Bæjarins besta - 20.12.1985, Qupperneq 8
8
BB
Vestfjarðarferðir seljast
vel í Bretlandi
Baksíðufrétt í NT, föstu-
daginn 13. des. vakti athygli
margra. Þar var sagt frá því, aö
hjá bresku ferðaskrifstofunni
Twickenham Travel væri búist
við mikilli aukningu breskra
ferðamanna til Islands. Á
hennar vegum komu um 2500
manns síðastliðið sumar, en
búist er við 20-40% aukningu
þar á. Fyrir Vestfirðinga er
það athyglisverðast við þessa
frétt, að ferðamönnum til
Vestfjarða fjölgar hvað mest.
Ferðir, sérstaklega auglýstar
til Vestfjarða, eru nýlunda og
virðast draga að sér athygli
erlendra ferðamanna.
Þessar ferðir eru skipu-
lagðar af tveim íslenskum
ferðaskrifstofum; Guðmundi
Jónassyni hf. og Arena Tours.
Um er að ræða fugla-
skoðunarferðir að hluta, þar
sem farið verður á Látrabjarg
og ekið um Vestfirði, en
Arena Tours bjóða að auki
þriggja daga ferð um Horn-
strandir.
BB hafði af þessu tilefni
samband við Sverri Hestnes á
Ferðaskrifstofu Vestfjarða og
spurði hvort hann vissi nánar
af þessu. Hann kvaðst ekki
vita meira um bókanir í þessar
ferðir en það, sem stæði í NT.
Þetta hefði komið sér
skemmtilega á óvart, ekki síst
þar sem FV væri aðili að ferð-
unum sem Arena Tours skipu-
legðu. Hornstrandahlutinn af
þeim feröum væri keyptur af
Ferðaskrifstofu Vestfjarða og
það virtist vera hann, sem
drægi hvað helst.
Sverrir sagði Hornstranda-
ferðirnar hafa verði á áætlun
ferðaskrifstofunnar síðustu ár,
en við dræmar undirtektir. Sér
virtist sem nú væri það að
breytast. „Það þarf nokkur ár
til þess að komast inn á kortið
hjá ferðaskrifstofunum,“
sagði hann og nefndi ferðir um
Isafjörð og Bolungarvík sem
dæmi. Fyrir fjórum árum hóf
FV slíkar ferðir og varð í
fyrstu að fara bónarveg að
ferðaskrifstofum í Reykjavík
svo þær létu ferðamenn vita af
þeim. Nú þarf þess ekki; nú er
bókað í þær ferðir og þær eru
mikið notaðar.
En hvaða hag höfum við af
því að ferðamenn vilji fara hér
um? Því svaraði Sverrir svo,
að þeir hjálpuðu m.a. við
almennar samgöngur, því
vegna þeirra væri aukin ferða-
tíðni. Ferðamenn skildu eftir
ótrúlega mikið fé þar sem þeir
færu um, því flestir þeirra
keyptu flutning, gistingu, fæði
eða leiðsögn og aðstoð.
Aðspurður um viðskiptin
yfir vetrarmánuðina, sagði
Sverrir að þau væru alltaf
nokkur. Fólk færi í hópferðir,
innanlands og utan, einstakl-
ingar og fjölskyldur færu í
sólarlandaferðir og almenn
farmiðasala innanlands væri
talsverö. Þó sagði hann meira
mega vera af því að fólk tæki
farmiða sína á ferðaskrifstof-
unni, svo ekki þyrfti eins
langan afgreiðslutíma á flug-
vellinum. Ef meirihluti far-
þega gerði það, mundi biðtími
flugvéla á vellinum geta styst
verulega.
SG.
Úr ferð FV. í Hornvík.
Nýkomnir loðfóðraðir
kuldasamfestingar á kr. 4.365.
☆ Skyrtur í úrvali
☆ Peysur
☆ Buxur
☆ Leðurjakkar
íslenski rakspírinn
Sokkabuxur í tískulitum
☆
Islenska ilmvatnið komið aftur
☆
Allskonar barnafatnaður
ATH.: Opið í hádeginu
ATHUGIÐ: OPIÐ I HA.DEGINU
KAUPFÉLAG ÍSFIRÐINGA
EINAR OG KRISTJÁN
DÖMUDEILD:
☆ Náttkjólar
☆ Undirkjólar
☆ Sloppar
☆ Pils
☆ Buxur
☆ Peysur
Herradeild: