbúð. Framreiknaður byggingarkostnaður er í dag tæpar 60 milljónir. Þar með talin húsgögn, búnaður, gluggatjöld o.fl. Reynt hefur verið að halda kostnaði niðri, en vali efna samt hagað þannig að ending verði góð, svo það komi til góða í minni rekstrarkostnaði þegar fram í sækir. T.d. má benda á að teppi eru hvergi í húsinu, í stað þeirra eru sterkir dúkar og mikið af flísalögnum. Baðklefar t.d. allir flísalagðir í hólf og gólf. Samtals er flísalögnin innanhúss um 750 fermetrar. Úti er mikið um hellulögn á lóðinni sem er 2500 fermetrar. 650 fermetrar í göngustígum er hellulagðir," sagði Eðvarð Hallgrímsson. Eðvarð var eins og áður segir aðalverktaki fyrir bygg- ingunni. Undirverktakar voru, Stígandi á Blönduósi sem smíðaði innréttingar, Pípulagnir og verktakar hf. á Blönduósi sáu um pípulagnir, Páll Þorfinnsson um rafmagn, Örn Guðjónsson Ráðuneytismenn styggðir Jón Ísberg var þungavigtar- maður í félagsmálum Hún- vetninga, athafnamaður mikill, stóð fyrir mörgum framfaramálum sýslunnar og reyndist sveitungum sínum afar vel. Um hann er rituð þessi orð, sem einnig prýðir vegg Sæborgar: Jón Ísberg, oft frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins til Alþingis og varaþingmaður hans árið 1967, var mjög lengi sýslumaður Austur-Húnvetninga. Hann var ráðríkur að fornum sið, góður undirmönnum sínum í héraði miðlungi auðsveipur yfirvöldum í Reykjavík. Nú vantar elliheimili á Skagaströnd og tekur þá sýslu- maður að innheimta skatt- peninga ríkissjóðs og byggir fyrir þá heimilið. Styggðust ráðuneytismenn mjög sem von var og hótuðu að kæra hann fyrir að misfara með opinbert fé. Hann tók því vel og sagði: „Þið getið tekið af mér æruna, en húsið stendur.“ Svo sannarlega stendur húsið enn og orðspor sýslu-manns, eða eftirmæli, honum til mikils sóma. Jón lét af embætti fyrir aldurs sakir nokkru eftir að dvalarheimilið var tekið í gagnið og var hann kvaddur með virktum af sýslungum sínum. Til að gera langa sögu stutta reis dvalarheimilið upp á þeim stað sem bærinn Sæborg stóð áður og vígt formlega fyrsta vetrardag þann 22. október 1988. Feykir sagði á þessum tíma frá því að stór dagur hefði verið á Skagaströnd þegar hús aldraðra á Ægisgrund 14 var formlega vígt. „Fjölmargir voru viðstaddir athöfnina s.s. Guðmundur Bjarnason heil- brigðisráðherra sem afhenti Jóni Ísberg sýslumanni fyrir hönd sýslusjóðs húsið til reksturs. Alls er Sæborg um þúsund fermetrar að gólffleti, í því eru 4 hjónaíbúðir og 7 einstaklings íbúðir. Þegar Feykir var á ferð á Skagaströnd sl. fimmtudag var komið við í dvalarheimilinu nýja og þar var þá allt á fullu við að klára sem mest fyrir laugardaginn, en heimilið verður ekki tekið í notkun fyrr en upp úr mánaðamótum. Það er Eðvarð Hallgríms- son byggingameistari á Skagaströnd sem verið hefur aðalverktaki síðan framkvæmdir hófust og var hann beðinn að segja bygg- ingarsögu hússins. „Um það leyti sem lögin um fram- kvæmdasjóð aldraðra urðu að veruleika í þinginu var Bréf Lárusar til Jóns Ísbergs. Skáldkona rifjar upp ljóð Okkur