Vesturbæjarblaðið - sept 2020, Qupperneq 9
9VesturbæjarblaðiðSEPTEMBER 2020
enda lítils geymsluhúss að baki
íbúðarhúsinu í Landakoti. Hann
mun ekki hafa haft leyfi til þess úr
hendi byggingafulltrúa. Var kærður
og dæmdur af lögregludómstól
til að greiða fimm ríkisdali í sekt.
Árið 1860 eignaðist kaþólska
trúboðið Landakot. Var það fyrir
milligöngu Randrups ræðismanns
og kaupmanns í Reykjavík og
hefur Landakot verið í eigu
kaþólskra alla tíð síðan. Kaþólski
söfnuðurinn byggði litla kirkju á
austurhluta Landakotstúnsins.
Kirkjuhúsið var síðar flutt á horn
Hofsvallagötu og Túngötu og notað
til kristnihalds þar til Kristkirkja
sem nú stendur á Landakotshæð
var tekin í notkun 1929. Guðjón
Samúelsson húsameistari ríkisins
teiknaði kirkjuna og aðlagaði
gotneskan stíl að séríslenskum
einkennum í teikningum sínum.
Má einkum greina það í ytri
burðarsúlum kirkjunnar sem
minna á stuðlaberg í fjallshlíð.
Dómkirkjan ber nafn Krists
Konungs í heiðursskyni við Krist.
Kirkjan er undir verndarvæng
Maríu meyjar guðsmóður, sankti
Jósefs og tveggja helgra, íslenskra
manna, Jóns Ögmundssonar og
Þorláks Þórhallssonar biskups.
Kirkjuklukkurnar þrjár eru
tileinkaðar Kristi konungi, Maríu
mey og heilögum Jósef. Kristkirkja
í Landakoti var lengi stærsta kirkja
landsins.var lengi stærsta kirkja
landsins.
Kaþólskur biskup
á Íslandi
Marteinn Meulenberg var
fyrsti kaþólski biskup Íslands
eftir siðaskiptin. Sá fyrsti frá Jóni
Arasyni og bar titilinn Hólabiskup.
Meulenberg var frá Hillensberg í
Þýskalandi. Faðir hans var þýskur
en móðirin hollensk. Meulenberg
tilheyrði Montfortreglunni sem
er kaþólsk prestaregla og nefnist
Societas Mariae Montfortana.
Hann kom til Íslands árið 1903 og
hafði þá verið tvö ár sóknarprestur
í Danmörku. Þegar Ísland varð
fullvalda ríki sótti séra Meulenberg
fyrstur erlendra manna um
ríkisborgararétt á Íslandi. Í
samband við fullveldið stofnaði
Páfastóll sjálfstæða trúboðskirkju
fyrir Ísland og varð Marteinn
Meulenberg yfirmaður hennar.
Árið 1929 var trúboðskirkjan gerð
að postullegu umdæmi og séra
Meulenberg stjórnandi. Hann var
vígður biskup í nýju kaþólsku
dómkirkjunni í Landakoti í júlí
sama ár. Meulenberg féll frá árið
1941. Þegar sala á saltfiski til Ítalíu
stöðvaðist snemma eftir fyrra
stríð munu íslensk stjórnvöld
hafa leitað til Meulenbergs um
hvort hægt væri að liðka til um
sölusamninga. Ekki liggur fyrir
hvort hann fór sjálfur til Rómar
eða hafði samband við Páfagarð.
En Páfagarður gat komið því til
leiðar að Ítalir fóru aftur að kaupa
saltfisk af Íslendingum. Jóhannes
Gunnarsson var prestur rómversk-
kaþólsku kirkjunnar á Íslandi og
biskup hennar í Reykjavík frá 1942
þar til hann sagði af sér embætti
1967. Jóhannes var titlaður
Hólabiskup eins og Meulenberg
en eftir það fengu biskupar titilinn
Reykjavíkurbiskupar. Jóhannes
átti beinar rætur til upphafs
kaþólskunnar. Hann var sonur
Gunnars Einarssonar sem hélt
utan með Nonna og var fyrsti
Íslendingurinn eftir siðaskiptin
sem gerðist kaþólikki. Jóhannes
hóf nám hjá jesúítum á Íslandi
áður en hann fór til Danmerkur
í framhaldsnám. Hann lagði
síðar stund á guðfræðinám í
Hollandi. Jóhannes var vígður
prestur þar 1924 og snéri
sama ár aftur til Íslands og hóf
þjónustu við Landakotskirkju.
