Feykir


Feykir - 12.06.2019, Qupperneq 8

Feykir - 12.06.2019, Qupperneq 8
 Heilir og sælir lesendur góðir. Í síðasta þætti bað ég lesendur um að hjálpa mér að rifja upp réttan höfund að vísunni: Það vill eitt og annað bresta á það sem ég frekast kaus. - O.s.frv. Hef nú fengið góðar upplýsingar frá les- endum þar um sem ég þakka mikið vel fyrir. Vísan er eftir hina rómuðu skáldkonu Ólínu Jónasadóttur frá Kotum og er það heimska mín að geta ekki munað það, þrátt fyrir að vita og hafa birt hana áður hér í þættinum. Munu tildrög hennar þau að hana vant- aði hjálp við að laga bilaðan glugga og langaði til að fá karlmannshjálp til þess. Ástæða þess að ég óskaði eftir þessum upplýsingum var að í ljóðabók sem Birgir Marinósson gaf út telur hann sig vera höfund vísunnar. Gott að fá næst fallega vorvísu sem er laglega saman sett hringhenda. Höfundur er Sigmundur Benediktsson. Gleymist vandi, glæðist blítt geislabandamáttur, er um landið leikur þýtt lífsins andardráttur. Þegar Sigmundur virðir fyrir sér miðnætur- sólina verður þessi til: Yfir veröld auðnufeld óskastundin lætur, flétta saman fórnareld faðmlög dags og nætur. Þegar Sigmundur, á ferðalagi yfir Stóra- Vatnsskarð, horfir yfir Skagafjörð af Arnar- stapanum, verður þessi til: Þó að berji brim og ís bólstað fugla hjarðar. Drangey stolt úr djúpi rís drottning Skagafjarðar. Fallega er þar notað form stökunnar og áfram skal haldið við ylinn frá henni í næstu vísum sem þættinum bárust og munu vera eftir Lárus Salómonsson sem var á sinni tíð þekktur hagyrðingur í Kópavogi. Íslensk tunga orðmörg, hlý á bragahætti dýra. Ferskeytlunnar formi í flest má segja og skýra. Vísan hún er lipur list léttir geði þungu, svo er hennar saga fyrst sögð á vorri tungu. Vísan geymir valinn sjóð vekur ljós á skari. Hún kann lýsa heilli þjóð heilu aldarfari. Það er hinn kunni kvæðamaður Ingþór Sigurbjörnsson sem yrkir svo fallega til samferðamanna á lífsins leið. Vísnaþáttur 737 Það er gott á góðri stundgleðjast meðal vina, taka í heita mjúka mund milda samvistina. Man því miður nú í augnablikinu ekki eftir annarri vísu eftir Ingþór sem segja má að henti þessari árstíð, en þessi, þó ort sé að vetri, biður þó um bjartari tíma. Þegar okkar byggða ból blessað hefur vetur. Vonum þó að vor og sól vermi okkur betur. Það er Óskar Þórðarson frá Haga sem er höfundur að þessari. Mun hún ort í verslunarferð. Varan léleg verðið hátt viðsjált skraf við fyrstu kynni. Tauið verður varla blátt verði það þvegið einu sinni. Þegar Óskar veltir fyrir sér þessari þrá til vísnagerðar, verður þessi til: Fellur saman orð og orð í efnislausu kvæði, úr því ég á annað borð einstig rímsins þræði. Á vordeginum verður þessi til hjá Óskari: Áráttan er söm við sig sól og vindar kalla. Engan langar eins og mig upp til hárra fjalla. Margar vel meitlaðar vísur orti bændahöfðinginn Þorsteinn Magnússon frá Gilhaga. Á efri árum mun þessi hafa orðið til: Fyrir gíg mér eyddist afl oft nam ráði skeika. Nú er æfi tapað tafl tregðast ég að leika. Önnur í svipuðum dúr kemur hér eftir Þorstein: Anda napurt oft ég finn auðnu tapast vegur, asnaskapur allur minn er svo hrapalegur. Heyrt hef ég þá frásögn að einhverju sinni í fjallferð hafi Þorsteinn komið að uppsprettulind og fengið sér þar vel að drekka. Sá hann þá spegilmynd sína í lindinni og mun af því tilefni hafa ort þessa: Af þér drakk ég, lækjarlind langan teyg með þökkum, en þú dróst upp dapra mynd