Feykir - 23.10.2019, Blaðsíða 10
Körfuboltaskólinn er að virka
Körfuknattleiksmaðurinn og þriggja stiga skyttan
hjá Tindastól, Helgi Freyr Margeirsson, hefur lagt
keppnisskóna á hilluna eins og fram hefur komið á
Feyki.is. Keppnisferillinn spannar 22 ár, lengstum
með meistaraflokki Tindastóls en hann var aðeins
14 ára gamall er hann spilaði sinn fyrsta
meistaraflokksleik með Stólum tímabilið 1996-
1997. Nú er komið að nýjum kafla í lífi Helga þar
sem hann helgar sig útbreiðslu íþróttarinnar í
Körfuboltaskóla Norðurlands vestra og hafði Feykir
samband við kappann og forvitnaðist um þá vinnu.
Körfuboltadeild Tindastóls þakkaði Helga fyrir hans
aðkomu að körfuboltanum hjá félaginu í færslu á
Facebook-síðu í síðustu viku: „Helgi hefur verið
lykilleikmaður í uppgangi Tindastóls síðan hann kom
aftur bæði innan vallar sem utan. Frábær liðsfélagi
sem var til í að aðstoða liðið eða liðsfélaga á hvaða hátt
sem þurfti. Það sýndi sig mjög vel til dæmis þegar
ungt og óreynt lið Tindastóls fór alla leið í úrslit árið
2015. En eftir 22 ára feril sem meistaraflokksleikmaður
eru skórnir komnir upp í hillu. Körfuknattleiksdeild
Tindastóls vill koma miklum þökkum til Helga Freys
og hans fjölskyldu fyrir hans framlag til Tindastóls í
gegnum þessi 22 ár, en án heimamanna sem eru
tilbúnir að leggja sig alla fram fyrir klúbbinn er ekki
hægt að ná þeim árangri sem Tindastólsliðið hefur
náð síðustu ár.“
Helgi svaraði fyrir sig á Facebooksíðu sinni: „Ég vil fá
að nýta þetta tækifæri og segja takk fyrir mig
Körfuknattleiksdeild Tindastóls og allt það frábæra fólk
sem ég hef kynnst og fengið að vinna og spila með í
gegnum tíðina. Körfuboltinn hefur gefið mér svo
margt, mótað persónu mína og opnað ótal dyr í gegnum
tíðina. Í kringum körfuboltann hef ég eignast vini út
um allan heim fyrir lífstíð og fyrir það verð ég ævinlega
þakklátur. Það er svo langt í frá sjálfgefið, og í raun
ómetanlegt, að hafa haft tækifæri til að stunda íþróttina
sem maður elskar á jafn háu getustigi og býðst hér á
Sauðárkróki, höfuðstað Norðurlands. Það sem gerir
þetta að möguleika eru skilningsríkir vinnuveitendur
og stuðningsmenn félagsins út um allt land sem eru
mjög virkir í að styðja Tindastól, hvort sem það er í
stúkunni, með sjálfboðavinnu eða fjárhagslega. Í lokin
vil ég þakka fjölskyldunni minni og sérstaklega elsku
Margréti fyrir að standa ávallt við bakið á mér og gera
þennan langa feril mögulegan. Nú er komið að næsta
kafla, meiri tími með fjölskyldunni og svo útbreiðsla
körfuboltans á Norðurlandi vestra í gegnum
Körfuboltaskóla Norðurlands vestra.“
Þjálfarar góðar fyrirmyndir
Körfuboltaskólinn gengur út á námskeið fyrir krakka á
Norðurlandi vestra og er góður vettvangur til að tengja
krakkana á svæðinu saman félagslega og auka
körfuboltaáhuga þeirra, segir á Facebooksíðu skólans
en hann tók til starfa vorið 2018 með prufunámskeiðum
sem gengu mjög vel og í framhaldinu var ákveðið að
fara af stað af fullum krafti í september 2018.
