Morgunblaðið - 06.05.2020, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2020
Alhliða bókhaldsþjónusta
Eignaskiptayfirlýsingar
Numerus – bókhald og ráðgjöf / Suðurlandsbraut 22 / S: 896 4040
Fjárhagsbókhald Afstemmingar
Viðskiptamannabókhald
Launavinnslur Virðisaukaskattur
Reikningagerð
Skattframtöl Ársreikningar
Fjármálastjórn Áætlanagerð
Eignaskiptayfirlýsingar Skráningartöflur
mánuðum verði heimilt að innleysa
hana eins og það er orðað.
Ferðamálastofa bendir á í umsögn
að á meðan þetta tímabil varir sé til
staðar tryggingarkerfi sem grípi inn í
og endurgreiði kröfur komi til þess
að ferðaskrifstofa missi rekstrarhæfi
sitt og verði gjaldþrota.
Danir komu á fót einum sjóði
Sala pakkaferða er tryggingarskyld
og ferðaskrifstofunum er skylt að út-
vega tryggingar. Ekki virðist hins
vegar ljóst hvort tryggingar þeirra
standa allar undir skuldbindingum
þeirra í dag. Halla Signý segir að rætt
hafi verið um að 20 stærstu ferðaskrif-
stofurnar séu með tryggingar sem
dugi. Neytendasamtökin benda aftur
á móti á að ef sú leið verði farin að
heimila ferðaskrifstofum að skikka
ferðamenn til að taka við inneign-
arnótum sé lágmarkskrafa að þær
verði að fullu tryggðar komi t.d. til
gjaldþrots ferðaskrifstofa. Núverandi
tryggingafyrirkomulag veiti ekki
næga tryggingu til endurgreiðslu.
Benda þau á önnur lönd þar sem
vernd neytendanna sé betur tryggð,
s.s. í Danmörku. Þar hafi stjórnvöld
lagt til mikið fjármagn í einn trygging-
arsjóð sem tryggi að neytendur geti
gengið að því vísu að fá endurgreitt að
fullu og í Noregi hafi neytendur val
um hvort þeir þiggja inneignarnótur
eða endurgreiðslur.
takmarkanir sem honum fylgja geri
ferðaþjónustuaðilum ókleift að af-
henda þjónustu og neytendum
ókleift að nýta hana. Markmið breyt-
inganna sé að koma í veg fyrir gjald-
þrot ferðaskrifstofa vegna lausa-
fjárskorts.
Óumdeilt er að gildandi lög veita
ferðamönnum skýlausan rétt á fullri
endurgreiðslu pakkaferða í reiðufé
innan 14 daga eftir að pakkaferð er
aflýst eða hún afpöntuð vegna
óvenjulegra og óviðráðanlegra að-
stæðna. Lögin byggjast á tilskipun
ESB um þennan rétt til endur-
greiðslu. Í greinargerð frumvarpsins
segir að ljóst sé að breytingarnar
sem þar eru lagðar til fari í bága við
skýr ákvæði tilskipunarinnar og
kunni að brjóta gegn þjóðréttar-
legum skuldbindingum Íslands.
Telja verði hins vegar réttlætanlegt
að fara þessa leið vegna þeirra for-
dæmalausu aðstæðna sem uppi eru.
Ef ekki verði veitt heimild til að end-
urgreiða pakkaferðir með inneignar-
nótum megi gera ráð fyrir miklum
fjölda gjaldþrota vegna krafna um
endurgreiðslur. Fjölmargar aðrar
Evrópuþjóðir fari svipaða leið.
Frumvarpið kveður á um að ferða-
skrifstofum verði heimilt að endur-
greiða pakkaferðir sem voru afpant-
aðar eða aflýst á tímabilinu 15. mars
til og með 30. júní með inneignar-
nótu. Sé hún ekki nýtt að liðnum 12
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Umdeilt frumvarp ferðamálaráð-
herra, sem heimilar ferðaþjónustu-
fyrirtækjum að endurgreiða ferða-
mönnum pakkaferðir sem hafa verið
afpantaðar eða aflýst með inneign-
arnótum í stað reiðufjár, er enn til
umfjöllunar í atvinnuveganefnd Al-
þingis. Halla Signý Kristjánsdóttir,
framsögumaður nefndarinnar, segir
nefndina hafa fengið marga gesti á
sinn fund og beðið um ítarlegri upp-
lýsingar um til hvaða aðgerða önnur
Evrópulönd hafa gripið. Ekki liggur
fyrir að sögn hennar hvort nefndin
muni leggja til breytingar á frum-
varpinu.
Neytendasamtökin, ASÍ og BSRB
hafa gagnrýnt frumvarpið harðlega.
Með því sé lausafjárvanda fyrirtækja
velt á herðar neytenda. Breki Karls-
son, formaður Neytendasamtak-
anna, segir í svari til blaðsins að það
sé stórskrýtið að gera eigi neytendur
að lánveitendum ferðaskrifstofa og
spyr hvernig fólk eigi að geta ferðast
innanlands í sumar ef ferðasjóðurinn
sé fastur í inneignarnótu sem ekki sé
tryggt að verði hægt að nota fyrr en í
fyrsta lagi í haust ef það verði þá
nokkurn tíma hægt.
Samtök ferðaþjónustunnar segja
aftur á móti í umsögn að heimsfar-
aldur kórónuveirunnar og þær ferða-
Morgunblaðið/Eggert
Leifsstöð Allar ferðir hafa fallið niður vegna heimsfaraldursins. Talið er að það myndi reynast mörgum seljendum
pakkaferða ofviða að endurgreiða með reiðufé innan 14 daga þær ferðir sem hefur þurft að aflýsa.