djúp og slétt af bökkum. Veriði þar með sæl að sinni. / Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi Sími 452 7154 ( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is að hafa önnur orð um það. Hér er allt til alls og maður hefur allt út af fyrir sig og getur gert það sem maður vill. Þetta er afskaplega vel hannað allt saman finnst mér. Og starfsfólkið er alveg frábært og þá tala ég ekki um vistfólkið sem er yndislegt líka,“ segir Hólmfríður sem hefur þarna átt heima í tvö ár. Hún segist ekki alveg hafa verið til í það í fyrstu að flytja á Skagaströnd þar sem hún hafði alltaf hugsað sér að fara á dvalarheimilið á Sauðárkróki. En eftir að Halldór Gunnar Ólafsson, barnabarn hennar, sannfærði hana um að flytja leið ekki nema tvær vikur að hún var komin á Sæborg og sér ekki eftir því. „Hún var laus þessi íbúð og þess vegna fékk ég hana. Ég á líka svo góða fjölskyldu hér, öll svo yndisleg,“ segir Hólmfríður sem finnst sjúkrahúsmálin á Sauðárkróki mjög aftarlega. „Það er alltaf yfirfullt og enginn tekinn inn nema hann sé fárveikur, að það sé ekki annað hægt en að taka hann inn. Ég ætlaði mér alltaf að vera á dvalarheimilinu á Króknum, var búin að vinna þar í 32 ár svo er ég bara kominn hingað. Þetta getur ekki verið betra. Og sólstofan er yndisleg, punkturinn yfir I-ið.“ Undir þetta tekur Þórður Eyjólfsson sem dvaldi um tíma á Sæborg. „Svona þyrftum við að fá, eina lengju austan við dvalarheimilið á Sauðárkróki. Það má vera á tveimur hæðum enda eru komnar nýjar lyftur á markaðinn og miklu minni kostnaður við þær en áður. Þetta þyrfti að fara að gerast því það er ekkert pláss fyrir okkur gamlingjana,“ segir hann einbeittur. Ástæðan fyrir dvöl hans á Sæborg var sú að hann fór í mjaðmaaðgerð á Akureyri og átti að hvílast og njóta hjúkrunar á Sauðárkróki. En þegar til kom var búið að ráðstafa plássinu. „Þegar við komum á Krókinn, og þetta ljóst með herbergið, þá vildi ég bara fara heim en þeir þvertóku fyrir það af því að ekki var hægt að aðstoða mig þar fyrstu sólarhringana. Það var laust eitt herbergi fyrir vestan og það varð úr að ég sagði þeim að ef herbergið væri klárt á Skagaströnd þá væri best að leggja í´ann strax. Það endaði þannig að Akureyrar sjúkrabíllinn fór með mig vestur. Ég var sem sagt fluttur í skyndi og dvaldi ég á Sæborg í fimm vikur og leið alveg rosalega vel. Ég veit ekki hvort ég hefði þurft að vera svona lengi en mér var sagt að ég hefði rétt á því og var hinn ánægðasti með það. Ég kynntist fólkinu vel og allt er svo heimilislegt og elskulegt hérna. Aðstaðan hjá hverjum og einum er alveg til fyrirmyndar, hægt að hita sér kaffi eða soðið sér mat ef maður vill og sturta og klósett í hverju herbergi. Þetta er ómetanlegt,“ segir hann. Þórður var það ánægður með dvölina að hann fór fljótlega í heimsókn og færði starfsfólkinu blóm og konfekt í þakklætisskini líkt og í þessari ferð okkar nú. Þórður er fullur áhuga og hvetur hann ráðamenn til að beita sér fyrir því að álíka heimili rísi á Sauðárkróki. Sér hann fyrir sér að byrjað verði á grunninum sem fyrst og segir hann að þegar hann er kominn væri hægt að fara að ýta á ríkið að koma að verkefninu. „Þetta sé ég fyrir mér að byggja einmitt svona eins og Sæborg, segir hann og minnir á að aldurinn færist yfir hvern og einn og gömlu fólki fjölgar sem kallar á fleiri pláss á dvalarheimili. mt ... mt ... 8 22/2019

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.