„Námskeiðin hafa gengið mjög vel og alls staðar verið
tekið vel á móti okkur. Það er frábært að upplifa hvað
krökkunum finnst gaman að takast á við krefjandi
æfingar í bland við allt fjörið sem fylgir körfuboltanum.
Það hefur einnig verið mjög mikilvægt fyrir okkur að fá
jákvæða umsögn foreldra sem hafa fylgst með
æfingunum og eru mjög ánægðir með það sem þeir sjá.
Þau segja líka að körfuboltar og körfuboltaspjöld séu
komin á gjafalistana fyrir afmælis og jólagjafir,“ segir
Helgi sem bendir á að námskeið skólans séu auglýst á
Facebook-síðu Körfuboltaskólans en fólk þarf að ,,líka“
við síðuna svo það fái tilkynningu.
Síðasta vetur stóð skólinn fyrir 19 námskeiðum; á
Blönduósi, Skagaströnd og Hvammstanga.
Námskeiðin eru oftast um helgar, en einnig eitthvað í
skólafríum sem Helgi segir að hafi mælst mjög vel fyrir
hjá foreldrum sem vita þá af börnunum sínum í
heilbrigðu umhverfi með skólafélögum sínum.
Hjá Körfuboltaskólanum hafa starfað átta þjálfarar en
auk Helga Freys, sem er yfirþjálfari og ábyrgðarmaður
verkefnisins, hafa komið inn sjö aðrir þjálfarar. Af
þeim hafa verið þrír kvenkynsþjálfarar og fjórir
karlkynsþjálfarar. Helgi segir að sérstaklega sé horft til
þess að þjálfararnir séu góðar fyrirmyndir, innan sem
utan vallar, og séu tilbúnir að gefa af sér.
Aðspurður um dæmigerðra æfingu segir Helgi: „Í
upphafi hverrar æfingar vinnum við mikið með grunn-
og tækniæfingar í gegnum knattrak, sendingar og skot.
Þetta er svo fært inn í leiki og meiri hraða þegar líður á
æfinguna, oft með einhvers konar keppni. Flestar
æfingar enda svo í spili. Allan tímann er verið að vinna
með jákvæðni í samskiptum, jákvæða sjálfsmynd og
aga.“
Svo vel hafa þessar æfingar og kynning á körfuboltanum
mælst fyrir að verið er að kanna með reglulegar æfingar
á Blönduósi og vonar Helgi að það geti orðið að
veruleika. „Nú voru tvær æfingar í byrjun síðustu viku
þar sem mættu 30 krakkar og er vitað um nokkra sem
hefðu viljað mæta en áttu ekki heimangengt þannig að
áhuginn er mikill. Það kemur í ljós á næstu dögum
hvort áframhald verði á því verkefni. Geislinn,
íþróttafélagið á Hólmavík, hefur svo óskað eftir því að
fá námskeið til sín sem verður núna fljótlega en við
höfum ekki farið þangað áður þannig að hugmyndin
um Körfuboltaskólann er að virka enda er körfuboltinn
frábær íþrótt fyrir smærri bæjarfélög.“
Að lokum vill Helgi koma þökkum á framfæri fyrir
þessi góðu viðbrögð sem námskeiðin eru að fá. „Ég
vonast til þess að sjá sem flesta krakka á þeim í vetur og
hvet foreldra, forráðamenn, afa og ömmur til að bjóða
krökkunum á námskeið Körfuboltaskólans þegar hann
er á svæðinu.“ /PF
Keppnisskór Helga Freys komnir upp á hillu
Helgi Freyr leiðbeinir áhugasömum körfuboltakrökkum á Blönduósi í síðustu viku. MYNDIR: GUÐRÚN BJÖRK ELÍSDÓTTIR
Helgi Freyr ásamt fjölskyldu sinni og systrum þegar Tindastóll varð
Bikarmeistari árið 2018. MYND: ÚR EINKASAFNI
10 40/2019