Bæjarins besta

Eksemplar

Bæjarins besta - 06.01.1987, Side 12

Bæjarins besta - 06.01.1987, Side 12
Til fyrrverandi Lionsmanna á ísafirði í tilefni þess að á þessu ári eru liðin þrjátíu ár síðan Lionsklúbbur ísafjarðar var stofnaður, vill stjórn Lionsklúbbs ísafjarðar bjóða ykkur að sitja fyrsta fund afmælisársins, sem haldinn er á Hótel ísafirði þriðjudaginn 13. janúar 1987 kl. 20:30, stundvíslega. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 4111 — eða til Guð- mundar Þórðarsonar (3888), Ernis Ingasonar (3969) eða Kristjáns Kristjánssonar (3618). Matarverð 500 kr. stjóm Uonsk,úbbs feaf/ardar. ----------------_J Álfagleði í Bolungarvík Það verður mikið um að vera í Bolungarvík á laugardagskvöldið kemur. Skrúðganga leggur af stað frá Grunnskólanum klukkan átta og verður þar fjölskrúðugt lið: Álfakóngur og drottning hans ríðandi í fararbroddi, prinsar og prinsessur, álfameyjar og álfa- sveinar úr lægri stéttum, Ijósálfar og dökkálfar, Ijóti kallinn.Grýlaog Leppalúði, jólasveinar, og auk þess bæði Bolvíkingar og ísfirð- ingar. Gengið verður með kyndla sem leið liggurtil íþróttavallarins, þar sem sungið verður dátt og dansað kringum brennu. Reynd- ar verður að venju stansað á leiðinni og sungið hjá Sjúkra- húsinu. Álfagleðin er haldin um þrettándaleytið til skiptis í Bolungarvík og á ísafirði. Mörg félagasamtök manna og álfa og ýmissa kynjavætta í Bolungarvík og fjöllunum í kring standa að fagnaði þessum. Þarna er eiginlega verið að framlengja jólin, því að þrettándi og síðasti dagur þeirra er þriðju- daginn sjötta janúar. Ýmsir eru Mannfagnaður í Hnífsdal: 37 hlutu viðurkenningu ÍBÍ fyrir framúrskarandi árangur á skíðum og í sundi á liðnu ári Fyrir áramótin veitti ÍBÍ sam- kvæmt venju viðurkenningu þeim íþróttamönnum ísfirskum, sem á árinu settu íslandsmet, urðu íslandsmeistarar eða komust í landslið. Og þetta var enginn smáhópur að þessu sinni, þrjátíu og sjö manns! Annars vegar var þarna um skíðafólk að ræða, og hins vegar sundfólk. Daginn fyrir gamlársdag efndi bæjarstjórn ísafjarðar til mikils samkvæmis þar sem þetta fólk var heiðrað, og jafnframt var tilkynnt um val íþróttamanns ísafjarðar (sjá forsíðu). hins vegar þeirrar skoðunar, að jólum Ijúki tæpast formlega fyrr en með álfadansi og brennu. Samkvæmt því er sautjándinn á laugardag í Bolungarvik. Afreksfólkið úr Sunddeild Vestra ásamt Gunnari Péturssyni. * Húskveðja í lok ársins var ,,hvíta pakk- niður að sjónum og afhenda það húsið“ við Sindragötu rifið. Hús klúbbi siglingamanna til afnota. þetta var áður í eigu Kaupfé- Hins vegar kom í Ijós að það lagsins, en bæjarsjóður eignaðist þarfnaðist svo mikilla endurbóta það í makaskiptum fyrir nokkrum og styrkingar fyrir flutning, að árum. Ætlunin var að færa húsið slíkt taldist frágangssök. Gunnar Pétursson varaformaður ÍBÍ ávarpar skíðafólkið sem hlaut viðurkenningu ÍBÍ fyrir framúrskarandi árangur á landsmælikvarða. Ólöf Björnsdóttir og Jón Ólafur Árnason gátu ekki verið viðstödd athöfnina, og tóku feður þeirra við viðurkenningunni fyrir þeirra hönd.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.