Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.05.1986, Blaðsíða 8

Bæjarins besta - 06.05.1986, Blaðsíða 8
8 frEJARINS BESTA <-------------------------------- FÉLAGSSTARF ALDRAÐRA: Ekki aðeins fyrir íbúa á Hlíf heldur alla aldraða bæjarbúa fé fyrir 2 stórum vefstólum, kaffi- stelli fyrir 100 manns o.fl. Nú er t.d. verið að afla fjár fyrir sauma- vél. „Mér finnst verst,“ sagði Malla, „hve margir halda að þetta sé aðeins ætlað Hlífarbúum. Félags- starfið er ætlað öllum þeim sem komnir eru á þennan aldur og vilja hafa eitthvað að gera eða fá félagsskap. Fólk mætti fara að hyggja að þessu fyrr, koma meðan það er ennþá nógu hresst.“ í stórviðrinu sem gerði 1. maí var kaffisala og söluborð auglýst á vegum Félagsstarfs aldraðra á 4. hæð í Hlíf. Þrátt fyrir slæmt veður og færð voru margir sem lögðu leið sína þangað og gerðu sjálfsagt góða verslun. Það var svo daginn eftir, að BB brá sér inn á Hlíf, þrammaði upp á 4. hæð og hitti að máli Málfríði Halldórsdóttur, hana Möllu, sem var þar við handavinnu- og föndurleiðbein- ingar ásamt Herdísi Viggósdóttur. Spurð um Félagsstarf aldraðra sagði Malla að það væri rekið af bænum og væri ætlað lífeyris- þegum. Aldur sagði hún þó ekki skipta meginmáli; þeir sem væru á aldrinum 60-65 ára væru guð- velkomnir líka. „Meginmarkmið- ið er að hjálpa fólki að eiga góða ellidaga, veita því verkefni og félagsskap.“ I félagsstarfinu er ýmislegt að gerast. Það er föndrað í salnum á Hlíf auk þess sem Malla fer á sjúkrahúsið og elliheimilið til Á vegum félagsstarfsins hafa verið farnar bæði langar og stuttar ferðir. í sumar stendur ein slík til, fáist næg þátttaka Hér getur að líta hluta afrakstursins þeirra sem þar eru. Einu sinni í viku er spiluð vist og þá koma gjarna um 40 manns utan úr bæ, eins og Malla sagði, þá „er þetta félagsstarf alls ekki takmarkað við íbúana á Hlíf. Á því eiga allir rétt.“ Eins og áður sagði fer margt þarna fram. Fólk vinnur að saumum, prjóni, glermálun, fata- málun, hnýtingum, vefnaði og það eru námskeið í bókbandi og keramikvinnu. Margir útbúa gjafir af ýmsu tagi, aðrir skreyta heimili sín. Tvær miklar sýningar hafa verið settar upp og jafnframt seldur hluti framleiðslunnar. Og á fimmtudaginn var líka selt drjúgt. Á þennan hátt hefur verið safnað Míní-ökuleiknis- torfæru-rallý Þennan þurfti að bera úr skaflinum Míní-ökuleiknis-torfæru-rallý var haldið á ísafirði, laugardaginn 19. apríl. Var lögð braut á svæði þar sem keppendur þurftu að leysa ýmsar þrautir og aka tor- færur. t.d. aka í árfarvegi og snjó- skafli o. fl. Þrautirnar voru t.d. að kasta bolta á ferð í mark og negla 3” nagla í spýtu. Gekk flestum erfiðast að hitta í mark með bolt- anum. Úrslit uröu þessi: 1. Ásberg Pétursson 135 rst. 2. Einar Halldórsson 155 rst. 3. Einar Halldórsson, jr. 184 rst. Isafjarðardeild Bindindisfélags Ökumanna sá um keppnina og þótti hún takast mjög vel. Gef- endur verðlauna voru Mjólkur- samlag ísfirðinga. Niðursuðu- verksmiðjan hf og Hótel ísa- fjörður. Deildin þakkar öllum þessum fyrirtækjum veittan stuðning. (fréttatilkynning)

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.