Feykir - 12.06.2019, Qupperneq 9
TORSKILIN BÆJARNÖFN palli@feykir.is
Rannsóknir og leiðréttingar Margeirs Jónssonar
Harrastaðir í Vesturhópi
og Skagaströnd
Úr miðri 15. öld (sjá t.d.
Auðunarmáldaga og Auð-
brekkubrjef frá, 146l og 1445.
DI. V. 354 og DI. IV. 664) bólar á
afbökuninni Hara- og eftir 1500
virðist rjetta nafnið týnt. (Sjá t.d.
DI. VII. 302 og DI. IX. 154 o.v.)
Harrastaðanafnið Í Vesturhópi
hefir þó breyzt fyr, því 1344 (DI.
V. bls. 2) er það ritað Hara, en
getur vel verið misritun, því
Harra- er það skrifað árið 1472
tvívegis í sama brjefi, sem
geymst hefir á skinni.
(DI. V. bls. 664.) Eftir 1500
finst ekki upprunanafnið og
jafnvel í nýja jarðamatinu er
gamla latmælið: Hara. (BIs. 115.)
Bersýnilega eru bæirnir kendir
við mannsnafnið Harri. Og það
er einmitt merkilegt að þetta
Harranafn finst hvergi nema í
Húnavatnsþingi. Landnáma
(bls. 127) er þar fyrst til frá-
sagnar: „Ormr hét maðr er nam
Ormsdal ok bjó þar; hann var
faðir Odds, föður Þórodds,
föður Helga, föður Harra, föður
Jóru, móður Þórdísar, móður
Tanna, föður Skafta.“ Jeg tel
mjög líklegt, að Harri þessi hafi
fyrstur bygt á Harrastöðum í
Vesturhópi eða búið þar og
Tanni á Tannastöðum í Hrúta-
firði, sem nú er alm. nefndur
Tannstaðir, því vafalaust hafa
niðjar Orms í Ormsdal (nú í
eyði) bygt þar í nánd. Í þessum
sveitum hefr líka Harranafnið
haldist við, fyrst og fremst í
ættinni, fram yfir 1300, því
Sturlunga (lll. bls. 1l5) getur um
„Harra bónda í Miðhópi“. Einnig
er einhver Harri nefndur í
skuldareikningi úr Húnavatns-
sýslu, frá 1340 (Dl. II. 727), en
eftir þetta virðist Harranafnið
detta úr sögunni. Það fylgist því
nokkuð að: bæjanafnið rjett
meðan mannsnafnið þekkist,
en eftir það Hara- (latmæli sbr.
Starastaðir fyrir eldra nafnið
Starra- eftir Goðdala-Starra. Sjá
Landn. bls. 140). Því skal og bætt
við, að hari sem mannsnafn finst
hvergi í íslenzkum fornritum,
sem sannar líka að rjetta nafnið
er Harrastaðir. (Nokkuð annan
uppruna hefir Harrastaðanafnið
í Dalasýslu, en það verður ekki
rakið hjer.) Harranafnið er
æfagamalt. Snorri Sturluson
nefnir Harra meðal sona Hálf-
danar gamla. (Snorra Edda bls.
252.) Og í fornkvæðum tíðkast
það mjög sem konungskenning
(ekki Hari. Sjá Lexicon Poet. bls.
229). Harri þýðir víst upphaflega
harðlyndur (her)maður; samst.
við lys.o. harðr; Nýn. harre og
harren, og s.stofna fornþ. orðinu
herz er þýðir stinnur, ósveigjan-
legur. (Sjá Torp: bls. 200+211.)
Bæirnir eru 2 í Húnavatnssýslu (af 3 samnefndum á landinu) og
heita rjettu nafni Harrastaðir, eins og eftirgreindar heimildir sýna:
Landamerkjabrjef Finnsstaða frá 1387 hefir Harra- (DI. III. 398) og
sölubrjef um Hól í Bolungarvík, ársett 1449, sömul. Harra. (DI. IV.
755.)
Neðri-Harrastaðir í Skagabyggð.
MYND: PF
22/2019 9
Snotur sem sumardagur
Feykir.is
Ragnar Z. Guðjónsson / trommur
Hlustar líklega mest á
tónlist frá 80's tímabilinu
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Raggi Z ... ekki kannski glaðbeittur að þessu sinni. MYND ÚR EINKASAFNI
Ekki greip umsjónarmaður Tón-lystarinnar í tómt
þegar leitast var eftir því að Ragnar Z. Guðjónsson,
eða bara Raggi Z, svaraði þættinum. Kappinn er
fæddur á Blönduósi það herrans ár 1970 og ólst þar
upp, sonur Kolbrúnar Zophoníasdóttur og Guðjóns
Ragnarssonar. Nú býr hann í Hafnarfirði og titlar sig
ritstjóra Húnahornsins góða – með meiru.
