Bæjarins besta - 06.05.1986, Qupperneq 11
BÆIARINS BESTA
11
*
Isafjarðarkaupstaður
Hreinsunarvika 12. til 17. maí. 1986.
Á tímabilinu 12. til 17. maí n.k. verður almenn
hreinsunarherferð í bænum.
Við biðjum þig að hreinsa allt rusl af lóðinni þinni,
fegra hana og snyrta, en starfsmenn áhaldahúss
bæjarins munu aðstoða þig við að koma ruslinu
í burtu og mun sorphreinsunarbíll fara um íbúð-
arhverfi bæjarins á eftirtöldum dögum og
hreinsa það rusl, sem komið er út á götu:
Mánudaginn 12. maí:
Af svæðinu Suðurtangi að Austurvegi.
Þriðjudaginn 13. maí:
Af svæðinu Austurvegur að Sólgötu.
Miðvikudaginn 14. maí:
Af svæðinu efri bærinn ofan Sólgötu og Túnin.
Fimmtudaginn 15. maí:
Af svæðinu í Holtahverfi.
Föstudaginn 16. maí:
Af svæðinu í Hnífsdal.
Laugardaginn 17. maí:
Almennur hreinsunardagur.
Dagana 12. og 13. maí n.k. geta þeir sem losna
vilja við bílhræ eða kofa af lóðum sínum, fengið
til þess aðstoð áhaldahúss bæjarins, eigendum
að kostnaðarlausu. í því skyni skal hafa samband
við Þorbjörn Jóhannesson bæjarverkstjóra í síma
3443.
Öllum fyrirtækjum í bænum hefur verið sent bréf,
þar sem hvatt er til að starfsmenn hreinsi lóðir
viðkomandi fyrirtækja 9. maí n.k.
Við hvetjum alla ísfirðinga til að leggja sitt af
mörkum til að hreinsa og fegra bæinn og taka
þátt í hreinsunarherferðinni.
Minnumst þess að HREINN BÆR ER OKKUR KÆR.
Minnumst þess að HREINN BÆR ER BETRI BÆR.
Bæjarstjórínn á ísafirði.
Starfsfólk — Sumarstarf
Óskum eftir að ráða yfirflokkstjóra og flokk-
stjóra við vinnuskóla og starfsvelli.
Einnig vantar starfsmann við íþróttasvæði.
(vallarstjóra).
Vinnuskóli ísafjarðarkaupstaðar
Vinnuskóli verður starfræktur í sumar, frá
2. júní — 31. júlí. Þeir unglingar er ætla að
láta skrá sig geri það fyrir 20. maí '86.
Aldur: Fæðingarár '71, ’72 og ’73.
Skráning fer fram á afgreiðslu bæjarskrif-
stofunnar.
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.
æH-PR ii í f ÖLL ALMENN PRENTÞJÓNUST A 1 Sími4560
Vorhljómleikar
Sunnukórsins
Um næstu helgi efnir Sunnu-
kórinn til tvennra hljómleika.
Stjórnandi verður Hörður Ás-
kelsson. organisti við Hallgríms-
kirkju. en Margrét Bóasdóttir
hefur æft kórinn og stjórnað í
vetur.
Auk kórsins koma fram ýmsir
hljóðfæraleikarar og Margrét
Bóasdóttir. sópransöngkona
syngur einsöng. Á efnisskrá eru
kórverk auk einsöngs og orgel-
verka o.fl.
Fyrri hljómleikarnir verða í
Félagsheimilinu í Bolungarvík,
laugardaginn 10. maí kl. 20:30, en
hinir síðari í sal Grunnskólans á
ísafirði kl. 17:00, sunnudaginn
1 1. maí.
SKÁKMÓT
ísafjarðarmótið í skák í opnum
flokki hefst í Barnaskólanum,
miðvikudaginn 7. maí kl. 20.00 Er
öllum heimil þátttaka. ísafjarðar-
mótið flokki unglinga hefst
laugardaginn 10. maí kl. 10.00 á
sama stað. Nánari upplýsingar
veita Ásgeir í síma 3417 og
Guðmundur í síma 4287.
Taflfélag ísafjarðar