Bæjarins besta


Bæjarins besta - 20.12.1985, Side 2

Bæjarins besta - 20.12.1985, Side 2
2 BB BÆJARINS BESIA BÆJARINS BESTA kemur út á þriðjudögum. Útgefandi: H-PRENT sf., Suðurtanga 2, ísafirði, sími 4560. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson, Stórholt 7, sími 4277 og Halldór Sveinbjörnsson, Aðalstræti 20, sími 4101. Blaðamaður: Snorri Grímsson, simi4560. Prentun: H-Prent sf. Pósthólf 201. Efnis- og auglýsinga móttaka í ofangreindum símum. Auglýsingaverð kr. 75.- dálksentimeterinn. „Öfug formerki“ Það eru örfáir dagar eftir af árinu 1985. Þegarhorfter til baka og rýnt er í hagskýrslur og tölur, sézt að þetta er eitthvert gjöfulasta ár í sögu þjóðarinnar, bæði til sjós og lands. Erlendir markaðir hafa verið okkur afar hagstæðirog slegizt varum hvern ugga, sem að landi barst, eða var fluttur beint út. En það er eins og það sé alveg sama hversu vel árar, þá virðist eins og dæmið snúist við. Erlendar skuldir hrannast upp og hagur þjóðarbúsins versnar að sama skapi. Fjárlagagatið stækkar ár frá ári og ekki tekist að stoppa upp íþað. Stóra spurningin er og verður: Hvað verður af þessum peningum öllum og hvar eru þeir? Eitt er víst, að ekki hafnar nema lítill hluti þeirra hjá framleiðslu- fyrirtækjunum, sem flest eru rekin með halla og hafa langflest verið rúin sínu eigin fé. Stjórnmálamenn og bankastjórar eru alltaf að tala um, að nú þurfi að stokka upp peningakerfið og koma á betri skipan mála. ,,Leitið og þér munið finna“, segir einhvers- staðar. Umfangsmikið neðanjarðarhagkerfi er rekið hér á landi og veltir milljörðum króna, svo sem í okur- lánum, skattsvikum og margs konar gjaldeyrissvindli. Hvernig væri nú að taka á sig rögg á nýja árinu og framkvæma eignakönnun fyrirvaralaustog skipta um peningaseðla, sem í umferð eru. En það verður að halda rétt á spöðunum svo engu verði undan skotið. Ekkertmá leka útog eignakönnunin verðurað skella á eins og norðan stormur í versta ham. Góðir bæjarbúar og landsmenn! Við skuldum tíunda rétt um þessi áramót og gjalda keisaranum það, sem honum ber, þá verður auðvelt að lifa í þessu landi. Góðir bæjarbúar þetta er síðasta blaðið, sem kemur út á þessu ári. Eg óska ykkurog öllum landsmönnum gleðilegra jóla og gleðilegs árs. ISNOB vyt U-DDCMT ssísss™ ZAA n rnCN I Sími 4560 UPPSALIR Veitinga- og skemmtistaður í hjarta bæjarins SÍMI3985 JÓLADANSLEIKUR Annan f jólum, kl. 23 - 03 Óvæntur jólaglaðningur BG-flokkurinn skemmtir ATH! föstudaginn 27. des. JÓLADISCOTEK kl. 23 - 03. Aldurstakmark 16 ára Laugardaginn 28. des. kl. 23 - 03 JÓLADANSLEIKUR Fordrykkur, Kvartett MÍsyngur, jólaglaðningur, BG-flokkurinn leikur Aldurstakmark 20 ára Gamlárskvöld kl. 00 - 04 BG - FLOKKURINN SKEMMTIR Aldurstakmark 18 ára

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.