Vesturbæjarblaðið - sept 2020, Qupperneq 12

Vesturbæjarblaðið - sept 2020, Qupperneq 12
12 Vesturbæjarblaðið SEPTEMBER 2020 Frá framleiðslueldhúsi Velferðarsviðs á Vitatorgi Í framleiðslueldhúsi velferðarsviðs á Vitatorgi eru matreiddar að meðaltali rúmlega níu hundruð máltíðir á dag. Nú geta notendur þjónustunnar og aðstandendur þeirra fylgst betur með því hvað er í matinn. Opnuð hefur verið Facebook-síða þar sem skoða má máltíð dagsins og matseðil vikunnar. Í mötuneytinu á Vitatorgi, þar sem framleiðslueldhús velferðarsviðs er til húsa, borða um tvö hundruð manns í hádeginu á hverjum vir- kum degi. Enn fleiri, eða í kringum 500 talsins, snæða hádegismatinn í félagsmiðstöðvum fyrir fullorðna sem staðsettar eru víða um borg. Þar að auki fær fjöldi Reykvíkinga hádegismatinn sinn sendan heim að dyrum og hefur þeim fjölgað talsvert undanfarið sem velja þann kostinn en um 360 matarskammtar eru sendir í heimahús á virkum dögum. Nú hefur starfsfólk framleiðslueldhúss velferðarsviðs opnað Facebook- síðu þar sem hægt er að skoða matseðil vikunnar ásamt innihaldslýs- ingum, auk þess að þar er birt mynd af máltíð hvers dags. Það er Eyjólfur Einar Elíasson, forstöðumaður framleiðslueldhúss velferðarsviðs, sem stendur að baki síðunni. „Þetta snýst fyrst og fremst um að bæta þjónus- tuna við notendur og aðstandendur þeirra. Við viljum verða sýnilegri gag- nvart fólkinu,“ segir hann en neitar því ekki að nýleg fjölmiðlaumfjöllun, þar máltíð frá framleiðslueldhúsinu varð efni frétta og umræðu á sam- félagsmiðlum, hafi ýtt við honum. „Þarna hafði það gerst að máltíð sem kom frá okkur hafði verið sett í pappaílát, þar sem innihaldið flæddi allt saman, auk þess að þetta voru matarafgangar. Þetta var afar óaðlaðandi. Við viljum að sjálfsögðu ekki að maturinn frá okkur sé borinn svona fram og kokkarnir mínir urðu sárir þegar þeir sáu þessa umræðu. Þetta hvatti okkur til að taka mynd af því daglega hvernig maturinn lítur út frá okkur. Við viljum nefnilega endilega sýna máltíðirnar eins og þær eru.“ Að undanförnu hafi mikil vinna verið lögð í að bæta hollustu matarins sem og auka fjölbreytni hans. Næringarfræðingur fari til að mynda vel yfir allar máltíðir í samræmi við næringarviðmið borgarinnar. Hann nefnir sem dæmi að fituinnihald hafi verið lækkað markvisst, prótein hækkað og nú séu allar sósur gerðar frá grunni. „Það er heilmikil kúnst, enda er viðskiptavinahópurinn okkar fjölbreyttur, allt frá 25 ára aldri upp í 105 ára, með ólíkar þarfir og smekk. Við reynum eftir fremstu getu að koma til móts við sem flesta.“ Eyjólfur bindur vonir við að sem flestir fylgist með Facebook-síðunni og hún verði lifandi vettvangur. Hún verði notuð til upplýsingagjafar auk þess að hægt verði að taka við ábendingum um það sem betur má fara í gegnum síðuna. Þá stefnir Eyjólfur að því að á síðunni verði leiðbeiningar um upphitun og framsetningu matarins. „Ég stefni að því að hafa þarna fleiri nytsamlegar upplýsingar, til dæmis um hlutfall fæðutegunda í hver- jum skammti. Það er mikilvægt að notendur okkar hafi í huga að hlutverk okkar er að skaffa 30 prósent af næringarþörf dagsins. Það hefur borið við að fólk nýti máltíðirnar bæði í hádeginu og á kvöldin, en það getur leitt til næringarskorts ef ekki er um aðra næringu að ræða,“ segir Eyjólfur að lokum. Facebook síða framleiðslueldhússins er: https://www.facebook.com/ matsedilldagsins Allt gengur sinn vanagang á Aflagranda. Félagsstarfið er að fara af stað eftir gott sumarfrí. Leitast er við að bjóða upp á fjölbreytt starf og þægilega samveru í hlýju umhverfi. Á Aflagranda geta allir fundið eitthvað við hæfi og jafnvel farið út fyrir þægindarammann og prófað eitthvað alveg nýtt. Öflugt starf er í húsinu á opnunartíma frá 8:30 til 15:45 en einnig er starf í húsinu eftir lokun, og er þá unga fólkið meira með völdin. „Við erum með opna vinnustofu alla morgna þar sem fólk hittist með handavinnuna sína og ræðir heimsmálin yfir kaffibolla,“ segja þær Siri og Helga sem eru við stjórnvöldin á Aflagranda. „Einnig er stólajóga alla morgna undir stjórn jógakennara. Hið sívinsæla bókaspjall með Hrafni Jökulssyni er á sínum stað alla miðvikudaga og hefur hann fengið til liðs við sig stjórnarmeðlimi félagsins Arfur Þorsteins frá Hamri til að stýra spjallinu í vetur. Við megum því eiga von á skemmtilegum gestum til okkar. Komið og njótið.“ Hádegismatur frá 11.30 til 12.30 Hægt að koma á Aflagranda og borða hádegismat milli 11:30 til 12:30, panta/afpanta verður matinn fyrir kl. 12:30 daginn áður og svo er síðdegiskaffi kl. 14:30 alla daga nema miðviku- og föstudaga, þá er kaffið til kl. 15:00. Nánari upplýsingar um hádegismatinn veitir Sigrún í síma 411-2707. Kraftur í KR Í samstarfi við íþróttafélagið KR er boðið upp á Kraft í KR alla mánudagsmorgna kl. 10:30. Tímarnir eru fyrir 60+ og er markmiðið að bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu. Íþróttafræðingur sér um tímana þrisvar sinnum í mánuði og jógakennari einu sinni í mánuði. Boðið er upp á frístundaakstur frá Þorraseli Vesturgötu kl. 10:10, Grandavegi 47 kl. 10:15 og Aflagranda 40 kl. 10:20 í KR heimilið og aftur til baka. Við hvetjum ykkur til að nýta ykkur frístundaaksturinn. Bæði hreyfingin og aksturinn er ykkur að kostnaðarlausu. Viðburðir fyrir Vesturbæinga „Í samfélagshúsinu okkar hér viljum hafa viðburði fyrir Vesturbæinga svo sem flóamarkaði, spilakvöld, veislur, sýningar og allt það sem Vesturbæingar kalla eftir. Endilega ef þið hafið hugmyndir að starfi eða viðburði sem ykkur langar að sjá hér í samfélagshúsinu okkar, hafið samband við okkur Siri verkefnastjóra eða Helgu umsjónarmann félagsstarfs á skrifstofunni, 411-2701 og 411-2702. Við erum alltaf meira en til í nýjar hugmyndir og áskoranir. Við hvetjum alla til að finna facebooksíðuna okkar, Samfélagshúsið Aflagranda, því þar koma allar tilkynningar og sérstaklega núna á þessum tíma þar sem við gætum þurft að aflýsa áður auglýstum viðburðum.“ Reglur vegna Covid 19 „Við minnum einnig alla gesti á að virða þær reglur og fjarlægðartakmörk sem gilda vegna Covid 19, en eins og við þekkjum geta þær breyst með stuttum fyrirvara,“ segja Siri og Helga að lokum. Félagsstarfið komið í fullan gang Aflagrandi. √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjónusta www.eignaumsjon.is Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga Eyjólfur Einar Elíasson, forstöðumaður framleiðslueldhúss velferðarsviðs Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Bílasmiðurinn hfBarnabílstólar í úrvali Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - Sími: 567 2330 - www.bilasmidurinn.is Samfélagshúsið á Aflagranda

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.