Kannski kom það einhverjum á óvart þegar það fóru
að birtast myndir á samfélagsmiðlunum af Ragga á
tónleikaferð um landið ásamt nokkrum félögum sínum.
Hann segist hafa trommað á menntaskólaárunum og
síðan ekki söguna meir „...fyrr en fyrir fjórum árum, þá
voru teknir upp gamlir taktar.“ Spurður út í helsta afrekið
á tónlistarsviðinu segir hann það vera að spila í bandi
með Birni Thoroddsen. – Sem er auðvitað bara ansi
magnað.
Hvaða lag varstu að hlusta á? Hello Sunshine með
Bruce Springsteen.
Uppáhalds tónlistartímabil? Nú er það svo að ég er
alæta á tónlist og á ég mér uppáhalds lög frá öllum
tímabilum. Ef ég ætti að nefna eitthvað eitt tímabil væri
það líklega 80's tímabilið. Viðurkenni það fúslega að
líklega hlusta ég meira á lög frá því tímabili en öðrum.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa
dagana? Ég hef áhuga á að hlusta á alla nýja tónlist sem
kemur út og eins og gengur fellur eitt í kramið en annað
ekki. Þessa dagana hef ég verið að sperra eyrun yfir
nýjustu lögum iðnaðarrokkarans Bruce Springsteen. Hef
ávallt dáðst af þessum afkastamikla og
sívinsæla lagahöfundi.
Hvers konar tónlist var hlustað á á
þínu heimili? Allskonar tónlist, popp,
rokk og klassík. Fjölbreytileikinn var
allsráðandi.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/
kassettan/niðurhalið sem þú keyptir
þér? Ekki séns að ég muni það.
Líklega hef ég fyrst eignast kassettu
og tekið upp tónlist úr Ríkisútvarpinu.
Svo minnir mig að fyrsta platan sem
ég keypti hafi verið Geislavirkir með
Utangarðsmönnum.
Hvaða græjur varstu þá með? Þá
hef ég notast við Sony græjurnar hjá
mömmu og pabba. En svo eignaðist ég
stórt kassettutæki með risahátölurum. Það var á break-
dans tímabilinu og tók ég fullan þátt í því með tækið á
öxlunum.
Hvert var fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa
fílað í botn? Líklega lög frá Bítlunum sem heilluðu mig
snemma eða frá Paul Simon og Art Garfunkel en ég fílaði
þá í botn á ákveðnu tímabili.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn eða fer
óstjórnlega í taugarnar á þér? Það getur ekkert lag
eyðilagt fyrir mér daginn og fátt fer í taugarnar á mér, og
þegar maður hefur upp undir 20 útvarpsstöðvar í bílnum
er lítið mál að skipta um stöð ef leiðinlegt lag kemur.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma
í græjunum til að koma öllum í stuð? Það fer nú eftir
því hverjum er boðið í partíið. Ef það eru „unglingar“ á
mínum aldri þá væri það tónlist frá árunum 1977-1987.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað
viltu helst heyra? Fuglasöng væri ágætt, en léttan jazz
eða blues væri líka vel við hæfi.
Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum
og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tón-
leika og hvern tækirðu með þér? Þá væri ég til í að
prófa eitthvað nýtt og skella mér til Kaliforníu í júní á
Carolina Country Music Fest. Kántríhátíðin er haldin á
Myrtle ströndinni í Suður-Karolínu og er ég sannfærður
um að hún yrði frábær skemmtun. Ég tæki auðvitað
fjölskylduna með.
Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst
nýkominn með bílpróf? Það hefur nú örugglega verið ný
plata Guns N´Roses – Appetite for
Destruction.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig
dreymt um að vera? Hef alls ekki
dreymt um að vera eða verða
tónlistarmaður. Tónlistarmennirnir
sjálfir hafa ekki áhrif á mig en
tónlistin þeirra getur skapað ákveðin
hughrif og haft þannig áhrif á mann
á ýmsan hátt. Enginn einn skarar þar
framúr.
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út? Þær eru
nú nokkrar sem nefna má, t.d. Sgt.
Pepper's Lonely Hearts Club Band,
Led Zeppelin og Dark Side of the
Moon.
toppurinn
Vinsælast á Playlista
Ragnars Z:
Ventura Highway
AMERICA
Never Gonna Give You Up
RICK ASTLEY
Don´t Stop Believin
JOURNEY
Blue Monday
NEW ORDER
Let´s Dance
DAVID BOWIE
Sweet Child o‘ Mine
GUNS N ́ROSES