Vesturbæjarblaðið - Sep 2020, Page 8

Vesturbæjarblaðið - Sep 2020, Page 8
8 Vesturbæjarblaðið SEPTEMBER 2020 K aþólskur siður aflagðist hér á landi 7. nóvember 1550. Þá var Jón Arason Hólabiskup hálshögg­ vin í Skálholti ásamt tveimur sonum sínum. Sagan segir að ráðsmaður í Skálholti hafi talið óráðlegt að halda þeim föngnum á biskupssetrinu til vors því þeir ættu sér öfluga fylgismenn einkum á Norðurlandi sem myndu freista þess að frelsa þá úr haldi. Á ráðsmaðurinn að hafa látið þau orð falla að “öxin og jörðin geymdu þá best”. Siðaskiptin á 16. öld ollu algjörri umbyltingu á Íslandi, ekki síst í trúmálum. Kristján III Danakonungur notfærði sér þau til þess að leggja eignarhald á jarðir og aðrar eignir kirkjunnar. Jón Arason, biskup á Hólum var aðalandstæðingur konungsvaldsins við siðaskiptin og lýsti hina nýju kirkjuskipun ólöglega. Eftir dauða hans voru klaustrin eyðilögð og munkar drepnir eða sendir í útlegð. Einungis þeir prestar sem gerðust lútherstrúar fengu að halda embættum sínum. Kaþólsk trú var algjörlega bönnuð og refsingin var líflát eða útlegð. Enginn kaþólskur maður bjó á Íslandi fram til ársins 1857. Það ár fengu tveir franskir prestar, Bernard Bernard og Jean-Baptiste Baudoin, undanþágu til að þjóna frönskum sjómönnum sem voru að veiðum við Ísland. En hvernig varð kaþólski söfnuðurinn til. Upphaf þeirrar sögu má rekja til Einars Ásmundssonar alþingis- og athafnamann í Nesi í Höfðahverfi austan Eyjafjarðar. Jean-Baptiste Baudoin eða Baldvin eins og hann var stundum kallaður upp á íslensku hafði dvalið vetrarlangt hjá Einari í Nesi og fengist við að kenna honum tungumál. Hafði þeim orðið vel til vina. Upphafs þess má rekja til þess að presturinn hafi þurft að komast til franskra sjómanna á Siglufirði en ekki komist lengra en til Akureyrar. Pétur Hafstein sem var yfirvald staðarins hótaði Einari vegna þess enginn mætti hafa nein samskipti við hann. Hann væri kaþólskur prestur í landi þar sem kaþólska væri bönnuð með lögum. Einar kom prestinum engu að síður til hjálpar og dvaldi hann um tíma hjá honum í Nesi. Pétur Hafstein var þó ekki af baki dottinn heldur kærði Einar og dæmdi í stórar sektir og hótaði honum eignamissi. Einar skaut dómi þessum til stjórnarskrárinnar í Danmörku sem eyddi honum. Má ef til vill segja að þessi fyrirgangur í Pétri Hafstein hafi orðið fyrsti vísirinn að endurreisn kaþólsku á Íslandi. Nonni og Gunnar Síðan ber það til tíðinda að franskur aðalsmaður Marie- Albérice de Foresta frá Aix en Province í Suður Frakklandi hafði fengið áhuga á Norðurlöndunum. Hann hafði kynnst jesúítapresti sem unnið hafði að trúboði í Kína sem lagði áherslu á að stunda trúboð sem víðast og ekki síst á norðlægum slóðum. Áhugi Marie-Albérice varð til þess að hann setti sig í samband við Jean- Baptiste Baudoinmeð þá ósk að bjóða tveimur drengjum til náms Í Frakklandi og kosta heimför þeirra að námi loknu. Lítið var vitað um aðalsmanninn og var Jean-Baptiste Baudoin fremur sagnafár um hann. Fyrir tilstuðlan hans voru tveir drengir valdið til fararinnar. Jón Sveinsson sonur Sveins Þórarinssonar amtmannsskrifara á Möðruvöllum búsettum á Akureyri sem þá var látinn og Gunnar sonur Einars í Nesi. Jón Sveinsson kom ekki aftur. Hann gerðist pestur og rithöfundur ytra og skrifaði undir rithöfundaheitinu Nonni sem hann er þekktur fyrir hér á landi og víðar. Gunnar kom til baka og gerðist afhafnamaður. Hann var fyrsti kaþólski Íslendingurinn á síðara skeiði kaþólskunnar hér á landi sem rekja má til utanfarar hans ásamt Nonna. Fyrstu heimildir frá 1548 Fyrstu heimildir um búsetu í Landakoti eru að finna í fógetareikningum frá árinu 1548. Landakot var þá hjáleiga frá Reykjavík og ábúandinn var Hildibrandur Jónsson. Eftir að Reykjavík var gerð að kaupstað 1787 fór Skúli Magnússon fógeti fram á það við landsstjórnina að íbúar bæjarins fengju afnot af nærliggjandi úthögum. Þá bjó Jón Magnússon hafnsögumaður í Landakoti. Jörðin komst í eigu verslunarfélags Petræsusar og L.M. Knudsens. Eftir slit þess félags komst Landakot í eigu Knudsens. Ekkja hans bjó í Landakoti um tíma eftir dauða hans. Helgi G. Thordarsen dómkirkjuprestur keypti síðan Landakot um eða upp úr 1835 og bjó þar til 1846 að hann var gerður að biskupi og flutti þá í biskupssetrið í Laugarnesi. Landakot komst í eigu Bernard Bernard og Jean-Baptiste Baudoin sem voru franskir prestar og sendir hingað til lands til að þjónusta franska sjómenn. Baudoin lét reisa litla kapellu í Landakoti en síðar var byggð timburkirkja við Túngötu, nálægt prestsetrinu. Þessi kirkja var helguð heilögu hjarta Jesú. Baudoin hóf einnig að reisa viðbótarbyggingu við Höfuðstöðvar kaþólsku á Íslandi frá 1860 STÍLBÓKSTÍLBÓK Sjálfstætt starfandi apótek sem býður persónulega þjónustu og hagstæð verð á lyfjum og öðrum heilsutengdum vörum. L AUGAVEGI 46 S: 414 4646 Elli- og örorkulífeyrisþegar njóta sérkjara hjá Íslands Apóteki Opnunar- tímar: Virka daga 11.30-18.00 Laugardaga 10.00-16.00 Sunnudaga Lokað Opnunartímin hefur breyst tímabundið! Landakot Kristkirkja í Landakoti. Sambland af gotneskum stíl og séríslenskum einkennum. Stytta af Marteini Meulenberg biskupi í Landakoti. Jóhannes Gunnarsson er eini íslenski biskupinn sem setið hefur í Landakoti.

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.