Bæjarins besta - 06.05.1986, Síða 6
6
RÆIARINS BESTA
Nú vilja allir greiða
í lífeyrissjóð
Á fróðlegum fundi, sem félag
ungra Sjálfstæðismanna boðaði til
á Hótel ísafirði sl. föstudagskvöld,
hélt Vilhjálmur Egilsson, hag-
fræðingur VSÍ, framsöguerindi
um nýja húsnæðislánakerfið.
Fundurinn var fjölsóttur mönnum
úr hinum ýmsu flokkum, enda
málið öllum skylt.
Vilhjálmur fjallaði í erindi sínu
um þær breytingar sem ný lög um
húsnæðislán hefðu í för með sér. í
fyrsta lagi hækka lánin mjög, sér-
staklega til þeirra sem byggja eða
kaupa í fyrsta sinn. f öðru lagi
verður aðild og greiðsla til lífeyris-
sjóðs skilyrði fyrir lánveitingu frá
Húsnæðisstofnun og miðast láns-
réttur við það hlutfall ráðstöfun-
arfjár, sem lífeyrissjóður um-
sækjanda ver til skuldabréfa-
kaupa af Húsnæðisstofnun. í
þriðja lagi verða reglur um lána-
rétt einfaldaðar: Fjölskyldustærð
skiptir ekki máli; íbúðarstærð
ekki heldur, utan hvað lán
skerðast um 2% fyrir hvern fer-
metra umfram 170. Lánsréttur
einstaklinga er jafn því sem er hjá
hjónum, miðast við skuldabréfa-
kaup lífeyrissjóðsins sem hann
greiðir í, en meðaltal skulda-
bréfakaupa lífeyrissjóða hjón-
anna. Vinni einungis annað úti er
tekið mið af rétti þess þeírra sem
úti vinnur.
Að lokinni framsögu Vilhjálms
urðu nokkrar umræður um málið
og sýndist flestum horfa til bóta.
Menn vörpuðu spurningum til
framsögumanns s.s. hver staða
þess fólks væri nú sem lenti í
vandræðum vegna misgengis vísi-
talna á linum árum; hvort hún
batni nokkuð. Pví svaraði Vil-
hjálmur svo, að hann teldi ekki
hægt að lagfæra það nema ef vera
kynni með skattaívilnunum.
Athugasemdir og efi komu fram
um það. að Húsnæðisstofnun gæti
valdið hlutverki sínu, hún yrði
dragbítur á framgang mála hér
eftir sem hingað til. Rétt væri, að
hin nýju lög væru einfaldari þeim
fyrri, en eftir væri að setja reglu-
gerð um útfærslu þeirra og þar
mætti e.t.v. búast við flækjum.
Við birtum hér kafla úr plaggi
sem Vilhjálmur var með á fund-
inum.
Aðalatriði lagafrumvarps
um nýtt
húsnæðislánakerfi
HÆKKUN LÁNA
Húsnæðislánin hækka, sér-
staklega til þeirra sem eru að
koma sér þaki yfir höfuðið í fyrsta
sinn. Lán til þeirra geta orðið allt
að 2.100 þús. krónur til kaupa á
nýrri íbúð og allt að 1.470 þús.
krónur til kaupa á notaðri. Þeir
sem eiga íbúð fyrir geta fengið allt
að 1.470 þús. krónum til kaupa á
nýrri íbúð og allt að 1.029 þús. til
kaupa á notaðri. (Fjárhæðir
miðast við byggingarvísitölu 250).
Þeir sem eru að byggja eða
kaupa í fyrsta sinn njóta forgangs.
LÁNSRÉTTUR MIÐAST VIÐ
SKULDABRÉFAKAUP LÍF-
EYRISSJÓÐA.
Lánsréttur fer eftir því hversu
háu hlutfalli af ráðstöfunarfé sínu
lífeyrissjóður umsækjanda ver til
skuldabréfakaupa af húsnæðis-
stofnun.
Skuldabréfakaup fyrir 55% af
ráðstöfunarfé veita fullan rétt, en
20% hlutfall veitir minnsta rétt.
Miðað er við að umsækjandi
hafi greitt í lífeyrissjóð í undan-
gengin tvö ár áður en umsókn er
lögð fram. (Síðan 1980 hefur
öllum launþegum og þeim sem
stunda atvinnurekstur eða sjálf-
stæða starfsemi verið rétt og skylt
að eiga aðild að lífeyrissjóði).
LÁNSRÉTTUR EINSTAKLINGA
OG HJÓNA
Lánsréttur einstaklings miðast
við skuldabréfakaup lífeyris-
sjóðsins sem hann greiðir I.
Lánsréttur hjóna eða sambýlis-
fólks, sem bæði eru á vinnu-
markaði, ræöst af meðaltali
skuldabréfakaupa lífeyrissjóða
þeirra.
Lánsréttur hjóna eða sambýlis-
fólks, þar sem heimilisstörf er
aðalstarf annars þeirra, ræðst af
lánsrétti þess sem er á vinnu-
markaðnum.
GREIÐSLUÁÆTLUN OG MILLI-
GANGA LÁNASTOFNANA.
Áður en gengið er frá láns-
samningi skal ganga frá greiðslu-
og kostnaðaráætlun og um-
sækjanda kynnt greiðslubyrði
hans. Heimilt er að synja um lán
ef umsækjandi ræðuraugljóslega
ekki við framkvæmdina.
Umsækjandi getur átt kost á því
að mat kostnaðar- og greiðslu-
áætlana sé á vegum lánastofn-
ana sem Húsnæðisstofunun
hefur gert samning við. Sér þá
viðkomandi lánastofnun um láns-
samning, afgreiðslu og útborgun
lánsins.
STÆRÐARREGLUR
Lán vegna nýrra íbúða
skerðast um 2% fyrir hvern fer-
metra sem er umfram 170 fer-
metra. Er þá miðað við innanmál
útveggja hússins alls að frá-
dregnum bílskúr.
BINDANDI SVAR
Umsækjendur fá, innan
tveggja mánaða eftir að fullgild
umsókn er lögð fram, bindandi
svar um lánsfjárhæð og af-
greiðslutíma lánsins.
VANTAR BÍLA Á SKRÁ!
Mikil sala
Opið næstu laugardaga kl. 13.00 -16.00
Vélsmiðjan Þór hf
Sími3057
------------------------------------^
SM SKIPASMÍÐASTÖÐ MARSELLÍUSAR hf.
/ /\ \ Símar: Skrifstofa 3575 - Lager 3790
\_V / l Pósthólf 371 400 ísafirði
íbúð óskast
Óskum eftir að taka á leigu, nú þegar,
íbúð fyrir starfsmann
Upplýsingar í síma 4470
____________________________________>
Fótaaðgerðastofa Ingibjargar hefur opnað aftur
OPIÐ: Mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga frákl. 13-18 Fimmtudaga kl. 13 - 20 Pantið tíma í síma 4780 (á stofunni) eða 4439 (heima)
FÓTAAÐGERÐASTOFA INGIBJARGAR
Höfum tekið upp
mikið af nýjum fatnaði
Gjörið svo vel að líta inn
Aðalstræti 20, sími 4550, ísafirði
v_________________________________________________________/