Morgunblaðið - 06.05.2020, Síða 21

Morgunblaðið - 06.05.2020, Síða 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2020 „ÉG VAR ENDURRÁÐINN ÞEGAR ÞEIR SÁU AÐ LÖGFRÆÐINGARNIR VORU BÚNIR AÐ RÝJA MIG INN AÐ SKINNI.” „ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ VERA EKKI SVONA LENGI Í BAÐI!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eiga stefnumót. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann KONUNGURINN GAFST UPP Á AÐ LÝSA EFTIR ÞÉR DAUÐUM EÐA LIFANDI! STRÁKAR! ÉG ER KOMINN HEIM! SÖKNUÐUÐ ÞIÐ MÍN? HAH! HANN VEIT SEM ER AÐ ÉG ER ELSKAÐUR AF ALMÚGANUM! SEM SKÝRIR ÞÁ LÍKLEGA NÝJA NÁLGUN HANS. GETIÐ ÞIÐ HÆTT Í TÖLVUNNI EITT ANDARTAK?! Birna, f. 20.9. 2011, og Helga Katrín, f. 27.5. 2014. Þau eru bú- sett í Þorlákshöfn; 3) Ólafur, f. 23.7. 1985, framkvæmdastjóri, bú- settur í Kópavogi. Systkini Hannesar eru Þórður Sigurðsson f. 16.4. 1949, bifreiðar- stjóri, búsettur á Selfossi; Jens Sigurðsson, f. 2.3.1954, iðnfræð- ingur hjá Selfossveitum; Árún Kristín Sigurðardóttir, f. 10.2. 1957, prófessor í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri, og Mar- grét Sigurðardóttir, f. 4.10. 1958, hjúkrunarfræðingur, búsett í Reykjavík. Foreldrar Hannesar voru hjónin Sigurður Hannesson, f. 4.4. 1916, d. 11.12. 1981, bóndi í Stóru- Sandvík og Hólmfríður Þórðar- dóttir, f. 15.6. 1922, d. 6.3. 2003, húsmóðir í Stóru-Sandvík. Hannes Sigurðsson Kristín Oddsdóttir húsfreyja á Þórustöðum Snorri Gíslason bóndi á Þórustöðum í Ölfusi Jensína I. Snorradóttir húsfreyja á Tannastöðum Þórður Sigurðsson bóndi og ættfræðingur á Tannastöðum í Ölfusi Hólmfríður Þórðardóttir húsfreyja í Stóru-Sandvík Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja á Tannastöðum Sigurður Sigurðsson bóndi á Tannastöðum Ari Páll Hannesson b. í Stóru-Sandvík Jóhanna Hannesdóttir húsfreyja í Reykjavík Magnús Jóhannsson fiskifræðingur hjá Hafró Rannveig Pálsdóttir skólameistarafrú á Laugarvatni Hannes Finnbogason skurðlæknir í Reykjavík Kristín Hannesdóttir húsfeyja í Reykjavík Hannes Gunnarsson byggingameistari í Þorlákshöfn Ari Páll Ögmundsson bóndi í Stóru-Sandvík Hannes Þ. Sigurðsson knattspyrnudómari Jóhann Hannesson bóndi í Stóru-Sandvík Magnús Hannesson rafvirkjameistari og eigandi Volta Ögmundur Hannesson bóndi í Stóru-Sandvík Ragnheiður Hannesdóttir húsfreyja í Haga við Selfoss Sigríður Jónsdóttir húsfreyja á Stokkseyri Jóhann Diðrik Adolfsson bóndi á Stokkseyri Sigríður K. Jóhannsdóttir húsfreyja í Stóru-Sandvík Hannes Magnússon bóndi í Stóru-Sandvík Kristín Hannesdóttir húsfr. í Stóru-Sandvík Magnús Bjarnason bóndi í Stóru-Sandvík Úr frændgarði Hannesar Sigurðssonar Sigurður Hannesson bóndi í Stóru-Sandvík í Flóa Hinn 1. maí segir Indriði áSkjaldfönn frá því á fésbók, að „í gærkveldi kom vinur minn, Már Ólafsson sjómaður á Hólmavík, færandi hendi með spriklandi fisk- meti svo í dag var lagst í aðgerð og borðaður rauðmagi í bæði mál og í nótt steiki ég mér rauðsprettu. Þó ég ekki sæki sjó og sé nú langt frá honum, aflabrögðin eru þó eftir bestu vonum. Hallmundur Kristinsson segir, að Trump gamli sé með allt á hreinu: Kínverjar í kærleiksskyni, komnir yfir höf, færðu sínum vildarvini veiruna að gjöf. Á Boðnarmiði vekur Halldór Guðlaugsson athygli á því, að ráð- herra sé fyrstur í rakarastólinn eft- ir sex vikna lokun: Margt gleður augu og eyru á vorin úthaginn grænkar og hjörðin er borin sorgirnar hverfa og síðvetrarhorinn nú Sigurður Ingi er klipptur og skorinn. Örn Guðjónsson er með á nót- unum: Vorið er komið og veturinn búinn og vonandi kórónudraugurinn flúinn. Við söfnuðum hári því hart var í ári uns alveg að skinni var ráðherrann rúinn. Kötturinn Jósefína Meulengracht Dietrich mjálmar: Nú opnast faðmur útbreiddur og æðra færist líf á stig því ef hann verður ættleiddur eignast landið Kim Il-Sig. Jón Atli Játvarðarson talar um „vorverkin og skyldurnar í Breiða- firðinum“: Skítug egg úr skurn ég lep skála í brenndu víni. Marga seinna minka drep miskunn enga sýni. Guðmundur á Sandi orti um Stephan G.: Stephan G. hefur tungur tvær, tyrfin sú vinstri og ófrábær, rassbögufrjó og grasbitsgjörn, gresjar mannýg við leirutjörn. Heimspekileg er hin og góð, hún á skáldmjöð og andans glóð. Þessa stöku kallaði Guðmundur „Jóhann glímir við Galdra-Loft“: Töfrarödd úr kynngi-hvoft kallar nú og lokkar, glíminn mjög við Galdra-Loft gullintanni okkar. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Rauðmagi í bæði mál

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.