Inneignarnóturnar
falla í grýttan jarðveg
20 stærstu ferðaskrifstofurnar með tryggingar sem duga
Fjórtán íslenskir jöklar, víða um
land, minnkuðu undantekningar-
laust á tímabilinu 1945-1960. Frá
1960 til 1994 voru þeir nærri jafn-
vægi eða að stækka en frá 1994 til
2010 rýrnuðu jöklarnir mjög
hratt. Eftir það hægði á rýrn-
uninni til muna og Öræfajökull
bætti meira að segja við sig. Tíma-
bili hægari rýrnunar lauk sumarið
2019 sem var íslenskum jöklum
einkar óhagstætt.
Þetta kemur fram í grein eftir
Joaquín Muñoz-Cobo Belart í nýj-
asta fréttabréfi Jöklarannsókna-
félags Íslands. Hann flutti erindi
um afkomu jöklanna og breytilega
svörun þeirra við loftslagsbreyt-
ingum á vorfundi Jöklarannsókna-
félagsins í gærkvöld. Fjarfund-
urinn var sendur út á jorfi.is.
Yfirlitið um jöklabreytingarnar
er byggt á miklu magni fjarkönn-
unargagna. Meginuppistaða
þeirra er safn loftmynda í fórum
Landmælinga Íslands. Út frá þeim
var hægt að vinna hæðarkort af
jöklunum á 10 til 20 ára fresti.
Auk þess að sjá sporðabreytingar
var hægt að meta hæðarbreyt-
ingar og þar með afkomu jöklanna
og hvenær rúmmál þeirra hafði
aukist eða minnkað frá 1945. Með
því að bera þessar upplýsingar
saman við gögn um hitastig og úr-
komu fæst betri skilningur á svör-
un jöklanna við loftslagsbreyt-
ingum.
Flatarmál íslenskra jökla hefur
minnkað um u.þ.b. 800 km2 frá
árinu 2000 og um tæplega 2.200
km2 frá lokum 19. aldar þegar
jöklarnir náðu mestu útbreiðslu
síðan land byggðist. Þetta kom
fram á vefnum vedur.is.
gudni@mbl.is
Rýrnun jökla lesin
af loftmyndum
Þróun 14 jökla frá 1945 til 2019
Morgunblaðið/RAX
Öræfajökull Sumarið 2019 var ís-
lensku jöklunum einkar óhagstætt.
Ekkert nýtt kórónuveirusmit
greindist hérlendis næstliðinn sólar-
hring í gær, annan daginn í röð. Á
sýkla- og veirufræðideild Landspít-
alans voru 119 sýni greind, en 749
hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Með virk smit voru 56 en 1.733
höfðu náð sér af kórónuveirunni hér
á landi. Undanfarna tólf daga, eða
síðan fyrsti veirulausi dagurinn var
23. apríl síðastliðinn, hafa aðeins tíu
ný smit verið greind, þannig að far-
aldurinn er greinilega á hraðri nið-
urleið.
Þrír liggja á sjúkrahúsi en enginn
er á gjörgæslu, að því er fram kom á
vefnum covid.is. Tíu eru látin af völd-
um veirunnar hér á landi. Alls hafa
51.345 sýni verið tekin. Í sóttkví voru
750 en 19.338 höfðu þá lokið sóttkví.
Már Kristjánsson, yfirlæknir á
smitsjúkdómadeild Landspítalans,
sagði að það væri í höndum sótt-
varnalæknis og hans fólks að ákveða
hvert framhaldið yrði varðandi sýna-
tökur vegna Covid-19-smits. Hann
minnti á varfærnislega yfirlýsingu
sóttvarnalæknis sem sagði að þetta
væri einfaldlega ekki enn vitað.
Már kvaðst geta sagt sem smit-
sjúkdómalæknir að það væri mjög
stór spurning hvernig ætti að haga
eftirliti vegna útbreiðslu sjúkdóms-
ins í samfélaginu þannig að hægt
væri að bregðast skjótt við ef þörf
krefði.
Hann sagði mikilvægt að menn
yrðu vakandi fyrir því hjá heilsu-
gæslunni og á bráðamóttökum og
göngudeildum sjúkrahúsanna ef
þangað kæmi fólk með öndunarfæra-
einkenni.
„Þá leggjum við til að fólk taki sýni
til greiningar og útilokunar,“ sagði
Már. „Nú höfum við meiri vitneskju
um klínísk einkenni sjúkdómsins. Ef
einhver kemur t.d. með nefrennsli og
minnkað bragðskyn þá getur það
verið vegna Covid-19. Þá þarf að
staðfesta það með sýnatöku og
greiningu. Síðan þarf að beita þeim
úrræðum sem við þekkjum, sóttkví
og einangrun, til þess að missa þetta
ekki úr böndunum.“ gudni@mbl.is
Aðeins tíu ný smit á tólf dögum
Engin ný smit greindust í gær annan daginn í röð Mikilvægt að vera vakandi fyrir einkennum
51.345
sýni hafa verið tekin
1.733
hafa náð bata
10 einstak-lingar
eru látnir
3 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
enginn á gjörgæslu
56 einstaklingar eru með virkt
smit og eru í einangrun
19.338
hafa lokið sóttkví
750
eru í sóttkví
1.799 smit voru
staðfest í gær kl. 13.00
Daglegur fjöldi sýna, 7 daga meðaltal
1.200
1.000
800
600
400
200
0
Mars Apríl Maí
Sýkla- og veirufræðideild LSH
Íslensk erfðagreining
Flest sýni voru tekin
4. apríl, alls 1.754
Heimild: covid.is