Vesturbæjarblaðið - sep. 2020, Síða 10

Vesturbæjarblaðið - sep. 2020, Síða 10
10 Vesturbæjarblaðið SEPTEMBER 2020 Vinnustofur listafólks hafa verið opnaðar í Centric guesthouse við Lækj ar götu. Þar sem áður var gisti hús með 15 her bergjum er nú vinnuaðstaða lista manna á öll um aldri. Leiga herbergjanna er um 40 til 50 þúsund á mánuði en fer annars eftir stærð herbergjanna. Það eru Geoffrey Skywalker og Guðfinn ur Sölvi Karls son kenndir við veitingastaðinn Prikið sem standa fyrir þessu. Þeir tóku við húsnæðinu þegar gistiþjónustan lagðist af vegna coveid og ákváðu að finna nýja leið til þess að nýta það í stað þess að láta það standa autt. Þeir ákváðu að gera þetta að listafólkshúsnæði undir merkjum út gáfu fyr ir tæk­ is ins Sticky. Fleira og fleira fólk velur orðið í dag að starfa sjálfstætt eða í tengslum við fyrirtæki af ýmsum gerðum og þarfnast starfsaðstöðu. Þeir félagar létu reyna á þetta og fólk með ýmis verkefni er farið að nýta sér aðstöðuna. Vinnustofur listafólks í stað gistiþjónustu Nýtt útilistaverk sem komið verður fyrir á Eiðisgranda Sjávarmál heitir nýtt útilistaverk sem komið verður fyrir á Eiðisgranda. Höfundar listaverks sem valið var úr sjötíu innsendum tillögum eru arkitektarnir Baldur Helgi Snorrason og David Hugo Cabo í samstarfi við Andra Snæ Magnason rithöfund. Dagur B. Eggertsson, tilkynnti um niðurstöðu dómnefndar fyrir skömmu og fór athöfnin fram við Eiðsgranda. Verkinu er ætlaður staður á sjávarkambinum við Eiðsgranda og blasir við hafi. Ekkert útilistaverk er staðsett á þessu svæði og það mun auka notagildi og aðdráttarafl svæðisins fyrir íbúa og þá sem þar eiga leið um. Á þeirri hlið listaverksins sem snýr að hafinu er steypt innbjúg skál sem safnar hljóðum hafsins og magnar þau upp með einföldu endurkasti fyrir þann sem stendur fyrir framan skálina. Á þeirri hlið sem snýr að byggð er hrjúfur veggur þar sem íslensk heiti fyrir hafið eru letruð. Áhrif loftslagsbreytinga á hafið eru höfundum hugleikin og verkinu er ætlað að bjóða upp á tækifæri fyrir þá sem eiga leið hjá til að staldra við, upplifa krafta hafsins og hlusta eftir því náttúran hefur að segja okkur. Samkeppni um útilistaverk í Vesturbæ var haldin samkvæmt samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna og í kjölfar íbúakosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020. Á meðal þess sem Vesturbæingar kusu var að halda samkeppni um gerð útilistaverks í hverfinu. Hverfið mitt er íbúalýðræðisverkefni á vegum Reykjavíkurborgar þar sem íbúum gefst kostur á að setja fram hugmyndir um úrbætur í nærumhverfi sínu. Þeim hugmyndum sem hljóta brautargengi í kosningu meðal borgarbúa er síðan hrint í framkvæmd. Á þessum stað við Eiðisgranda verður útilistaverkinu komið fyrir. Samstarfshópur um forvarnir Sjávarmál Vinnustofurnar eru staðsettar við Lækjargötu. Alveg í hjarta borgarinnar. Nokkrir skemmtilegir leikvellir eru í Mið borg inni og við Vesturbæinn. Leikvöllurinn við Arnarhól er skemmtilegur og en líka er hægt að setjast niður í lautarferð í grasinu. Leikvöllur er fyrir yngstu börnin við Bernhöftstorfuna og þar eru enn fremur mörg sæti fyrir fullorðna, til dæmis nýju tröppuborðin, hengirúm og hefðbundnari borð og stólar. Fólk á öllum aldri getur á sama stað gripið í borðtennis- spaða og tekið einn leik. Tennisborðtennis er á Miðbakkanum en þar eru til viðbótar körfuboltakörfur, fyrir stóra og smáa að ógleymdum hjólabrettagarðinum. Hann býður upp á marga möguleika fyrir þá sem eru á hjólabrettum en það er ekki síður gaman að fylgjast með bretta­ fólkinu leika listir sínar. Á Miðbakkanum eru einnig nokkur borð með bekkjum og því góð aðstaða fyrir þá sem kjósa að taka með sér nesti. Boðatorg er með sínum skemmtilega skrúfuhring er stutt frá Slippnum og hafnarsvæðinu. Óðinstorg er annað torg þar sem mannlífið fær að njóta sín svo eitthvað sé nefnt. Hljómskálagarðurinn býður upp á bæði leik og slökun og gaman er að skoða sig um í styttugarðinum við Safn Einars Jónssonar. Börn hafa skemmt sér á gön­ gugötunum í sumar en bæði parísinn og hlaupabrautin á Laugaveginum hafa höfðað til þeirra. Skemmtilegir leikvellir í Miðborg og Vesturbæ Leiktæki á torgi á mörkum Mið- og Vesturbæjarins. Varnargarðurinn við Eiðsgranda breikkaður Ákveðið hefur verið að breikka sjóvarnargarðinn við Eiðsgranda verulega þar sem öldur ollu skemmdum aðfaranótt sunnudagsins 20. september. Óskað hefur verið tilboða í verkið og ef allt gengur upp verður ráðist í breikkunina innan skamms. Ætlunin er að breikka sjóvarnargarðinn frá hringtorginu við JL­húsið gamla alveg að Boðagranda. Hann verður breikkaður um sex til átta metra. Með því mun aldan brotna betur og síður bera sjávargrjót upp á land eins og gerðist á dögunum. Þannig var umhorfs á Eiðsgranda eftir hamfarir laugardagsins.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.