Vesturbæjarblaðið - feb. 2020, Síða 12
12 Vesturbæjarblaðið FEBRÚAR 2020
Skipulags- og samgönguráð
hefur samþykkt nýtt deili-
skipulag fyrir Laugaveg sem
göngu götu. Hluti Lauga vegs,
Skóla vörðustígs og Vega-
mótastígs verður gerður að
varan legum göngugötum að
því er segir í tilkynningu frá
Reykja víkurborg. Unnið verður
í framhaldinu að hönnun ýmissa
lausna til að bæta götuna og
umhverfið. Gert er ráð fyrir að
endurnýja allt yfirborð, gróður,
götugögn og lýsingu. Afmörkuð
svæði verða Laugavegur og
Bankastræti frá Klapparstíg að
Þingholtsstræti, Skólavörðustígur
milli Bergstaðastrætis og
Laugavegar og Vegamótastígur
frá Laugavegi að Grettisgötu.
Framkvæmdir verða unnar í
níu áföngum og verða smáar í
sniðum. Takmark borgarinnar er
að rask við framkvæmdir verði
sem minnst og einblínt verður
á eitt svæði í einu til að forðast
neikvæða upplifun. Áhersla verður
ekki á allsherjar endurbætur
með stórum vinnuvélum og
tilheyrandi truflunum heldur
verður unnið með smærri skala,“
segir í tilkynningu frá borginni.
Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki á
tveimur árum.
Helsta verslunargata frá
fornu fari
Laugavegurinn hefur verið
helsta verslunargata Reykjavíkur
frá fornu fari samhliða lifandi
mannlífi og menningu. Vegna
sögu sinnar og starfsemi hefur
gatan mikið aðdráttarafl fyrir
gesti og gangandi, jafnt innlenda
sem erlenda. Í tilkynningu frá
Reykjavíkurborg kemur fram að
Markmiðið með breytingunum
sé að fanga anda miðborgarinnar
og fíngerðan skala hennar og
sömuleiðis mynda sterka tengingu
frá Hlemmi að Kvos. Ennfremur
segir að vönduð borgarhönnun
með öryggi og vellíðan gangandi
vegfarenda verði í fyrirrúmi. Algild
hönnun með aðgengi fyrir alla
verður höfð að leiðarljósi við
útfærsluna í samráði við notendur
og hagsmunasamtök. Alls voru
haldnir níu fundir um fyrirhugaðar
breytingar með hagsmunaaðilum
á síðasta ári. Við göngugö-
tusvæðin eru bílastæðahús,
bæði Bergsstaðir og Traðarkot
með alls 328 stæði. Einnig eru
bílastæðahús í Kolaportinu og
Hafnartorgi, alls 1266 stæði.
Nýtt deiliskipulag fyrir Laugaveg
Laugavegur frá Klapparstíg að Þingholtsstræti hefur verið göngu-
gata um hríð.
Í bókasafni Norræna
hússins er að fara af stað
prjónaklúbbur. Við sem
stöndum að klúbbnum bjóðum
fólki að koma og hitta annað
hannyrðafólk og hafa gaman
af, prjóna, hekla og jafnvel
sauma.
Einnig til að skrafa saman
og sýna það sem fólkið er fást
við, gefa öðrum góð ráð og leið-
beiningar og drekka kaffi með.
Allir þátttakendur fá ókeypis
lánþegakort.
Frekari upplýsingar
gefur Ragnheiður, netfang:
ragnheidurm@nordichouse.is
eða í síma 551-7090.
Prjónaklúbbur í bókasafni
Norræna hússins
Prjónaklúbbur er að fara af stað í Norræna húsinu.
- öryggi og vellíðan gangandi vegfarenda
verður í fyrirrúmi
√ Bókhald og fjármál
√ Húsfélagafundir
√ Mínar síður
√ Húsbók þjónustusaga húss
√ Auk annarrar þjónustu
Húsfélagaþjónusta
Eignaumsjón leiðandi í 17 ár
www.eignaumsjon.is
Hugleiðsla & hafragratur - Fylgstu með á facebook
Afgreiðslutími:
Mán: 10-16
Þri-fös: 10-18
Lau: 11-16
ÓÐINSGÖTU 1, REYKJAVÍK
systrasamlagid.is
@systrasamlagid
Sími: 511 6367
MEIRI ORKA 2020
Tunguskafan er 2 x mikilvægari
en tannbursti.
Frábær lífrænn
og umhvefisvænn
fatnaður.
Viridian vítamín og bætiefni.
Mikið úrval og einstök gæði.
Allt lífrænt og án hvíts sykur og hveiti.
Sumt glútenlaust og margt vegan.
Landsins mesta úrval af korkjógadýnum. Korkurinn er framtíðin.
Þú þarft aldrei jógahandklæði.
Verð frá 16.500 kr.