Morgunblaðið - 18.06.2020, Side 6
A
ustur á Fáskrúðsfirði er
að finna eitt af snotrari
hótelum landsins. Foss-
hótel Austfirðir er rekið
í fjórum sögulegum
byggingum við flæðarmálið á Fá-
skrúðsfirði en hótelið opnaði þar
eftir langt og vandað ferli þar sem
húsin voru gerð upp að frumkvæði
Minjaverndar. „Hótelið dreifist á
fimm byggingar: gamla franska
spítalann, læknabústaðinn, kapell-
una og sjúkraskýlið auk nýbygg-
ingar í sama stíl sem bættist við að
loknum endurbótum á svæðinu til
að fjölga herbergjum fyrir gesti,“
segir Davíð Torfi Ólafsson. „Bæði
er staðsetningin einstök en bygg-
ingarnar líka mjög fallegar og var
mikið lagt í að gera húsin upp og
breyta þeim í hótel. Sem dæmi er
gamli læknabústaðurinn tengdur
franska spítalanum með göngum
sem liggja undir veginn sem
skilur húsin að og götu-
myndin þannig varð-
veitt.“
Ævintýralegt
útsýni á leiðinni
Davíð er fram-
kvæmdastjóri Ís-
landshótela en eins
og gefur að skilja
kallar starf hans á
tíð ferðalög innan-
lands til að vitja hótela
um allt land. Þótt hann fá-
ist seint til að gera upp á milli
áfangastaða segir Davíð samt að
honum þyki einstaklega ánægjulegt
að heimsækja Austfirði, og best ef
nægur tími gefst bæði til að skoða
landið á leiðinni austur, en eins til
að verja nokkrum nóttum á svæð-
inu. „Ef ég væri sjálfur á leið í frí
myndi ég leggja hæfilega snemma
af stað og aka eftir suðurströndinni
austur að Fosshóteli við Jökulsár-
lón. Aksturinn tekur um fjórar
klukkustundir sem þýðir að ágætis-
tími er til að stoppa nokkrum sinn-
um á leiðinni og líta t.d. á Reynis-
fjöru, Fjallsárlón og vitaskuld
Jökulsárlón. Svo myndi ég halda
aftur af stað næsta dag, endur-
nærður eftir góðan morgunverð, og
njóta ævintýralegs útsýnisins frá
þjóðveginum alla leið til Fáskrúðs-
fjarðar. Hentar Fáskrúðsfjörður
ágætlega sem miðstöð til að skoða
Austfirði á nokkrum dögum, og er
t.d. ekki nema um hálftíma akstur
til Egilsstaða, sem er álíka og það
tekur að aka frá Hafnarfirði inn í
Reykjavík í góðri umferð.“
Á Fáskrúðsfirði er margt að sjá
og nefnir Davíð t.d. Franska safnið
og norðurljósasýninguna Auroras
Iceland. Því miður hefur Frönskum
dögum verið aflýst í ár, vegna kór-
ónuveirufaraldursins en Davíð segir
engu að síður gaman að upplifa þá
frönsku menningu sem svífur yfir
vötnum á Fáskrúðsfirði og sést
m.a. í safninu og byggingunum á
svæðinu. „Veitingahúsið á hótelinu
er gott dæmi um hvernig þessari
hefð er haldið við en staðurinn heit-
ir L‘Abri sem á frönsku þýðir
„Skjólið“ og þykir matseldin þar
sérdeilis góð og er vitaskuld með
frönsku ívafi. Þá dreifast góðir veit-
ingastaðir og kaffihús um allt Aust-
urland og allri þjónustu við ferða-
menn vel sinnt,“ segir Davíð.
Alla langar austur
Þeir sem hyggja á ferðalag til
Austurlands ættu að hefja und-
irbúninginn snemma því þrátt fyrir
að komur erlendra ferðamanna til
landsins séu enn í lágmarki er bók-
unarstaða hótelanna á svæðinu orð-
in nokkuð góð. „Júlí er nærri því
uppseldur og ágúst mikið bókaður
og fer hver að verða síðastur að
tryggja sér herbergi,“ segir Davíð.
„Ætti ekki að koma á óvart hve
mikill áhugi er á Austurlandi í sum-
ar enda náttúran fögur og þessi
landshluti miklar söguslóðir. Þá
hafa ný göng auðveldað samgöngur
á milli fjarða og spennandi nýir
áfangastaðir hafa bæst við eins og
t.d. böðin Vök sem liggja að og út í
Urriðavatn og nýta vatn úr heitum
uppsprettum.“
Gefi sér nægan tíma til að
Þegar Davíð Torfi
Ólafsson ferðast á
Austfirði reynir hann að
fara ekki í einum rykk
heldur gefa sér góðan
tíma til að njóta ferða-
lagsins og svæðisins.
Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Götumerkingarnar á Fáskrúðsfirði minna á merkilega sögu bæjarins.
Davíð
Torfi
Ólafsson
Á bak við Fosshótel á Fáskrúðsfirði
má ganga út á bryggju og virða fyrir
sér bæði byggðina og fjörðinn.
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020
SALTHÚSSMARKAÐURINN
STÖÐVARFIRÐI
Við seljum fallegt handverk
sem vert er að skoða.
Opið er alla daga yfir sumarmánuðina
frá kl. 10.00 – 17.00