Bæjarins besta - 06.01.1987, Page 9
BÆJARINS BESTA
9
og þarf þá stundum að nota þrautar-
úrræði eins og að selja eignir
skuldarans. Oftar en ekki persónu-
gerir skuldarinn þá lögmanninn fyrir
óförum sínum, en leitar ekki eftir sök
hjá sjálfum sér. Það eru út af fyrir sig
mannleg viðbrögð. Gagnrýni og
skammir um lögmannastéttina eiga
því alltaf allgóðar undirtektir hjá
mörgum blaðalesendum og skila
drjúgum peningum í hálftóman kassa
blaðsins.
Þessi lítilfjörlega sölumennska er
Ijótur leikur sem Helgarpósturinn
hefur því miður hneigst til að stunda í
æ ríkari mæli eftir því sem sam-
keppnin á blaðamarkaðnum hefur
harðnað. Sá siðferðismælikvarði
sem Helgarpósturinn telur sig hafa
fundið í leiðara umrædds tölublaðs er
því varla margra fiska virði.
Ég vil ekki með neinu móti halda
því fram að ekki megi gagnrýna
lögmannastéttina. En það verður að
gera með heiðarlegum hætti. Sjálf-
sagt má finna þar misjafna sauði eins
og í öðrum stéttum þjóðfélagsins, en
ég fullyrði að flestir lögmenn reyni að
haga störfum sínum þannig, að
skuldarinn verði ekki fyrir meiri ó-
þægindum en nauðsynlegt er og
vinna sitt vandasama starf eftir bestu
samvisku samkvæmt embættiseiði
sínum.
Þó ég telji ekki líklegt að Helgar-
pósturinn játi á sig mistök og
óvönduð vinnubrögð, hvað þá biðjist
afsökunar, vona ég að blaðið sjái
sóma sinn í því að birta þessa grein í
næsta tbl., með jafn áberandi hætti
og grein þá er fjallað var um.
ísafirði 2. jan. 1987
Tryggvi Guðmundsson
Til sölu
Til sölu er Lada Sport, árgerö
1978.
Upplýsingar í síma 7494.
íbúð óskast
Óska eftir að taka íbúð á leigu.
Upplýsingar (síma 3157.
Til sölu
Til sölu er nýr Emmaljunga
barnavagn og á sama stað
Bond prjónavél.
Upplýsingar í síma 4125.
Einbýlishús
eða rúmgóð íbúð óskast til
leigu fljótlega.
Upplýsingar í síma 4328 eftir
kl. 19.
E 2222 til sölu
Til sölu er MAZDA 929 árgerð
1983 2ja dyra hardtop. Ekinn
aðeins 59000 km. Bifreiðin er
sjálfskipt með vökvastýri og
aflbremsum, rafdrifnum
rúðum o.fl. '
Upplýsingar í síma 4328 eftir
kl. 19.
Diskótek
Laugardagur:
Opið kl. 23-03
Diskótek
ATH!
Pantið tímanlega fyrir þorrablótin
E
KUWC3CAWD