Vesturbæjarblaðið - sep. 2020, Side 2

Vesturbæjarblaðið - sep. 2020, Side 2
2 Vesturbæjarblaðið Útgefandi: Borgarblöð ehf. Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171 Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími 551 1519 • 893 5904 Netfang: thordingimars@gmail.com Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298 Heimasíða: borgarblod.is Net fang: borgarblod@simnet.is Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son Um brot: Valur Kristjánsson Prentun: Landsprent ehf. Dreif ing: Morgunblaðið 9. tbl. 23. árgangur Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í póstnúmerum 107, 102 og 101. Mun kórónuveirufaraldurinn leiða til breytinga á neyslu­venjum? Við þessu er enn ekkert einhlítt svar. Framvindan getur ráðist af hversu lengi faraldurinn stendur og hvort hann gangi yfir höfuð niður. Hún getur einnig ráðist af ýmsu öðru. Sóttvarnir vegna faraldursins hafa haft áhrif á ýmis konar starfsemi. Lamað sumt sem var hluti af daglegum venjum. Enginn veit hversu lengi búa þarf við takmarkanir vegna þeirra. Hér á landi virðist staðan vera betri en víða þótt bakslag hafi orðið. Erfiðara ástand er þó í mörgum löndum sem við eigum í miklum samskiptum við. F ramvinda faraldursins á Vesturlöndum og jafnvel á heims­vísu mun enn um sinn setja mörk á möguleika til neyslu. Ferðalög eru aðeins svipur hjá sjón. Erfitt er um íþróttastarf og menningarviðburði. Einkum þá sem heyra til sviðslista. Barsækni á líka undir högg að sækja. Um tíma hafa orðið miklar umræður um neysluvenjur. Ekki aðeins hér á landi heldur á heimsvísu. Kynslóðir eru að vaxa upp sem hafa aðra sýn er hinar eldri. Fólk sem horfir meira til hinnar náttúrlegu auðlegðar en áður. Fólk ber með sér efasemdir um framleiðsluhætti sem hafa tíðkast. Framleiðsluhætti sem leiða til mengunar og bera loftslagsmálin þar hæst. Hagkerfi okkar – hagkerfi stórs hluta mannkyns er drifið áfram af neyslu. Hið heilaga orð hagvöxtur hefur byggst á því að kaupa meira ­ og meira. Nú eru efasemdir að heyrast. Efasemdir er geta kallað eftir annarri vöruþróun en verið hefur. Efasemdir sem kalla eftir breyttum lífsstíl fólks. Hversu lengi sem áhrifa kórónuveirufaraldursins mun gæta með beinum hætti vakna upp spurningar hvort afleiðingar hans falli í sama farveg og ný hugsun um neyslu. Hvort afleiðingar hans flýti fyrir neyslubreytingum. Hvort eitthvað breytist til frambúðar. Breytist eitthvað SEPTEMBER 2020 ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR www.husavidgerdir.is/hafa-samband info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070 Finndu okkur á Fegrun og lenging líftíma steyptra mannvirkja er okkar áhugamál. Við höfum náð góðum árangri í margs konar múr- og steypuviðgerðum, múrfiltun, steiningu og múrklæðningum. Hafðu samband Við skoðum og gerum tilboð! Um 70 nýjar lúxusíbúðir eru komnar til sölu við Bryggjugötu, Geirsgötu og göngugötuna Reykjastræti. Sambærilegur fjöldi lúxusíbúða hefur ekki komið á markað frá því að svörtu blokkirnar í Skuggahverfi voru byggðar. Um er að ræða einhverjar dýrustu íbúðir og jafnvel aldýrustu sem settar hafa verið á markað hér á landi. Fermetraverð í dýrari íbúðunum er á bilinu ein til ein og ríflega ein og hálf milljón króna sem er verð sem ekki hefur sést áður á fasteignamarkaði. Áætlað er að selja um 180 fermetra íbúð með tveimur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum á um 255 milljónir króna. Íbúðir á efstu hæðum í nýju fjölbýlishúsunum í miðborginni eru stærri. Við Bryggjugötu 4 er um 350 fermetrar íbúð og má því búast við töluvert hærra verði en á íbúð sem nú er boðin til sölu á 345 milljónir króna. Hluti íbúðanna eru í stórhýsi við Bryggjugötu á milli Hörpu og Marriotthótel byggingarinnar. Athygli vekur að enn stærri íbúðir verða á sjöttu hæð og á eftir að verðleggja þær. Verðið á þeim ætti því að verða mun hærra. Fjölmargar íbúðir eru verðlagðar á rúmlega tvö hundruð milljónir og einnig á bilinu 100 til 200 milljónir. Ódýrasta eignin er 59 milljónir og er hún fimmtíu fermetrar að stærð. Kynningu á íbúðunum og verðlista yfir þær íbúðir sem eru til sölu má sjá á vef Austurhafnar. Um er að ræða einhverjar dýrustu íbúðir og jafnvel aldýrustu sem settar hafa verið á markað hér á landi. Stefnt er að því að hundrað og níutíu íbúðir verði risnar í Vesturbugt við gamla slippinn í Reykjavík innan fimm ára. Það er félagið Vesturbugt sem er í eigu VSÓ og Kaldalóns sem stendur að verkefninu. Félagið var stofnað utan um verðlaunatillögu um uppbyggingu svæðisins. Í maí 2017 skrifuðu Reykjavíkurborg og byggingafélagið Vesturbugt undir samning um byggingu 176 íbúða á einstakri og stórri lóð í Vesturbugtinni. Framkvæmdir áttu að hefjast haustið 2018. Það dróst hins vegar af ýmsum ástæðum. Nú er stefnt að því að hefja framkvæmdir næsta vor. Í fyrstu hugmyndum var gert ráð fyrir nokkrum fjölda íbúða í stærri kantinum en nú er lögð áhersla á að byggja litlar og meðalstórar íbúðir og er þar horft til aðstæðna á íbúðamarkaði. Íbúðum hefur einnig verið fjölgað um 14 frá fyrstu hugmyndum. Ef áætlanir ganga eftir er gert ráð fyrir að fyrsta áfanga verði lokið á árinu 2023. Síðari áfanginn gæti byrjað ári eftir að sá fyrri fer af stað. Þá yrði verkinu að öllum líkindum lokið öðru hvoru megin við áramótin 2024 og 2025. Hundrað og níutíu íbúðir í Vesturbugt Þannig gæti umhverfið í Vesturbugtinni litið út að fimm árum liðnum. - áhersla verður lögð á milli og meðalstórar íbúðir Nýjar lúxusíbúðir á hafnarsvæðinu

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.