Vesturbæjarblaðið - Sep 2020, Page 6

Vesturbæjarblaðið - Sep 2020, Page 6
6 Vesturbæjarblaðið SEPTEMBER 2020 Hús íslenskunnar við Arn­ grímsgötu er farið að taka á sig mynd. Á vef Stjórnarráðs Íslands kemur fram að ákveðnir verkþættir séu á undan áætlun. Þar á meðal uppsteypa á veggj­ um þriðju hæðar byggingar­ innar er um mánuði á undan áætlun. Áætlað er að húsið verði full byggt haustið 2023. Fram kvæmd ir hóf ust í lok sum­ ars í fyrra en þær höfðu tafist um árabil. Hús íslenskunnar mun hýsa star fsemi Stofnunar Árna Magnús sonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningar- deild Háskóla Íslands. Verða sérhönnuð rými fyrir varðveislu, rannsóknir og sýningu á íslenskum skinnhandritum. Einnig vinnustofur kennara og fræðimanna, lesrými fyrir háskólanema, fyrirlestra- og kennslusalir sem og skrifstofur og bókasafn. Hús íslenskunnar mun gerbreyta s tar fsemi Árnastofnunar og allri þjónustu við almenning, skólafólk og ferðamenn. Samstarfið við Háskóla Íslands í húsinu mun Hús íslenskunnar að rísa af grunni Verið er að steypa veggi þriðju hæðar Húss íslenskunnar. Verða 102 íbúðir byggðar við Selja- veg 2 í stað hótels Sótt hefur verið um leyfi til að byggja fjölbýlishús á sex hæðum, á reitum S4­S8, eða samtals 102 íbúðir, verslunar­ og þjónusturými á 1. hæð og bíla­ og geymslukjallara á lóð nr. 2 við Seljaveg. Erindi til borgarinnar fylgdi greinargerð Mannvits um hljóðvist frá 25. ágúst 2020, lóðauppdráttur frá 19. ágúst 2019, hæðablað frá 4. mars 2020 og forteikningar hönnuða frá 25. ágúst 2020. Það eru Centra Eignstýring sem er í eigu Gísla Reynissonar og Grandi íbúðarfélag sem er í 70% eigu Daníels Helgasonar og Sigurðar Hrafns Kiernan sem sent hafa erindi til byggingafulltrúans í Reykjavík um fyrirhugaðar framkvæmdir, Í frétt í Viðskiptablaðinu á sínum kom fram að Ólafur Ólafsson kenndur við Samskip hafi keypti lóðina og látið hefja framkvæmdir við risahótel. Nú virðist stefnt að íbúðabyggð á svæðinu í stað hótelbyggingar. Nú er fyrirhugað að reisa íbúðir við Seljaveg 2 í stað hótels. Gert er ráð fyrir að fimm sjálfstæðar íbúðir verði í húsinu við Víðimel 29 þar sem Kínverska sendiráðið var áður til húsa. Í umsókn til byggingafulltrúa var sótt um leyfi til að breyta innra skipulagi og gera fimm sjálfstæðar íbúðir í húsinu, fjarlægja reykháf sem snýr að götuhlið, stækka svalir, síkka glugga í kjallara og setja nýja kvisti og þakglugga. Um er að ræða eina af glæsilegri byggingum Vesturbæjar Reykjavíkur sem var hönnuð af Einari Sveinssyni arkitekt. Húsið hefur staðið autt um árabil og var komið í mikla niðurníðslu. Alls eru 19 herbergi í húsinu og fimm baðherbergi en fasteignamat eignarinnar er 253 milljónir. Frið bert Frið berts son, for stjóri bíla um boðsins Heklu festi kaup á húsinu fyrr á þessu ári. Fimm íbúðir á Víðimel 29 Fimm íbúðir verða væntanlega í þessu glæsta húsi við Víðimelinn. GETRAUNIR.IS 107 GETRAUNANÚMER KR

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.