Þórði var boðið í kaffi með heimilisfólki í sameiginlegu stofuna og var ýmislegt spjallað og skrafað. Meðal annars flutti Sigríður Magnúsdóttir, frá Hergilsey, frumsamið ljóð um son sinn. Vel er við hæfi að ljúka umfjöllun Sæborgar með því. Sonur minn Ég vil syngja þér söng, þennan sólbjarta dag. Því að söngur er ánægja þín. Og þú horfir í regnbogans ljómandi liti og ljósið sem yfir þér skín. Þú ert fallegur sveinn, svona saklaus og hreinn. Segðu eitt orð, og ég sál mína gef. Ég hef þerrað þín tár gegnum ævinnar ár, sem að ófu um þig, örlagavef. Þú ert fæddur að vori, eins og vorlömbin smáu. Sem að vappa um móa og tún. Þú varst ógnarlítill angi og ég annaðist þig en í augum, var ólesin rún. En ég hrópa í sátt upp í himininn hátt, og ég bið, að hann heyri til mín. Enginn særandi orð. Engum berð þú á borð, biturleik, tál eða vín.Sigríður Magnúsdóttir, frá Hergilsey, tók vel í bón Þórðar um að flytja ljóð sem hún orti fyrir margt löngu. Á myndinni með þeim er dóttir Sigríðar, Ásthildur Gréta Gunnarsdóttir. á Hvammstanga um málningu og Hannes Óskarsson á Akureyri um múrverk. Það voru arkitektarnir Sigurður Guðmundsson og Sigurður Kristjánsson frá Staðalhúsum hf. sem önnuðust hönnun.“ Í fréttablaðinu Degi, 3. nóvember 1988, segir einnig frá deginum: „Vígslu- athöfnin hófst með því að tónlistarkennararnir á Skaga- strönd, hjónin Rosemary og Julian Hewlett léku á þverflautu og orgel. Jón Ísberg, formaður byggingarnefndar, bauð gesti velkomna og rakti nokkuð þróun heilbrigðisþjónustunn- ar í héraðinu. Hann gat þess sérstaklega að Lárus Guð- mundsson, sem kenndur var við Herðubreið á Skaga- strönd hefði verið mikill baráttumaður fyrir því að dvalarheimili yrði byggt fyrir aldraða á Skagaströnd og árið 1974 gaf Lárus eina milljón króna til byggingar þess húss sem var verið að vígja þennan dag.“ Dvölin á Sæborg kveikir athafnaþrá Í dag eru hjúkrunarrýmin alls níu á Sæborg, allt ein- staklingsherbergi, 28m2 og 33m2 með sér baðherbergi og ísskáp. Jökulrós Grímsdóttir, hjúkrunarforstjóri, segir rýmin fullnýtt og hafa þau verið það undanfarin ár. Allir íbúar fá einstaklingsmiðaða þjónustu og reynt er eftir bestu getu að mæta þeim, þar sem þeir eru staddir, til að auka færni og viðhalda heilbrigði. „Stefna Sæborgar er að skapa umgjörð eftir hugmyndafræði ,,Leve og Bo‘‘ sem hefur verið í þróun í nokkrum sveitafélögum í Danmörku. Í þessari hugmyndafræði er meðal annars litið á hjúkr- unarheimilið sem heimili íbúanna og stjórnast starf- semin af venjum þeirra og lífsháttum. Þjónustan á að vera í samráði við þarfir íbúans og að samvinna starfsfólks og íbúans gangi sem best,“ segir Jökulrós. Starfsmenn Sæborgar eru ellefu í mismunandi starfshlutfalli eða frá 20% til 100%. Meðal heimilismanna er Hólmfríður Pálsdóttir sem áður bjó á Sauðárkróki og blaðamaður kannast við. Hún er ánægð með dvölina og segir Sæborg vera eins og yndislegt lítið heimili. „Það er ekki hægt Eftirmæli um sýslumanninn Jón Ísberg. 22/2019 7

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.