Bæjarins besta - 20.12.1985, Side 1
&EIAR1NS BESIA
47.
20. DESEMBER 1985
2. ÁRGANGUR
MS GOÐAFOSS
TIL ÍSAFJARÐAR.
EIMSKIP
AÐSUI
N, ALLA ÞRIÐJUDAGA
,, ALLA LAUGARDAGA
lÉIIIÍÍigBCTBÍMaífeMW
STRANDFLUTNINGAR
SÍMAR:
ÖKRIFSTOFA
*VÖRUHÚS
4555
4556
SERL4 sf.
Munið leikfangahornið í Seríu,
Ljóninu Skeiði.
Fuilt af spennandi leikföngum.
Fyrstu stúdentar úr öldunga-
deild Menntaskólans
Frá brautskráningu stúdenta: Svava Ásgeirsdóttir, Sigríður
Simonardóttir, Kristín Gunnarsdóttir, Guðrún Stefánsdóttir, Guð-
laug Elíasdóttir, Anna Lóa Guðmundsdóttirog Agnes Karlsdóttir.
Sunnudaginn 15. des. voru
útskrifaöur fvrsti hópur stúd-
enta úr öldungadeild Mennta-
skólans á ísafirði. Stúdent-
arnir 7, sem allir luku prófi af
mála- og samfélagsbraut, eru
frá Bolungarvík og ísafirði,
allar konur.
Skólameistari, Björn Teits-
son, ávarpaði viðstadda og
rifjaöi upp aðdraganda öld-
ungardeildar við MÍ og gat
þess, að í upphafi hefðu nem-
endur verið 28 að tölu. Smám
saman féll úr hópnum og að
lokum urðu eftir sjö, sem nú
brautskráðust, en tveir að auki
Ijúka prófi í vor með nem-
enduin dagskólans.
Björn sagði það fáa vilja
sækja þetta nám, að ekki væri
unnt að inrita nvja nemendur á
hverju ári, en reynt yröi annað
hvert ár. Nú eru í deildinni 10,
sem hófu nám haustiö 1984 og
reynt vrði af fremsta megni að
koma hópi af stað næsta haust.
Til þess að framhald gæti
orðið á þessu starfi væri þó
mjög brýnt, að Kvöldskólinn
yrði endurvakinn hið fyrsta.
Marga sem fýsti að nema við
öldungadeildina vantaði und-
irstöðu til þess. Kvöldskólinn
hefði séð fyrir upprifjun eða
fullkomnun grunnskólanáms
t.d. í stærðfræði og tungu-
málum. Aðstaða væri til reiðu
í Menntaskólanum, en stjórn
mála er í höndum bæjaryfir-
valda.
Skólameistari hrósaði ný-
stúdentum fyrir atorku og
vinnusemi. Allir hefðu haft
heimili um að hugsa og jafnvel
aðra vinnu utan þess. Þá sagði
hann og athvglisvert hve Bol-
víkingarnir hefðu sótt kennslu
vel kvöld eftir kvöld þrátt fvrir
að færð hefði oft á tíðum verið
mjög erfið. Hann óskaði þeim
til hamingju með árangurinn;
þessi áfangi veitti aðgang að
háskólanámi og auk þess teldu
margir vinnuveitendur sér hag
að því ráða til sín stúdenta
fremur en þá, sem ekki hefðu
slíkt próf.
Að þessu loknu afhenti
Björn prófskírteini og einnig
verðlaun, sem MI veitti dúxi
öldunga, Guðlaugu Elíasdótt-
ur úr Bolungarvík. Hún
þakkaði fyrir hönd stúdent-
anna með stuttri tölu.
SG.
Ætlarðu að gefa tölvu í jólagjöf?
Tölvuúrvalið er hjá okkur!
Yashica, Commodore, BBC, Electron, Sinclair
+ Sinclair QL., ásamt forritum og fylgihlutum.
POLLINN HF ■ Verslun sími 3792 — Rafþjónusta sími 30921