Enginn Íslendingur hefur setið
á biskupsstóli síðan Jóhannes
sem er eini Íslendingurinn
sem gegnt hefur kaþólsku
biskupsembætti frá Jóni Arasyni.
Jósefssystur
og spítalasaga
Árið 1896 komu Jósefssystur
til Íslands frá Danmörku. Þær
stofnuðu barnaskóla og lítinn
spítala í Reykjavík 1902. Sankti
Jósefsspítali í Landakoti tók
formlega til starfa árið 1902.
Landakotsspítali eins og hann var
jafnan nefndur var aðalsjúkrahús
landsins og kennsluspítali
Læknadeildar fram til 1930 þegar
Landspítali tók til starfa og var
ásamt honum helsta sjúkrahús
landsins nær alla 20. öldina.
Jósefssystur leituðu til landsjóðs
um fyrirgreiðslu þegar þær
hugðust hefja spítalabyggingu og
rekstur en fengu algjört afsvar.
Spítalinn var byggður fyrir
erlent samskota- og sjálfsaflafé
reglusystra og söfnunarfé sem
Jón Sveinsson, Nonni, hafði aflað
til að byggja holdsveikraspítala
sem danskir Oddfellowar létu
byggja í Laugarnesi. Bygging og
rekstur St. Jósefsspítala varð til
þess að ríkisvaldið gat komið sér
hjá því að byggja spítala handa
sínu fólki fyrir eigin fjármuni.
Í upphafi voru 40 sjúkrarúm í
elstu byggingunni. Spítalinn var
stækkaður í tveimur áföngum, fyrst
árið 1935 og síðan árið 1962, og
skömmu síðar var elsta húsið rifið.
Frá upphafi var Landakotsspítali
í forystu með ýmsar nýjungar í
læknisfræði. Landakot var einnig
þekkt fyrir einstaka umönnun
og afbragðs lækna og auk þess
þótti rekstur spítalans til mikillar
fyrirmyndar. Hann var ekki inni
í hinu opinbera kerfi eftir að það
hóf sjúkrahúsrekstur fyrir alvöru
og þess vegna meðal annars var
rekstur spítalans mörgum þyrnir í
augum. Sérstaklega varð mönnum
starsýnt á lágan rekstrarkostnað í
samanburði við önnur sjúkrahús
þrátt fyrir afbragðs þjónustu
og dugði ekki að skýra þann
mismun með „kristilegum kærleik“
einum saman.
Landakotsaskóli frá 1896
Skólastarf einkenndi Landakot
snemma. Landakotsskóli er einn
elsti starfandi skóli landsins.
Skólinn var stofnaður árið 1896.
Skólinn er sjálfstætt starfandi
grunnskóli fyrir 1. til 10. bekk
ásamt deild fimm ára barna. Einn
bekkur er í hverjum árgangi.
Fram til 2005 var skólinn rekinn
af Kaþólsku kirkjunni en hann er
nú rekinn sem sjálfseignarstofnun
með sjálfstæðri stjórn. Skólinn
starfar eftir sem áður í húsnæði
sem stofnunin leigir af Kaþólsku
kirkjunni við Túngötu.
Skólinn starfar samkvæmt
grunnskólalögum og er kennslan
í samræmi við aðalnámskrá.
Skólinn hefur þó nýtt sér svigrúm
til að taka upp ýmsa nýbreytni í
skipulagi skólastarfsins með því
að stórauka tungumálakennslu
þannig að strax í fimmta ára bekk
byrjar ensku- og frönskukennsla.
Á miðstigi byrja nemendur
svo að læra dönsku. Sölvi
Sveinsson var skólastjóri um ára
bil og Ingibjörg Jóhannsdóttir
stýrir skólanum í dag.
Upphaflega skólahúsið í Landakoti.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi
s. 551 1266 | utfor@utfor.is
utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM
ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár