Nesfréttir - febr 2020, Qupperneq 6
6 Nesfrétt ir
Íþróttakona Seltjarnarness 2019
Íris Björk Símonardóttir er fædd árið 1987
og er uppalin með Gróttu, var markmaður
liðsins upp í meistaraflokk og varð Íslands-
og bikarmeistari með félaginu 2015 og 2016.
Hún hefur frá árinu 2018 verið markmaður
Vals og var á síðasta ári valin besti leikmaður
Olís deildarinnar, besti markmaður
deildarinnar auk þess sem hún hlaut Sigríðar-
bikarinn sem er veittur fyrir mikilvægasta
leikmann deildarinnar.
Nú í desember var hún svo tilnefnd sem
handknattleikskona ársins 2019. Íris Björk
hefur í mörg ár átt sæti í A landsliðiði kvenna
og gaf aftur kost á sér eftir nokkurra ára hlé nú
síðastliðið haust. Hún á að baki 71 landsleik
með liðinu og hefur skorað í þeim 4 mörk.
Íris Björk er hjúkrunarfræðingur að mennt,
er gift tveggja barna móðir og er frábær
fyrirmynd fyrir aðra iðkendur innan sem
utan vallar.
Íþróttamaður Seltjarnarness 2019
Pétur Theodór Árnason er fæddur og
uppalinn á Seltjarnarnesi. Hann er 24 ára
gamall og lék upp alla yngri flokkana með
Gróttu. Þegar Pétur var aðeins 16 ára gamall
spilaði hann sína fyrstu leiki með Gróttu í
1. deild og lék einnig með U16 ára landsliði
Íslands á Norðurlandamótinu. Þá um haustið
fór Pétur á reynslu til enska liðsins Reading og
var viðloðandi landsliðshópa næstu misseri.
Sumarið 2013 lenti Pétur í því áfalli að slíta
krossband í hné og ári síðar, eftir margra
mánaða endurhæfingu, slitnaði krossbandið
aftur. Síðan þá hefur ferill Péturs farið smám
saman upp á við en hann kom sterkur inn
í Gróttuliðið um mitt sumar 2018 og hjálpaði
liðinu að komast upp úr 2. deild.
Árið 2019 var ár Péturs Theodórs. Hann var
markahæsti leikmaður Mjólkurbikarsins með 9
mörk og var lykilmaður í liði Gróttu sem sigraði
Inkasso-deildina eftirminnilega í sumar. Pétur
var valinn besti leikmaður fyrri hluta mótsins,
hann var markakóngur deildarinnar með 15
mörk í 22 leikjum og í lok tímabilsins var Pétur í
liði ársins! Pétur Theodór var valinn leikmaður
ársins hjá Gróttu á lokahófi meistaraflokkanna
en einnig var hann kjörinn leikmaður
leikmanna af liðsfélögum sínum. Pétur er
mikill liðsmaður með stórt Gróttuhjarta. Hann
æfir af krafti og hugsar vel um sig utan vallar.
Fyrirmyndarleikmaður í einu og öllu.
KjöR Á íþRóttaManni og Konu SeltjaRnaRneSS 2019
Pétur Theodór Árnason og Íris Björk
Símonardóttir, Íþróttamaður og kona
Seltjarnarness 2019.
íris Björk og Pétur theodór kjörin
Kjör íþróttamanns- og konu Seltjarnarness
fór fram fimmtudaginn 30. janúar að
viðstöddu fjölmenni í Félagsheimili
Seltjarnarness.
Kjörið fór nú fram í 27. skiptið en það var
fyrst haldið 1993. Kjörið er í umsjón íþrótta- og
tómstundanefndar Seltjarnarness, sem vill
með kjörinu vekja athygli á gildi íþrótta, öflugu
íþróttastarfi á Seltjarnarnesi og verðlauna
sérstaklega afreksíþróttamenn úr hópi
bæjarbúa. Jafnframt voru veitt verðlaun til
landsliðsfólks, ungs og efnilegs íþróttafólks auk
þess sem Íslandsmeistarar voru sérstaklega
verðlaunaðir. Einnig voru veitt verðlaun
fyrir félagsstörf.
Öllu þessu flotta íþróttafólki eru
sendar innilegar hamingjuóskir með
viðurkenningarnar og frábæran árangur.
Glæsilegt iþróttafólk sem hlaut tilnefningar til íþróttakonu og
manns Seltjarnarness 2019. Landsliðsfólk á Seltjarnarnesi 2019.
Ungt og efnilegt íþróttafólk á Seltjarnarnesi.
Íslandsmeistarar í fimleikum á
árinu 2019.
Daníel Ingi Arason og
Jenný Guðmundsdóttir hlutu
viðurkenn ing ar fyrir félagsstörf.