Feykir


Feykir - 12.06.2019, Qupperneq 11

Feykir - 12.06.2019, Qupperneq 11
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS:: Stjórn Feykir spyr... Hvaða lag kemur þér í sumarfílinginn? Spurt á Facebook UMSJÓN Eysteinn Ívar „Sumartíminn – 12:00, kemur mér í sumarfílinginn!.“ Rakel Svala Gísladóttir „Það myndi vera Can´t stop the feeling með JT, því það vekur upp svo margar skemmtilegar minningar.“ Vala Hrönn Margeirsdóttir „Það myndi vera sumar- smellurinn Sumargleðin með Ingó veðurguð og Gumma Tóta, þetta er svo hrikalega catchy lag!“ Hannes Ingi Másson KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Krossgáta Tilvitnun vikunnar Ég trúði ekki á endurholdgun í síðasta lífi mínu – og geri ekki enn. – Woody Allen Sudoku Ótrúlegt – en kannski satt... Hnetur skiptast almennt í jarðhnetur annars vegar og trjáhnetur hins vegar, svo sem heslihnetur, valhnetur, pekanhnetur, möndlur. Jarðhnetur eru í raun ekki hnetur heldur belgjurt, hluti af baunafjölskyldunni. Ótrúlegt, en kannski satt, þá er hægt að nota jarðhnetuolíu til að búa til nitroglycerin sem er hluti af dínamíti. „Heyrðu, In the Summertime með Mungo og Jerry, klikkar ekki..“ Sigvaldi Helgi Gunnarsson Þó hitastigið hér norðan heiða sé ekki beint sumarlegt þessa dagana látum við það nú ekki á okkur fá og kyndum upp í grillunum til að komast í sumarskapið. Umsjónarmaður þáttarins vafraði aðeins um á netinu og fann nokkrar skemmtilegar uppskriftir fyrir gott grillkvöld. AÐALRÉTTUR 1 Marineraðar kjúklingabringur á teini með grænmeti 4 kjúklingabringur 5 ferskar ananassneiðar 1 rauð paprika 1 gul paprika kirsuberjatómatar 1 rauðlaukur 1 dl ananassafi 1 msk sojasósa 2 msk ólífuolía salt og pipar hvítlaukur og engifer eftir smekk Aðferð: Blandið saman ananassafa, Ýmislegt gott á grillið ( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) frida@feykir.is Kjúklingabringur á teini. MYND AF NETINU sojasósu, ólífuolíu, salt og pipar. Pressaður hvítlaukur og engifer eftir smekk. Skerið kjúkling í bita og látið liggja í kryddleginum í 30 mínútur eða lengur. Leggið grillpinna í bleyti í 30 mínútur til að koma í veg fyrir að þeir brenni á grillinu. Skerið ananas, paprikur og rauðlauk í bita og raðið á grill- pinna til skiptis ásamt kjúklingi og tómötum. Grillið í 15 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður. Penslið með kryddlegi á meðan og snúið nokkrum sinnum á grillinu. AÐALRÉTTUR 2 Grillaður silungur með hnetum og Camembert Silungur (heill), u.þ.b. 2-3ja punda silungur er passlegur á mann púrrulaukur Camembert ostur salthnetur púðursykur salt hvítlaukspipar Aðferð: Hreinsið silunginn með því að skafa roðið létt með hníf undir rennandi vatni (köldu). Afhausið hann og skerið sporðinn af. Hægt er að bera silungana fram heila eða hluta þá niður. Athugið að kviðurinn er fylltur. Myljið salthneturnar. Sneiðið púrrulaukinn og bitið Camembert ostinn. Byrjað er á að krydda silunginn að innan og utan með hvítlauks- piparnum og ca 1-3 tsk af púðursykri (fer eftir hve fiskurinn er stór). Sykurinn gerir fiskinn safaríkann. Fyllið síðan silunginn með púrrulauk, Camembert og dálitlu af hnetum. Stráið svo salthnetum yfir fiskinn og kryddið með hvítlauks- pipar og dálitlu af salti. Pakkið inn í álpappír og grillið í u.þ.b. 12 mínútur á hvorri hlið. Borið fram með bakaðri kartöflu, salati og jafnvel heitu brauði. Svo er að sjálf- sögðu gott að drekka ískalt vatn, nú eða þá hvítvín með. EFTIRRÉTTUR Grillaður ananas með ís Ananas, skorinn í u.þ.b. sentímeters þykkar sneiðar ís ½-1 dl púðursykur (má sleppa) 1 dl romm (ananassafi ef rétturinn á að vera óáfengur) 1 dl stórar kókosflögur Aðferð: Skerið ananasinn í sneiðar og skerið börkinn af. Blandið púðursykri og rommi (ananassafa) saman. Leggið ananas sneiðarnar á fat og hellið leginum yfir, látið standa í 30 mínútur og snúið ananasnum reglulega svo hann marinerist á báðum hliðum. Kveikið á grillinu og stillið á miðlungs hita. Ristið kókosflögurnar á pönnu og látið þær brúnast örlítið. Gott er að taka ísinn úr frystinum þegar hér er komið sögu til þess að hann sé ekki of frosinn þegar á að fara nota hann. Grillið ananasinn í um það bil fimm mínútur eða þangað til hann er orðinn heitur í gegn og aðeins far- inn að brúnast. Raðið saman á disk ananas, ís og kókosflögum. Verði ykkur að góðu! 22/2019 11 Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. FEYKIFÍN AFÞREYING Taumhald ég á öðrum er. Á ein syðra nafn það ber. Hægra megin hásetans. Hæstvirt titluð innanlands.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.